Fréttablaðið - 25.04.2013, Síða 22

Fréttablaðið - 25.04.2013, Síða 22
25. apríl 2013 FIMMTUDAGUR| FRÉTTIR NEYTENDUR | 22 Afnám stimpilgjalda af neytendalánum ■ Lækkar kostnað við lántöku og eykur hreyfanleika milli banka og þar með aukinni samkeppni á fjár- málamarkaði. Bann við innheimtu lántöku- gjalda umfram vexti af neyt- endalánum ■ Með lántökukostnaði er átt við þóknun og önnur gjöld sem neyt- andi þarf að greiða lánveitanda í tengslum við lánasamninginn. Uppgreiðslugjöld verði tak- mörkuð ■ Svo þau miði sannanlega við endurfjármögnunaráhættu lánveitanda. Vefsíða um fjármálamarkaðinn ■ Stofnuð verði vefsíða þar sem allar upplýsingar um fjármála- þjónustu eru veittar á skýran og aðgengilegan hátt. Fleiri tegundir húsnæðislána ■ Boðið verði upp á lán sem hækka ekki umfram umsamin mörk og áhætta dreifist milli lántaka og lánveitanda. Viðurlög við broti á neytenda- lögum verði hert ■ Stjórnvaldssektir skulu taka mið af veltu síðasta rekstrarárs líkt og í samkeppnis lögum. Sektir vegna neytendalagabrota hækki Meðal fl eiri tillagna nefndarinnar eru: Samkeppniseftirlitið og nýtt emb- ætti umboðsmanns neytenda á að taka starfsemi bankanna á hús- næðismarkaði til ítarlegrar skoð- unar. Samkeppni á bankamarkaði er ábótavant, sér í lagi á húsnæðis- markaðnum, og því skulu stjórn- völd beita sér fyrir rannsókninni. Þetta er hluti af tillögum nefndar á vegum forsætisráðuneytisins um bætta neytendavernd. Tillögurnar eru margar og róttækar. Ein þeirra er að búa til nýtt embætti Umboðsmanns neytenda með sameiningu Neyt- endastofu og talsmanns neytenda, sem verði þá lögð niður í núver- andi mynd. Nýtt embætti taki við skyldum þeirra og bæti við sig verkefnum sem nú er sinnt af Fjármálaeftirlitinu og snúa að neyt- endamálum. Umboðsmaðurinn ætti þá að hafa svipuð völd eins og tíðk- ast á Norður löndunum. - sv Vilja styrkja málefni neytenda með nýju embætti: Leggja til allsherjar- rannsókn á bönkum SAMKEPPNI SEM SKAL SKOÐA Nefnd um neytendavernd vill allsherjarrannsókn innan bankanna á starfsemi húsnæðismarkaðarins. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM Þær verslanir sem banna stofn- unum á borð við ASÍ að gera verðkannanir í búðum sínum hafa eitthvað að fela. Þetta er skoðun Neytendasamtakanna sem birt- ist á heimasíðu þeirra í gær. Þar undirstrika Neytendasamtökin mikilvægi verðkannana og hvetja hlutaðeigandi aðila til að ná sátt um þær en leggja áherslu á að þær séu gerðar á forsendum neyt- enda enda gerðar í þeirra þágu. „Í fyrsta lagi veita verðkann- anir neytendum upplýsingar um verð í verslunum, verðþróun hjá hverri fyrir sig og verðmun milli þeirra. Í öðru lagi veita þær verslunum aðhald við verðlagn- ingu. Það er því afar mikilvægt að slíkar kannanir séu gerðar og nái til allra verslana,“ segja sam- tökin. Verslarnir banna eftirlit: Hafa allar eitt- hvað að fela BANNAÐI VERÐKÖNNUN Jón Gerald Sullenberger, eigandi Kosts, kallaði lög- reglu til þegar ASÍ hugðist kanna verð. Kostnaður tuga ef ekki hundraða þúsunda Íslendinga vegna lyfja- kaupa mun taka breytingum hinn 4. maí næstkomandi þegar nýtt greiðsluþátttökukerfi Sjúkra- trygginga Íslands (SÍ) tekur gildi. Í stuttu máli má segja að breyting- arnar valdi því að kostnaður þeirra sem kaupa hlutfallslega mikið af lyfjum lækkar en kostnaður þeirra sem kaupa hlutfallslega lítið af lyfj- um hækkar. Þá hættir SÍ að greiða að fullu niður svokölluð stjörnu- merkt lyf, en þeirra á meðal eru glákulyf, sykursýkislyf og krabba- meinslyf. Nýja kerfið byggir á lögum sem Alþingi samþykkti í fyrra. Mark- mið þeirra var að auka jafnræði milli lyfjakaupenda og tryggja að lyfjakostnaður lækkaði hjá þeim sem nota mest af lyfjum. Kostnað- ur SÍ vegna greiðsluþátttöku í lyfja- kaupum breytist lítið sem ekkert við breytingarnar en kostnaður ýmissa hópa lyfjakaupenda breytist. Nýja kerfið byggir á þrepaskiptri greiðsluþátttöku SÍ þar sem lyfja- kaupandi greiðir hlutfallslega minna eftir því sem lyfjakostnaður hans eykst á hverju tólf mánaða tímabili. Í fyrsta þrepi greiðir hann lyf að fullu, í öðru þrepi greiðir hann 15% af verði lyfja og í þriðja þrepi greið- ir hann 7,5%. Þá er sett þak á lyfja- kostnað einstaklinga á tímabilinu