Fréttablaðið - 25.04.2013, Page 12
25. apríl 2013 FIMMTUDAGUR| FRÉTTIR | ASKÝRING | 12
Kolbeinn
Óttarsson Proppé
kolbeinn@frettabladid.is
2013
Heildarskuldir landsmanna námu
1.878.044 milljónum króna árið
2011. Þar af voru skuldir vegna
íbúðakaupa 1.151.616 krónur. Þetta
kemur fram í gögnum sem Frétta-
blaðið fékk í hendur hjá Íbúðalána-
sjóði, en þau hafa verið unnin upp
úr skattframtölum ársins 2011.
Eins og eðlilegt er eru hæstu
skuldirnar þar sem flestir íbúarn-
ir eru, í skattumdæmi Reykjavíkur
og Reykjaness, en því síðarnefnda
tilheyra meðal annars fjölmenn
sveitarfélög eins og Hafnar fjörður,
Kópavogur og Garðabær.
Tölurnar sýna hins vegar að
skipting fasteignaskulda dreifist
ekki jafnt yfir landið eftir fjölda
íbúa. Það skýrist væntanlega af
mismiklu verðmæti fasteigna eftir
því hvar þær eru staðsettar.
Jón Steinsson, hagfræðingur
við Columbia-háskóla, segir þess-
ar tölur sýna að landsbyggðin
kæmi illa út úr flatri niðurfellingu
skulda, eins og þeirri sem Fram-
sóknarflokkurinn og fleiri flokkar
hafa boðað. Sé reiknað með tutt-
ugu prósenta niðurfellingu, eins
og Framsókn gerir, þýði það tutt-
ugu milljörðum hagstæðari útkomu
fyrir suðvesturhornið, sé miðað við
mannfjölda.
„Húsnæðisbólan var stærri á
höfuð borgarsvæðinu en annars
staðar á landinu. Fólk á landsbyggð-
inni skuldar því ekki jafn mikið og
fólk á höfuðborgarsvæðinu,“ segir
Jón. „Ef farið væri í tuttugu pró-
senta flata niðurfellingu þá sýnist
mér að landsbyggðin myndi fá um
tuttugu milljörðum króna minna í
sinn hlut en ef sömu upphæð væri
deilt út eftir fólksfjölda. Það má því
segja að tuttugu prósenta niðurfell-
ing sé landsbyggðarskattur upp á
um tuttugu milljarða króna.“
Þeir hæst launuðu græða
Jón segir annan ókost við flata
niður fellingu vera þann að stór
hluti hennar rynni til hátekju- og
stóreignafólks, sem ekki þurfi á
ölmusu frá ríkinu að halda.
„Seðlabankinn hefur reiknað
20 milljarða „landsbyggðarskattur“
Húsnæðisskuldir eru hærri á höfuðborgarsvæðinu en landsbyggðinni. Hagfræðingur segir 20 prósenta flata niðurfellingu jafngilda 20
milljarða skatti á landsbyggðina. Stórkostlegir fjármagnsflutningar frá landsbyggðinni til suðvesturhornsins, segir stjórnmálafræðingur.
að um áttatíu milljarðar króna
myndu renna til þess fimmtungs
fólks sem er með hæstu tekjurnar
og um 75 prósent af skuldaniður-
fellingunni myndu renna til fólks
sem ekki er í fjárhagsvanda.“
Jón segir því spurningu hvort
ekki sé skynsamlegra að greiða
niður himinháar skuldir ríkis-
ins en að ráðast í flata skulda-
niðurfellingu.
„Ríkið hefur varla borð fyrir
báru í ríkisfjármálum í dag vegna
þess hvað skuldir þess eru háar
og hefur því lítil sem engin tök á
því að takast á við áföll sem gætu
dunið yfir á næstu árum. Það er
mikil áhætta tekin að ráðast í dýra
skuldaniðurfellingu til fólks sem
ekki þarf á slíku að halda á meðan
ríkið er jafn skuldsett og það er í
dag,“ segir Jón Steinsson.
