Fréttablaðið - 25.04.2013, Side 4
25. apríl 2013 FIMMTUDAGUR| FRÉTTIR | 4
HEILBRIGÐISMÁL Fimm þúsund
Íslendingar hafa greinst með
hjartasjúkdóminn gáttatif og talið
er að um eitt prósent heilbrigðis-
útgjalda á Vesturlöndum sé komið
til vegna sjúkdómsins. Gáttatif er
takttruflun í gáttum hjartans og
getur valdið segamyndun og jafn-
vel heilaáfalli.
„Sjúkdómurinn getur haft alvar-
legar afleiðingar og er oft á tíðum
erfiður í meðhöndlun,“ segir Davíð
O. Arnar, læknir á Landspítalan-
um. Davíð hlaut á dögunum verð-
laun úr Verðlaunasjóði í lækn-
isfræði fyrir framúrskarandi
árangur á sviði vísindarannsókna
á gáttatifi. Verðlaunin eru þau
stærstu sem eru veitt í heilbrigðis-
vísindum hérlendis. Davíð segir
að sér og samstarfsfólki sínu hafi
verið sýndur mikill heiður með
verðlaunaveitingunni.
„Okkur er sýndur mikill heiður
með verðlaununum og það eflir
okkur óneitanlega að fá slíka við-
urkenningu. Þetta gerir okkur
jafnframt kleift að stunda mikil-
vægar rannsóknir á sjúkdóminum
áfram,“ segir Davíð.
Sjúkdómurinn er greindur við
ákveðin einkenni en einnig kemur
fyrir að hann sé greindur fyrir til-
viljun og þá hjá fólki sem er ein-
kennalaust. „Þetta getur verið mjög
lúmskt. Við styðjumst við skilmerki
um áhættuhópa en til þess þurfum
við líka að vita meira um þá hópa.
Við þurfum einnig að skilja betur
forsendur sjúkdómsins til þess að
þróa megi betri lyf en þau sem í
boði eru.“
Hverjir eru í áhættuhópi? „Þeir
sem eiga nákominn ættingja sem
hefur greinst með gáttatif eru til að
mynda í nær tvöfaldri áhættu á að
fá sjúkdóminn sjálfir. Ef nákominn
ættingi hefur greinst með sjúkdóm-
inn fyrir sextugt er áhættan allt
að fimmfalt hærri,“ segir Davíð.
Hann segist jafnframt sjá fram á
að algengi gáttatifs geti aukist um
allt að þriðjung á næstu þremur til
fjórum áratugum. „Ástæða þess er
fyrst og fremst öldrun þjóðarinnar,
en gáttatif greinist oftast hjá þeim
sem eldri eru.“ maria@frettabladid.is
Fimm þúsund með gáttatif
Gáttatif er takttruflun í hjartagáttum og getur valdið heilaáfalli sé það ekki meðhöndlað. Davíð O. Arnar,
sérfræðingur á Landspítalanum, vann nýverið til verðlauna fyrir vísindarannsóknir sínar á sjúkdóminum.
HEFUR RANNSAKAÐ GÁTTATIF Davíð O. Arnar hjartalæknir segir að gáttatif geti
aukist um allt að þriðjung á næstum 30 til 40 árum. Ástæðan sé einkum öldrun
þjóðarinnar.
„Ég er búinn að hafa gáttatif síðan
2005. Þá hafði ég nær aldrei komið inn
á spítala en það var fljótt að breytast. Ég
var um tíma farinn að þekkja starfsfólk
með nafni,“ segir Þorgeir Guðmundsson
gáttatifssjúklingur. Hann hefur frá grein-
ingunni farið alls 29 sinnum í svokallaða
rafvendingu þar sem rafskaut eru notuð
við að koma takti hjartans í lag. Þorgeir
hefur einnig farið tvisvar sinnum í
brennsluaðgerð auk þess að taka lyf.
Hann hafði ekki fundið fyrir neinum
einkennum þegar hjúkrunarkona hjá
Blóðbankanum benti honum á að hann
hefði óreglulegan hjartslátt. Í kjölfarið
fór hann til læknis sem greindi hjá
honum sjúkdóminn.