Lyfjakostnaður flestra breytist Sjúkratryggingar Íslands taka í byrjun maí í notkun nýtt greiðsluþátttökukerfi vegna lyfjakaupa. Kostnaður flestra Íslendinga vegna lyfjakaupa tekur breytingum í kjölfarið. Sumir greiða minna en áður en aðrir meira. Einstaklingur með fulla niður- greiðslu í gamla kerfinu sem mun taka þátt í kostnaði við lyf í því nýja, í þessu tilfelli sykursýkislyf Málþing Samtaka um söguferðaþjónustu (SSF) í samvinnu við Íslandsstofu. Að þessu sinni fjalla Söguslóðir um leikræna túlkun sögunnar í ferðaþjónustu bæði í London og hér heima á Íslandi. Málþingsstjóri er Sigríður Margrét Guðmundsdóttir Þinggjald 2.000 kr Fyrir nemendur og félaga í SSF 1.000 kr. skráning á info@sagatrail.is www.sagatrail.is 13.00 Ávarp Rögnvaldur Guðmundsson, formaður SSF. 13.10 Samstarf Íslandsstofu og Samtaka um söguferðaþjónustu Kristjana Rós Guðjohnsen, verkefnisstjóri hjá Íslandsstofu. 13.25 Tales from my life of adventure Sögur af mínu ævintýralega lífi Sir Otto de Grandson, riddari í hirð Edwards I Englandskonungs árið 1285. 13.40 „Líf í tuskunum“ - leikræn leiðsögn á Árbæjarsafni Guðbrandur Benediktsson og Helga Maureen Gylfadóttir, sagnfræðingar. 14.00 Sprelllifandi miðaldir Skúli Gautason, umsjónarmaður Miðaldadaga á Gásum við Eyjafjörð. 14.20 Kaffi og með því 15.00 „Að virkja fortíðina, .. skiptir það máli?“ Vala Garðarsdóttir, fornleifafræðingur og handritshöfundur. 15.20 Emotional Engagement with the Past: exploring the story of how monarchs and people shaped society at the Tower of London and Hampton Court Palace. Hrífandi stefnumót við fortíðina: könnun á sögu konunga og fólks er mótuðu samfélagið í Lundúnaturni og Hampton höll. Christopher Gidlow, framkvæmdatjóri leikrænnar túlkunar við Historic Royal Palace í London. 15.50 „Að leika sitt eigið þjóðlíf“ Elfar Logi Hannesson, Kómedíuleikhúsinu. 16.20 Samantekt Skúli Björn Gunnarsson, Skriðuklaustri. LEIKRÆN TÚLKUN SÖGUNNAR DAGSKRÁ: Rögnvaldur Guðmundsson Kristjana Rós Guðjohnsen Sir Otto de Grandson Guðbrandur Benediktsson Helga Maureen Gylfadóttir Skúli Gautason Vala Garðarsdóttir Christopher Gidlow Elfar Logi Hannesson Skúli Björn Gunnarsson Sigríður Margrét Guðmundsdóttir S A M T Ö K UM S Ö G U F E R ‹AÞJÓ N U S T U Þjóðmenningarhúsinu, 26. apríl kl. 13:00-16:30 sem hefst við fyrstu lyfjakaup eftir að kerfið tekur gildi. Fyrir vikið munu þeir sem greiða mikið fyrir lyf njóta góðs af breyt- ingunum. Margir munu þó þurfa að greiða meira en áður og þar af sér- staklega tveir hópar. Annars vegar þeir sem greiða lítið fyrir lyf á ári. Þeir sem verja undir 24.074 krónum í lyf á ári fá þannig enga niðurgreiðslu en upphæðin er að vísu lægri fyrir börn, unglinga og lífeyrisþega. Hins vegar mun nokkur hluti þeirra ríflega 30 þúsund lyfjakaup- enda sem notað hafa stjörnumerkt lyf en slík lyf hafa verið að fullu niðurgreidd af SÍ. Framvegis þurfa notendur þessara lyfja að taka þátt í kostnaði þeirra og mun kostnaður þessara einstaklinga því í mörgum tilfellum aukast. Nálgast má upplýsingar um hvernig lyfjakostnaður hvers og eins breytist á vefsíðu SÍ. magnusl@frettabladid.is Númer lyfjakaupa á tímabili Kostnaður í gamla kerfinu Kostnaður í nýja kerfinu Nr. 1 22.413 kr. 26.583 kr. Nr. 2 22.413 kr. 6.119 kr. Nr. 3 22.413 kr. 4.163 kr. Nr. 4 22.413 kr. 3.060 kr. Samtals 89.652 kr. 39.925 kr. Númer lyfjakaupa á tímabili Kostnaður í gamla kerfinu Kostnaður í nýja kerfinu Nr. 1 4.600 kr. 22.316 kr. Nr. 2 4.600 kr. 4.843 kr. Nr. 3 4.600 kr. 3.347 kr. Nr. 4 4.600 kr. 3.347 kr. Samtals 18.400 kr. 33.853 kr. Númer lyfjakaupa á tímabili Kostnaður í gamla kerfinu Kostnaður í nýja kerfinu Nr. 1 0 kr. 31.171 kr. Nr. 2 0 kr. 7.223 kr. Nr. 3 0 kr. 5.354 kr. Nr. 4 0 kr. 5.354 kr. Samtals 0 kr. 49.102 kr. Dæmi um áhrif breytinganna LYF Markmið breytinganna er að létta byrðar þeirra sem greiða mikið fyrir lyf og auka jafnræði milli lyfjanotenda. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR Einstaklingur sem greiðir mikið fyrir lyf, í þessu tilfelli fyrir sykursýkislyf, blóð- þrýstingslyf og astmalyf Einstaklingur sem greiðir lítið fyrir lyf, í þessu tilfelli fyrir blóðþrýstingslyf
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.