Fréttablaðið - 25.04.2013, Qupperneq 24
25. apríl 2013 FIMMTUDAGUR| FRÉTTIR VIÐSKIPTI | 24
Önnur áætlun liggur fyrir gangi ekki
að taka hér upp evru. Þetta kom fram
í máli Árna Páls Árnasonar, formanns
Samfylkingarinnar, með formönnum
stærstu flokka á fundi VÍB og Kaup-
hallarinnar í Hörpu á þriðjudag.
„Við verðum þá að leggja enn meiri
áherslu á afgang af ríkisútgjöldum, vera
með enn lægra raungengi til að hafa
raunverulegan afgang á utanríkisvið-
skiptum til að greiða niður skuldir og
þar af leiðandi lakari lífskjör og minni
afgang til velferðarmála,“ sagði hann.
„Hægt er að reka Ísland til langframa
með krónu, en því fylgir kostnaður sem
ekki er hægt að horfa fram hjá.“ - óká
Segir aðra áætlun liggja fyrir verði hér ekki tekin upp evra:
Krónunni fylgir kostnaðarauki
Á FUNDI Árni Páll segir Fram-
sóknar- og Sjálfstæðisflokk skorta
framtíðarsýn í peningamálum.
FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Hagnaður Össurar á fyrsta ársfjórð-
ungi dregst saman um rúmlega 41
prósent miðað við sama ársfjórðung
í fyrra. Í nýbirtu uppgjöri kemur
fram að hagnaður fjórðungsins í ár
sé tæplega 5,8 milljónir Bandaríkja-
dala. Á sama tíma í fyrra nam hagn-
aðurinn 9,8 milljónum dala.
Heildarsala fyrirtækisins nam
97,1 milljón dala samanborið við
99,8 milljónir á fyrsta fjórðungi
2012. Samdráttur milli ára nemur
þremur prósentum.
„Fyrsti ársfjórðungur hefur verið
erfiður,“ segir Jón Sigurðsson, for-
stjóri Össurar, í tilkynningu félags-
ins. „Breytingar á endurgreiðslu-
kerfinu í Bandaríkjunum hafa haft
meiri áhrif en við gerðum ráð fyrir
og mun áhrifanna gæta út þetta ár.
Við höfum gert viðeigandi ráðstaf-
anir en það mun taka nokkurn tíma
að aðlagast breyttum aðstæðum.“
- óká
Fyrsti fjórðungur ársins hefur verið stoðtækjafyrirtækinu Össuri erfiður:
Hagnaður dregst mikið saman
Liður F1 2013 F1 2012 Breyting
Heildarsala 97,1 99,8 - 2,7%
Framlegð 60,0 62,0 -3,2%
EBITDA 13,5 17,8 -24,2%
Hagnaður 5,8 9,8 -41,1%
*Allar tölur eru í milljónum Bandaríkjadala. Heimild: Árshlutauppgjör Össurar
UPPGJÖR 1. ÁRSFJÓRÐUNGS HJÁ ÖSSURI*
Miðaverð er 3.900 kr. Miðasala fer fram á Miði.is, Harpa.is, í miðasölu Hörpu og í síma 528-5050.
TRYGGÐU ÞÉR MIÐA STRAX Í DAG!
#laddilengirlifid
„Laddi e
r engum
líkur
...Hann
er þjóða
rgersem
i.“
Pressan
.is
„Stórko
stleg sý
ning!“
- Heimir
Karlsso
n, Bylgja
n
„Spreng
hlægile
g sýning
fyrir all
an aldur
!“
- Sirrý, R
ás 2
EINLEIKIN GAMANSEMI Í HÖRPU
EFTIR KARL ÁGÚST, LADDA OG SIGGA SIGURJÓNS
Opnunarverð hlutabréfa Vátrygg-
ingafélags Íslands (VÍS), þegar
þau voru tekin til viðskipta í Nas-
daq OMX Kauphöll Íslands í gær-
morgun, var 9,15 krónur á hlut, 15,1
prósenti yfir 7,95 króna útboðs-
gengi félagsins. Við lokun markað-
ar í gær hafði gengi bréfa félagsins
svo hækkað enn, í 9,22 krónur á hlut,
eða um 16 prósent frá útboði.