Fé flutt til suðvesturhorns
Grétar Þór Eysteinsson, stjórnmála-
fræðingur við Háskólann á Akur-
eyri, segir þessa niðurstöðu sýna að
flatur niðurskurður húsnæðislána
þýði fjármagnstilfærslu frá lands-
byggðinni til suðvesturhornsins.
„Maður veltir því fyrir sér hvort
menn hafi hugsað þetta allt saman
til enda út frá öllum hliðum. Þetta
er náttúrlega hvort heldur sem er
fé skattborgaranna, jafnvel þó að
ríkið geti sótt þessa peninga til svo-
kallaðra hrægammasjóða, þá væri
hægt að nota þessa peninga í að
greiða niður skuldir ríkisins. Þetta
eru í raun og veru peningar okkar
allra. Þessi niðurstaða sýnir að
þetta eru stórkostlegir fjármagns-
tilflutningar.“
Grétar segir að líklega komi
nokkur svæði á landsbyggðinni
Vestmannaeyjar
Landið allt
Vesturland
Vestfi rðir
Norðurland vestra Norðurland eystra
Austurland
SuðurlandReykjanes
Reykjavík
11.259
24.853
46
1.
32
6
44
1.
21
4
84
5.
03
7
92
2.
46
1
46.007
85.590
12.953
26.854
17.618
38.057
71.915
140.086
30.404
56.094
58.920109.258
1.
15
1.
61
6
2.
24
8.
29
0
■ Verðmæti fasteigna
■ Skuldir vegna íbúðarkaupa
94.341
78.068
11.706
5.560
7.397
20.503
9.585
15.008
245.424
20% NIÐURFELLING SKULDA MUNDI KOSTA*:
Reykjavík Reykjanes Vesturland Vestfi rðir Norðurland vestra
Norðurland
eystra Austurland Suðurland
Vestmanna-
eyjar Landið allt
88,2 92,3 9,201 2,6 3,5 14,4 6,1 11,8 2,3 230,3
Athugið að tölurnar eru unnar úr skattagögnum fyrir árið
2011. Það á þó ekki að breyta menginu miðað við núverandi
stöðu. Fréttablaðið fékk gögnin frá Íbúðalánasjóði.* í milljörðum króna
Í milljónum króna
Fjöldi
framtala
www.volkswagen.is
Fágaður
ferðafélagi
Volkswagen Tiguan
Tiguan Sport & Style kostar aðeins frá
6.180.000 kr.
Volkswagen Tiguan sportjeppi eyðir
aðeins 5,8 l á hverja 100 km.
Fullkomið leiðsögukerfi
fyrir Ísland
Komdu og reynsluaktu Volkswagen Tiguan
„Hvers vegna ættum við að skoða það?“ spyr Frosti
Sigurjónsson, frambjóðandi Framsóknarflokksins, á móti
þegar Fréttablaðið spyr hvort flokkurinn hafi reiknað út
hvernig flöt niðurfelling skulda skiptist eftir búsetu. „Það
sem við þurfum að leiðrétta er forsendubresturinn sem
fólk varð fyrir sem skuldar þessi verðtryggðu lán. Við
eigum ekki að spyrja hvar fólk á heima, heldur hversu
mikill forsendubresturinn varð og leiðrétta hann.“ Frosti
segir flokkinn líta svo á að peningarnir tilheyri skuldugum
heimilum þar sem þeir komi þaðan og þangað eigi að
dreifa þeim aftur. „Þó að við gerum þessar leiðrétting-
ar verður nóg eftir til að lækka skuldir ríkissjóðs.“
HAFA EKKI SKOÐAÐ DREIFINGUNA
betur út en önnur, Akureyri, þétt-
býlisstaðir á Mið-Austurlandi og
Selfoss, svo dæmi séu tekin. Heilt
yfir þýði þetta að verið sé að flytja
„svakalegar summur til suðvestur-
hornsins úr ríkissjóði“.
Séu tuttugu milljarðar settir í
samhengi skipti þeir lands byggðina
miklu máli. „Ef við erum að tala
um tuttugu milljarða þá erum við
að tala um tvenn jarðgöng, ef við
getum notað þann gjaldmiðil. Það
eru nú margir búnir að standa
lengi í pontu á Alþingi og tala sig
hása gegn tíu milljarða króna jarð-
göngum.“