Fréttablaðið - 25.04.2013, Page 16

Fréttablaðið - 25.04.2013, Page 16
25. apríl 2013 FIMMTUDAGUR| FRÉTTIR | VIÐ VEITUM ÍSLENSKU AFREKSFÓLKI VILJASTYRK JÓN MARGEIR SVERRISSON SUND Saksóknarinn Björn Þorvaldsson fór fram á það í gærmorgun að Gesti Jónssyni yrði meinað að verja Sigurð Einarsson, þegar ákæra á hendur níu fyrr- verandi starfsmönnum Kaupþings fyrir allsherjar- markaðsmisnotkun var þingfest í Héraðsdómi Reykjavíkur. „Að Gestur skuli vera mættur hér er óskiljanlegt,“ sagði Björn, sem gerði kröfuna „í ljósi hegðun- ar hans í svokölluðu Al Thani-máli“. Gestur sagði sig nýverið frá verjendastörfum í Al Thani-mál- inu gegn vilja dómarans, með þeim rökum að sannfæring hans byði honum ekki að taka þátt í réttarhöldum þar sem brotið væri svo gróflega gegn réttindum skjól- stæðings hans og hann teldi vera gert í því máli. Það hefur nú leitt til þess að meðferð málsins frest- ast fram í febrúar á næsta ári, þar sem gefa þarf nýjum verjanda kost á að setja sig inn í málið. Þessi atburðarás var án fordæma í íslenskri réttarsögu. Björn sagði að flest atrið- in sem Gestur og kollegi hans Ragnar Hall tiltóku sem ástæður í afsagnar bréfi sínu til dómarans í Al Thani-málinu ættu líka við í stóra Kaupþingsmálinu sem þing- fest var í gær. Því væri Gestur í raun „tifandi tímaprengja“ í mál- inu, enda þyrfti lítið að gerast til að hann segði sig frá verjenda- starfanum með sömu rökum og í hinu málinu. Gestur mótmælti kröfu Björns og sagði að öll lagaskilyrði fyrir skipun hans sem verjanda væru fyrir hendi. Hann sagði að með þessu héldi saksóknari uppteknum þeim hætti að ráðast á einstaklinga í stað þess að horfa til efnis- atriða mála. Dómarinn Arngrímur Ísberg tók sér fimmtán mínútna hlé til að íhuga málið og kvað að því loknu upp þann úrskurð að kröfunni væri hafnað; Gestur skyldi verja Sigurð. Björn lýsti því strax yfir að úrskurðurinn yrði kærður til Hæstaréttar. Ekki liggur fyrir hvenær Hæstiréttur kveður upp dóm í málinu, en það gæti þó orðið á föstudag. ASKÝRING | 16 ÁKÆRUR Í STÆRSTU MÁLUM SÉRSTAKS SAKSÓKNARA ÞINGFESTAR Í HÉRAÐSDÓMI BANKASTJÓRAR MÆTTUST Sigurjón Þ. Árnason, til hægri, mætti Hreiðari Má Sigurðs syni og Sigurði Einarssyni þegar hann gekk inn í verjendaherbergið í Héraðs- dómi Reykjavíkur í gærmorgun. Ekki var annað að sjá en að vel færi á með þeim. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA Líkti Gesti við tíma- sprengju Óskiljanlegt er að Gestur Jónsson hafi mætt með Sigurði Einarssyni í dóm í gær að mati saksóknara, sem krefst þess að Gesti verði meinað að verja Sigurð. Krefst þess að Lárent- sínus víki Fyrrverandi formaður skilanefndar Landsbankans er verjandi fyrrverandi stjórnanda hjá bankanum. Saksóknari vill að hann víki en hann er ósammála. Stígur Helgason stigur@frettabladid.is GESTUR JÓNSSON BJÖRN ÞORVALDSSON Lárentsínus Kristjánsson telur það ekki munu valda hagsmuna- árekstrum að hann sinni verjenda- störfum fyrir Steinþór Gunnars- son, fyrrverandi forstöðumann verðbréfamiðlunar Landsbankans, þótt hann hafi einnig verið for- maður skilanefndar Landsbankans þar til fyrir hálfu öðru ári. Arnþrúður Þórarinsdóttir sak- sóknari fór fram á það við þing- festingu málsins í gærmorgun að Lárentsínus fengi ekki að verja Steinþór vegna þessa. Dómarinn, Ragnheiður Harðardóttir, boðaði til sérstaks þinghalds um þá kröfu í næstu viku. Lárentsínus segir kröfuna hafa komið á óvart. „Hún á sér engin rök, að mínu mati,“ segir hann. „Eini tilgangurinn sýnist mér vera að svipta minn skjólstæðing þeim rétti að geta valið sér verjanda sjálfur í málinu.“ Að Gestur skuli vera mættur hér er óskiljanlegt. Björn Þorvaldsson saksóknari Ákærurnar snúa að stórfelldum kaupum eigin viðskipta bankanna á bréfum í bönkunum og lánveitingum til val- inna félaga til kaupa á þeim, allt í þeim tilgangi að halda uppi verði bréfanna og gefa virði þeirra falskt til kynna. Þetta fólk er ákært í málunum: Þessi eru ákærð„Ég lýsi yfir sakleysi mínu af öllu nema því að vera seinn í réttinn. Ég biðst afsökunar á því,“ sagði Magnús Guðmundsson, fyrr- verandi forstjóri Kaupþings í Lúxem- borg, inntur eftir afstöðu sinni til sakar efnisins í gær. Magnús var ekki sá eini sem lýsti sig saklausan. Það gerðu líka allir hinir sak- borningarnir fjórtán í málunum tveimur. KAUPÞINGSFÓLK Ingólfur Helgason, Björk Þórarinsdóttir og Bjarki Diego ásamt verjendum í sal 101 í Héraðsdómi í gærmorgun. MAGNÚS GUÐMUNDSSON LANDSBANKAFÓLK Elín Sigfúsdóttir, fyrrverandi bankastjóri Lands- bankans, sést hér með hluta af verjendateymi Landsbankafólksins. LÁRENTSÍNUS KRISTJÁNSSON Magnús Guðmundsson sagðist saklaus af öðru en að hafa mætt of seint í réttinn: Allir fimmtán lýstu yfir sakleysi sínu Úr Kaupþingi: ■ Hreiðar Már Sigurðsson ■ Sigurður Einarsson ■ Ingólfur Helgason ■ Magnús Guðmundsson ■ Björk Þórarinsdóttir ■ Bjarki H. Diego ■ Einar Pálmi Sigmundsson ■ Birnir Sær Björnsson ■ Pétur Kristinn Guðmarsson Úr Landsbankanum: ■ Sigurjón Þ. Árnason ■ Elín Sigfúsdóttir ■ Steinþór Gunnarsson ■ Ívar Guðjónsson ■ Júlíus Steinar Heiðarsson ■ Sindri Sveinsson

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.