Heildarupphæð viðskipta með
bréf VÍS á fyrsta degi í Kauphöll-
inni var 1.465 milljónir króna, en
alls skiptu rúmlega 166 milljónir
hluta um hendur í 194 viðskiptum.
Páll Harðarson, forstjóri Kaup-
hallarinnar, sagði fyrir opnun mark-
aðar í gær að fagnaðarefni væri að
fá jafnglæsilegt félag á markað.
Hann sagði skráningarferli félags-
ins allt hafa gengið afskaplega vel
og kvað um leið ýmislegt markvert
við skráningu VÍS í Kauphöllina.
„Það fyrsta sem ástæða er til að
benda á er sá mikli fjöldi sem þátt
tók í útboði félagsins og ber vott um
mikinn áhuga á því,“ sagði Páll og
benti á að núna væri ekkert annað
félag sem skráð er í kauphöll með
jafnmarga hluthafa og VÍS.
Þá benti Páll á að útboð VÍS til
skráningar í Kauphöllina væri með
þeim stærstu sem fram hafi farið
frá aldamótum. „Í samhengi hlut-
anna var þetta mjög stórt útboð og
gekk afskaplega vel,“ sagði hann.
Um leið vakti Páll athygli á
þeim tímamótum sem í því fælust
að Sigrún Ragna Ólafsdóttir, for-
stjóri VÍS, væri nú í fyrsta konan
um langt árabil sem stýrir skráðu
félagi hér á landi. „Og ég er ein-
dregið þeirrar skoðunar að meira
jafnvægi í kynjahlutföllum stuðli
að aukinni fagmennsku í íslensku
atvinnulífi.“
Sigrún Ragna sagði skráninguna
mikil tímamót fyrir félag eins og
VÍS. „Útboðið gekk vel og við erum
gríðarlega stolt af þessum mikla
áhuga sem kom fram í útboðinu og
því mikla trausti og trú sem fjár-
festar hafa á framtíðahorfum og
stöðu VÍS. Við gerum það sem í
okkar valdi stendur til að standa
undir því trausti,“ sagði hún eftir
að bréf félagsins voru tekin til við-
skipta í gær.
Arion banki hafði umsjón með
skráningu VÍS í Kauphöllina og
rekur viðskiptavakt með bréf
félagsins, ásamt Landsbankanum.
Tvær tilkynningar um eignar-
hlut bárust Kauphöllinni í gær.
Önnur var vegna eignarhlutar
Hagamels ehf., félags Hallbjörns
Karlssonar og Árna Haukssonar,
upp á 9,9 prósent. Hin var vegna
rúmlega 6,6 prósenta eignarhlutar
Arion banka. olikr@frettabladid.is
VÍS er með
flesta hluthafa
Verð hlutabréfa VÍS hækkaði um 16 prósent frá útboðs-
gengi á fyrsta degi viðskipta í gær. Markverð skráning
fyrir margra hluta sakir, segir forstjóri Kauphallar-
innar. Félagið er með flesta hluthafa skráðra félaga.
VIÐ OPNUN MARKAÐAR Sigrún Ragna Ólafsdóttir, forstjóri VÍS, hringir kauphallar-
bjöllunni við upphaf viðskipta klukkan hálftíu í gærmorgun. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Vátryggingafélags Íslands hf. (VÍS),
sem tekið var í gær til viðskipta á
aðalmarkaði NASDAQ OMX Iceland
kauphallarinnar, tilheyrir fjármála-
geiranum og flokkast sem lítið
félag (e. small cap). VÍS er annað fé-
lagið sem skráð er á NASDAQ OMX
Nordic markaðinn á árinu og það
fyrsta í Kauphöllina íslensku. „Það
er einnig fyrsta tryggingafélagið á
íslenska markaðnum. Viðskipti með
VÍS verða undir auðkenninu VIS,“
segir í tilkynningu Kauphallarinnar.
VÍS er leiðandi á sviði vátrygginga á Íslandi og var stofnað í febrúar 1989
við samruna Samvinnutrygginga og Brunabótafélags Íslands.
Fyrsta tryggingafélagið á markað
BOÐIN VELKOMIN Páll Harðarson
og Sigrún Ragna Ólafsdóttir handsala
skráningu VÍS á markað. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI