Fréttablaðið - 25.04.2013, Síða 27
FIMMTUDAGUR 25. apríl 2013 | SKOÐUN | 27
Kjördagur býður upp á nýtt upphaf.
Sumir segja þetta ofmetna fullyrðingu.
Aðrir telja að Alþingi og stjórnmálamenn
séu alveg búnir að týna jarðtengingunni.
Samt upplifa flestir að atkvæði þeirra
skipti miklu máli og að við kosningar lok-
ist kaflar og ný tækifæri bjóðist.
Íslendingar, eins og flestar þjóðir, eru
hugsi yfir því hvernig ákvarðanir stjórn-
mála og stjórnvalda geti endurspeglað
hag almennings betur. Lýðræðið gegnir
lykilhlutverki og flestir vilja sjá fjöl-
breyttari leiðir með þátttöku almennings
við ákvarðanatöku, t.d. með aukinni upp-
lýsingatækni. Hvernig aukin lýðræðis-
leg þátttaka er útfærð, er í höndum
stjórnmála manna. Traust til stjórnmála-
manna hefur þó aldrei mælst lægra á
Íslandi. Þessi mótsögn er eitt mikilvæg-
asta verkefni næsta þings. Stjórnmála-
menn þurfa ekki einungis að endurvinna
eigið traust heldur verða þingmenn og
sveitarstjórnarmenn að sýna í verki að
þeir kunni að hlusta. Þeir þurfa að sýna
að þeir taki ábendingar og gagnrýni til
greina við ákvarðanatöku og lagagerð.
Aukið samráð flokka
Aukið traust á verkum stjórnmálamanna
felst þó ekki einungis í að þátttaka
almennings við ákvarðanatöku verði
aukin. Íbúar þessa lands vilja nefnilega
líka trúa því að fulltrúalýðræði á þingi
geti skilað því að flokkar nái að semja sín
á milli um mikilvægustu málefnin. Að
minnsta kosti eins langt og það nær. Að
samtal, samræður og samningar séu eðli-
legur hluti af þingstörfum, miklu frekar
en uppsetning á hálfgerðum leikritum
og töf mála sem landsmenn eru orðnir
dauðleiðir á. Traust á þinginu eykst þegar
þingmenn sýna í verki að ríkisstjórnir og
stjórnmálaflokkar geti horft lengra fram
í tímann og unnið með stefnumarkandi
ákvarðanir sem taka á mikilvægustu
verkefnunum. Vantraustið endurspeglast
þannig í því að Alþingi nær ekki sátt um
stórar, stefnumarkandi ákvarðanir.
Eins og tekið er skýrt fram í skýrslu
McKinsey um framtíð Íslands verður
framtíðaruppbygging efnahagskerfis
ómarkviss með öllu nema þing flokkar
geti sameinast um viss grundvallar-
sjónarmið. Þetta á ekki bara við um
Ísland heldur hvaða land sem er. Það
er okkur sem þjóð bráðnauðsynlegt að
þingið læri af nágrönnum okkar í þessum
efnum. Danskir stjórnmálaflokkar hafa
t.a.m. í yfir tuttugu ár samið um stefnu-
mótandi ákvarðanir áður en ný laga-
frumvörp eru lögð fram. Þannig eru
langtíma ákvarðanir best teknar.
Áskorun til formanna
Hvernig sem atkvæði falla á laugardag-
inn er ljóst að ný kynslóð formanna tekur
við stjórn landsins. Kjósendur krefjast
þess nú þegar algjör endurnýjun hefur
átt sér stað í forystu flokka að þeir taki
upp ný vinnubrögð sem endurspegla
meiri sátt og meiri langtímasýn fyrir
Ísland. Það er mikil áskorun til þing-
manna að sýna fram á að kynslóða skiptin
sjáist í verki. Kjósendur líta margir á
þetta fólk sem mikilvægustu forsendu
þess að hægt verði að endurreisa traust á
Alþingi.
Næstu ríkisstjórnarflokkar verða að
vinna markvisst með þeim flokkum sem
ekki taka við lyklum ráðuneyta og sýna
þannig kjósendum að starfað verði náið
með minnihluta Alþingis að hagsmuna-
málum þjóðarinnar og framtíðarsýn
landsins. Allir kjörnir þingmenn sitja
á þingi með það sameiginlega markmið
að standa vörð um hag þjóðarinnar og
byggja upp betri framtíð fyrir okkar auð-
uga land.