„Ég fór fyrst til Danmerkur í brennslu
en það hafði engin áhrif. Ári seinna tók
Davíð mig í brennslu hér heima og ég
held að ég hafi verið með þeim fyrstu.
Þá breyttist allt til batnaðar og ég hef á
undanförnum árum varla þurft lengur í
rafvendingu. Það er þó aðeins að byrja
aftur. Ég fór síðast núna á föstudaginn,“
segir Þorgeir.
Einkennin eru í tilfelli Þorgeirs fremur
væg, að hans sögn. Hann segist þó finna
fyrir svolítilli þreytu og mæði seinnipart-
inn og að hann þurfi því stundum að
leggjast fyrir.
„Annað einkennið er að ég svitna
mikið á næturnar og lendi í því að þurfa
að skipta allt að þrisvar um bol sömu
nóttina. Þetta háir mér því ekki neitt
meiriháttar. Ég þarf eðli málsins
samkvæmt að taka lyf. Annars
er ég bara mjög bjartsýnn,
ég hef líka svo miklar
mætur á honum
Davíð.“
Hafði aldrei komið á spítala áður
Sjúkdómurinn getur
haft alvarlegar afleiðingar
og er oft á tíðum erfiður í
meðhöndlun.
Davíð O. Arnar hjartalæknir
SÝRLAND, AP Stríðandi fylkingar í
Sýrlandi kenna hvor annarri um að
hafa sprengt og fellt sögufrægan
bænaturn við Umayyad-moskuna
í borginni Aleppo í gær.
Bænaturninn er frá tólftu öld
og er hluti af gömlu borginni í
Aleppo, sem er á heimsminjaskrá
UNESCO.
Þetta er í annað skipti á rúmri
viku sem bænaturn er felld-
ur í Sýrlandi, en áður hafði turn
Omari-moskunnar í Daraa verið
felldur. Sá var frá sjöundu öld. - þj
Uppreisnarmenn og stjórnarherinn í Sýrlandi vísa ábyrgð hvor á annan:
Sprengdu fornan bænaturn
FALLINN Bænaturninn frá tólftu öld stendur ekki lengur, en stríðandi fylkingar
kenna hvor annarri um að hafa fellt hann. Moskur voru upphafsstaður uppreisnar-
innar gegn Assad Sýrlandsforseta á sínum tíma. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
SAMGÖNGUR Íbúar við Rauðholt á
Selfossi telja ferðir strætisvagna
um götuna yfirdrifnar og segjast
„verulega óánægðir með óhóflega
umferð vagnanna“, samkvæmt
hverfisráði Selfoss.
Ráðið minnir á fyrri fyrirspurn
sína um málið, sem vísað var til
Samtaka sunnlenskra sveitar-
félaga en að þaðan hafi ekkert
svar borist. Ráðið spyr hvort
leiðarkerfið hafi verið sett upp
án vitneskju ráðamanna sveitar-
félagsins. - gar
Veruleg óánægja á Selfossi:
Allt of margir
strætisvagnar
207,1194
GENGISVÍSITALA KRÓNUNNAR
116,86 117,42
178,58 179,44
152,08 152,94
20,4 20,52
19,789 19,905
17,686 17,79
1,1722 1,179
175,4 176,44
Bandaríkjadalur
Sterlingspund
Evra
Dönsk króna
Norsk króna
Sænsk króna
Japanskt jen
SDR
GENGIÐ
24.04.2013
AUGLÝSINGADEILDIR FRÉTTABLAÐSINS– AUGLÝSINGASTJÓRI: Jón Laufdal jonl@frettabladid.is ALMENNAR SÍMI 512-5401: Guðmundur Steinsson gudmundurs@365.is, Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is, Hlynur Þór Steingrímsson hlynur@365.is, Laila Awad laila@365.is, Sigríður Dagný Sigurbjörnsdóttir sigridurdagny@365.is, Örn
Geirsson orn.geirsson@365.is FÓLK/LÍFIÐ/SÉRBLÖÐ SÍMI 512-5402: Atli Bergmann atli.bergmann@365.is, Elsa Jensdóttir elsaj@365.is, Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is, Sigrún Kristinsdóttir sigrunp@365.is, Sigurjón Viðar Friðriksson sigurjon@365.is, Sverrir Birgir Sverrisson sverrirbs@365.is FÓLK OG SÉRBLÖÐ EFNI: Elín Albertsdóttir
elin@365.is og Vera Einarsdóttir vera@365.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 512-5403: Hrannar Helgason hrannar@365.is, Viðar Ingi Pétursson vip@365.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 512-5407: Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@365.is, Steinunn Sandra Guðmundsdóttir ssg@365.is, Sigrún Helga Guðmundsdóttir sigrunh@365.is
LEIÐRÉTT
Röng merking var á kökuriti sem fylgdi
frétt um niðurstöður skoðanakönnunar
á fylgi flokkanna í Fréttablaðinu í gær.
Í mynd sem sýndi fjölda þingsæta átti
vinstra kökuritið við fjölda þingsæta í
dag, ekki í könnun 15. og 16. apríl.
Viðsnúningur varð í töflu með frétt
á síðu 6 á þriðjudag um niðurfærslur
lána hjá Íslandsbanka frá árinu 2008.
Hið rétta er að hjá einstaklingum námu
niðurfærslur vegna skuldaaðlögunar
81,7 milljörðum (79,2%). 21,5 millj-
arðar (20,8%) voru vegna gjaldþrota.
Rangt var farið með nafn Kristnýjar
Steingrímsdóttur félagsráðgjafa í frétt
um skýrslu velferðarráðuneytisins um
tilkynningar til barnaverndanefndar.
NOREGUR Sjö stærstu stjórnmála-
flokkarnir í Noregi munu eyða
tæpum 80 milljónum norskra
króna, rúmlega
1,5 milljörðum
íslenskra, fyrir
þingkosning-
arnar í haust.
Þetta kemur
fram í úttekt
Dagsavisen.
Verkamanna-
flokkur Stolten-
bergs forsætis-
ráðherra hefur
úr mestu að
moða, 25 milljónum, en Hægri
flokkurinn hefur tuttugu millj-
ónir. Verkamannaflokkurinn er
einnig eini flokkurinn sem hefur
meiri fjármuni en í kosningunum
2009.
Borgaralegu flokkarnir í
stjórnarandstöðu hafa talsvert
meira fjármagn en stjórnarflokk-
arnir, 46 milljónir gegn 33 millj-
ónum. - þj
Norskir stjórnmálaflokkar:
1,5 milljarðar í
kosningasjóði
JENS
STOLTENBERG
www.skyr.is
Þú finnur fleiri
boostuppskriftir á
BRAGÐ AF SUMRI
Peru- og ananasboost
1 lítið Peruskyr.is
1 dl ananassafi
50 g frosnir blandaðir
melónubitar
0,5 dl kókosmjólk
6-8 ísmolar
Veðurspá
Laugardagur
Víða 10-15 m/s
ÞAÐ ER KOMIÐ SUMAR á dagatalinu en vetur í veðrinu enn um sinn. Víða bjart
á morgun en þykknar upp og hvessir undir kvöld, fyrst V-til. Úrkoma V- og N-til á
laugardag og milt veður en kólnar svo aftur í framhaldinu.
-3°
6
m/s
0°
9
m/s
2°
9
m/s
3°
11
m/s
Á morgun
3-10 m/s, hvessir V-til undir kvöld
Gildistími korta er um hádegi
6°
3°
8°
5°
5°
Alicante
Basel
Berlín
17°
22°
19°
Billund
Frankfurt
Friedrichshafen
13°
24°
24°
Gautaborg
Kaupmannahöfn
Las Palmas
10°
10°
25°
London
Mallorca
New York
19°
20°
17°
Orlando
Ósló
París
XX°
13°
23°
San Francisco
Stokkhólmur
16°
13°
3°
4
m/s
4°
8
m/s
1°
4
m/s
-2°
6
m/s
0°
8
m/s
0°
7
m/s
-4°
7
m/s
4°
3°
4°
0°
3°
Snjólaug Ólafsdóttir
veðurfréttamaður