Fréttablaðið - 25.04.2013, Side 18
25. apríl 2013 FIMMTUDAGUR| FRÉTTIR | 18
ÍTALÍA, AP „Þetta er eini möguleik-
inn!“ sagði Giorgio Napolitano, for-
seti Ítalíu, þegar hann færði Enrico
Letta umboð til þess að mynda rík-
isstjórn og binda þannig enda á
tveggja mánaða stjórnar kreppu
og hefja vinnu við að koma Ítalíu
á rétta leið. Letta er varaformaður
Lýðræðisflokksins, sem er vinstra
megin við miðju á hinu pólitíska lit-
rófi, en í umboði Napolitanos felst
að Letta myndi samsteypustjórn
með hægriflokki Silvios Berlus-
coni, fyrrverandi forsætisráðherra.
Vinstri menn hafa meirihluta í
neðri deild þingsins, en hægri
menn í öldungadeildinni. Forset-
inn hafði áður fengið vilyrði stóru
flokkanna fyrir því að þeir styddu
stjórn undir forustu Letta.
Forsætisráðherrann verðandi
sagði að hann áttaði sig á þeirri
ábyrgð sem honum væri falin. For-
gangsverkefnið sé að takast á við
hina „gríðarlegu og óviðunandi“
erfiðleika sem Ítalía, sem er þriðja
stærsta efnahagsveldi Evrópu-
sambandsins, hefur glímt við síð-
ustu misseri.
„Staðan er mjög erfið og for-
dæmislaus þar sem getur brugð-
ið til beggja vona,“ sagði Letta
og bætti við að næsta verkefni á
forgangsröðinni væru pólitísk-
ar umbætur þar sem stjórnmála-
stéttin hefði glatað allri tiltrú
almennings. Meðal annars hygg-
ur hann á fækkun þingmanna og
breytingar á kosningalöggjöfinni.
Ítalíu hefur verið stýrt af teknó-
kratastjórn Marios Monti frá
haustinu 2011 þegar Berlusconi
hrökklaðist frá völdum. Monti inn-
leiddi margar nauðsynlegar en
afar óvinsælar aðgerðir þar sem
skorið var niður í útgjöldum hins
opinbera og skattar og gjöld hækk-
uð. Hann hlaut ekki brautargengi
í kosningunum, þar sem andúð
almennings á stjórnmála stéttinni
kom berlega í ljós og framboð
grínistans Beppes Grillo hlaut um
fimmtung atkvæða.
Grillo lýsti yfir mikilli óánægju
með útnefningu Letta, sem
hann sagði skýrt dæmi um sam-
tryggingu gömlu flokkanna.
thorgils@frettabladid.is
Stóru hægri og vinstri flokk-
arnir á Ítalíu saman í stjórn
Enrico Letta fékk í gær umboð til að mynda samsteypustjórn á Ítalíu og binda enda á tveggja mánaða stjórnar-
kreppu. Efnahagsmál eru stærsta viðfangsefni stjórnarinnar sem tekur við af teknókratastjórn Marios Monti.
Enrico Letta er 46 ára gamall þingmaður fyrir Lýðræðisflokkinn. Hann
var valinn til að mynda stjórn fram yfir hinn 74 ára gamla Giuliano
Amato, sem hefur verið forsætisráðherra í tvígang. Letta þykir vera
fulltrúi nýrrar kynslóðar stjórnmálamanna en hann hefur þó verið lengi í
stjórnmálum. Árið 1998 varð hann yngsti ráðherra Ítalíu frá upphafi, 32ja
ára gamall, þegar hann var gerður að Evrópumálaráðherra. Hann gegndi
síðar öðrum ráðherraembættum en settist á þing fyrir Lýðræðisflokkinn
árið 2008. Hann er bróðursonur Giannis Letta, sem hefur verið starfs-
mannastjóri Berlusconis í áratug.
➜ Hver er Enrico Letta? Staðan er
mjög erfið og
fordæmislaus
þar sem getur
brugðið til
beggja vona.
Enrico Letta, verðandi
forsætisráðherra Ítalíu
EINI MÖGULEIKINN Enrico Letta hefur verið
falið að mynda samsteypustjórn stóru flokk-
anna á Ítalíu. Þar hefur stjórnarkreppa ríkt í
um tvo mánuði.
NOREGUR Hægt hefði verið að
koma í veg fyrir þrettán dauðs-
föll og röð læknamistaka á
norska hátæknisjúkrahúsinu
Ahus, undir stjórn Huldu
Gunnars dóttur, síðustu tvö ár.
Hulda greinir frá sögu sinni
í Nýju lífi þar sem segir að hún
hafi beðið aðstandendur þeirra
sem létust afsökunar.
Undanfarin tvö ár hafa fréttir
af ástandi spítalans tröllriðið
norskum fjölmiðlum, en málið
hefur meðal annars orðið til þess
að norski heilbrigðisráðherrann
sagði af sér, auk tveggja stjórn-
enda spítalans.
Ahus var gert að þjóna 160.000
íbúum til viðbótar við rúmlega
320.000 sem hann þjónaði þegar.
- sv
Iðrast vegna dauðsfalla:
Hulda gengst
við mistökum
MIKIL GAGNRÝNI Á HULDU
Álagið á Ahus hefur sætt mikilli gagn-
rýni í Noregi undanfarin tvö ár og hefur
ráðherra sagt af sér vegna málsins.
FRÉTTABLAÐIÐI/ANTON