Að sjálfsögðu hafa stjórnmála flokkar
ólíkar áherslur á sama hátt og lands-
menn hafa mismunandi skoðanir á hlut-
unum. Alþingi er hins vegar rúið trausti
einmitt af því að ekki eru gerðar neinar
alvöru tilraunir til þess að ná sátt í
stórum málum. Vinnubrögðin felast, ólíkt
því sem þekkist í Danmörku, fremur í
að nokkuð ítarlega unnin frumvörp eru
lögð fram sem skapa strax ágreining um
heildarmyndina. Þegar markmiðin eru
sambærileg hjá flokkum á þingi, eins og
t.d. að hjálpa verði heimilum í miklum
skuldavanda, þá á klárlega að vera ger-
legt að ræða hugmyndir allra stjórnmála-
afla og vinna sameiginlega að settu
marki. Slík vinnubrögð myndu örugglega
skila okkur mun betri stefnumörkun og
ákvörðunum til lengri tíma.
Meira traust
Fyrir fjórum árum varð búsáhalda-
bylting á Íslandi. Fólkið í landinu kallaði
á breytt vinnubrögð. Við síðustu kosn-
ingar varð töluverð endurnýjun í hópi
þingmanna en vinnubrögðin breyttust
lítið og margir myndu segja að þau hafi
hreinlega versnað. Enn standa stór mál
eftir óleyst og þingmenn virðast ekki
hafa skynjað að kallað var eftir breyttum
vinnubrögðum sem fela í sér að átök
verði lögð til hliðar. Það væri skilvirkasta
leiðin til að byggja upp traust á Alþingi
að nýju en á laugardaginn gefst tilvalið
tækifæri fyrir nýkjörna þingmenn að
hefja þá vegferð.
Ný kynslóð
Þó óljóst sé hvernig atkvæði
falla á kjördag er ljóst að ný
kynslóð formanna tekur við stjórn
landsins.
Í DAG
Þorbjörg Helga
Vigfúsdóttir
borgarfulltrúi
FYRIR FÓLKIÐ Í LANDINU
GLEÐILEGT SUMAR
Árni Þór Sigurðsson flytur ávarp.
Jonas Sjöstedt, formaður Vänsterpartiet í Svíþjóð, flytur ávarp.
Félagar úr Lúðrasveit Verkalýðsins blása
í lúðra og fagna sumri með okkur.
Ukulele band VG flytur frumsamin lög.
Djasskvartettinn Ferlíki og Jón Svavar.
DAGSKRÁ FRÁ KL. 14-16
FAGNAÐU SUMRI MEÐ VG
GÓMSÆTAR
VEITINGAR
HOPPUKASTALI,
ANDLITSMÁLUN,
BLÖÐRUFÖNDUR
OG CANDY FLOSS
Komdu fagnandi í kosningamiðstöðina okkar að Borgartúni 16
HLÖKKUM TIL
AÐ SJÁ ÞIG!
ALLIR
VELKOMNIR
Lýðskrum
Þegar allt kemur til alls, og efnahags-
tillögur Framsóknar og Sjálfstæðisflokks-
ins eru skoðaðar er ekki hægt að komast
að annarri niðurstöðu en þessari: Þetta er
lýðskrum. Á þeim grunni verður ný helm-
ingaskiptastjórn mynduð næstu helgi,
rétt örfáum árum eftir hrun. Eða eins og
maðurinn sagði, Guð blessi Ísland.
http://www. http://blog.pressan.is/gauti/
Gauti B. Eggertsson
Sniðgöngum Kaffi París
Kaffihús sem vill ekki AA-fólk inn á gafl
hjá sér getur farið þangað sem sólin skín
ekki. Ég hef oft komið inn á Kaffi París en
ég mun ekki stíga fæti þangað inn framar
og hvet ég alla, AA-fólk sem aðra kaffi-
þyrsta að fara eitthvað annað. Til dæmis
eru kaffihús í nágrenninu sem taka á
móti AA-fólki sem og virkum alkóhól-
istum, hommum, lesbíum, feitum, litlum,
stórum, rauðhærðum, dökkhærðum og
börnum í fylgd með fullorðnum.
http://www.pressan.is/pressupennar/
BubbiMorthens
Bubbi Morthens
Ófærð á Íslandi?
Okkur er tamt að hlæja að Bretum,
Frökkum og öðrum þjóðum í Evrópu,
þegar þeir segja fréttir og sýna myndir
af því, sem við myndum kalla snjóföl og
tala um gríðarlegar samgöngutruflanir
og ófærð. Því er fyndið að sjá talað um
það í innanlandsfréttum í morgun og
í dag að snjó hafi „kyngt niður“, þótt
nokkurra sentemetra þykkt snjólag settist
á götur og gangstéttir á höfuðborgar-
svæðinu í rúma klukkustund í morgun og
heyra síðan stanslausar fréttir fram eftir
morgni um hina miklu „ófærð“ sem hefði
skapast svo að helstu leiðir væru torfærar
eða lokaðar vegna snjóþyngsla.
http://omarragnarsson.blog.is/blog/
Ómar Ragnarsson
AF NETINU