Fréttablaðið


Fréttablaðið - 25.04.2013, Qupperneq 27

Fréttablaðið - 25.04.2013, Qupperneq 27
FIMMTUDAGUR 25. apríl 2013 | SKOÐUN | 27 Kjördagur býður upp á nýtt upphaf. Sumir segja þetta ofmetna fullyrðingu. Aðrir telja að Alþingi og stjórnmálamenn séu alveg búnir að týna jarðtengingunni. Samt upplifa flestir að atkvæði þeirra skipti miklu máli og að við kosningar lok- ist kaflar og ný tækifæri bjóðist. Íslendingar, eins og flestar þjóðir, eru hugsi yfir því hvernig ákvarðanir stjórn- mála og stjórnvalda geti endurspeglað hag almennings betur. Lýðræðið gegnir lykilhlutverki og flestir vilja sjá fjöl- breyttari leiðir með þátttöku almennings við ákvarðanatöku, t.d. með aukinni upp- lýsingatækni. Hvernig aukin lýðræðis- leg þátttaka er útfærð, er í höndum stjórnmála manna. Traust til stjórnmála- manna hefur þó aldrei mælst lægra á Íslandi. Þessi mótsögn er eitt mikilvæg- asta verkefni næsta þings. Stjórnmála- menn þurfa ekki einungis að endurvinna eigið traust heldur verða þingmenn og sveitarstjórnarmenn að sýna í verki að þeir kunni að hlusta. Þeir þurfa að sýna að þeir taki ábendingar og gagnrýni til greina við ákvarðanatöku og lagagerð. Aukið samráð flokka Aukið traust á verkum stjórnmálamanna felst þó ekki einungis í að þátttaka almennings við ákvarðanatöku verði aukin. Íbúar þessa lands vilja nefnilega líka trúa því að fulltrúalýðræði á þingi geti skilað því að flokkar nái að semja sín á milli um mikilvægustu málefnin. Að minnsta kosti eins langt og það nær. Að samtal, samræður og samningar séu eðli- legur hluti af þingstörfum, miklu frekar en uppsetning á hálfgerðum leikritum og töf mála sem landsmenn eru orðnir dauðleiðir á. Traust á þinginu eykst þegar þingmenn sýna í verki að ríkisstjórnir og stjórnmálaflokkar geti horft lengra fram í tímann og unnið með stefnumarkandi ákvarðanir sem taka á mikilvægustu verkefnunum. Vantraustið endurspeglast þannig í því að Alþingi nær ekki sátt um stórar, stefnumarkandi ákvarðanir. Eins og tekið er skýrt fram í skýrslu McKinsey um framtíð Íslands verður framtíðaruppbygging efnahagskerfis ómarkviss með öllu nema þing flokkar geti sameinast um viss grundvallar- sjónarmið. Þetta á ekki bara við um Ísland heldur hvaða land sem er. Það er okkur sem þjóð bráðnauðsynlegt að þingið læri af nágrönnum okkar í þessum efnum. Danskir stjórnmálaflokkar hafa t.a.m. í yfir tuttugu ár samið um stefnu- mótandi ákvarðanir áður en ný laga- frumvörp eru lögð fram. Þannig eru langtíma ákvarðanir best teknar. Áskorun til formanna Hvernig sem atkvæði falla á laugardag- inn er ljóst að ný kynslóð formanna tekur við stjórn landsins. Kjósendur krefjast þess nú þegar algjör endurnýjun hefur átt sér stað í forystu flokka að þeir taki upp ný vinnubrögð sem endurspegla meiri sátt og meiri langtímasýn fyrir Ísland. Það er mikil áskorun til þing- manna að sýna fram á að kynslóða skiptin sjáist í verki. Kjósendur líta margir á þetta fólk sem mikilvægustu forsendu þess að hægt verði að endurreisa traust á Alþingi. Næstu ríkisstjórnarflokkar verða að vinna markvisst með þeim flokkum sem ekki taka við lyklum ráðuneyta og sýna þannig kjósendum að starfað verði náið með minnihluta Alþingis að hagsmuna- málum þjóðarinnar og framtíðarsýn landsins. Allir kjörnir þingmenn sitja á þingi með það sameiginlega markmið að standa vörð um hag þjóðarinnar og byggja upp betri framtíð fyrir okkar auð- uga land. Að sjálfsögðu hafa stjórnmála flokkar ólíkar áherslur á sama hátt og lands- menn hafa mismunandi skoðanir á hlut- unum. Alþingi er hins vegar rúið trausti einmitt af því að ekki eru gerðar neinar alvöru tilraunir til þess að ná sátt í stórum málum. Vinnubrögðin felast, ólíkt því sem þekkist í Danmörku, fremur í að nokkuð ítarlega unnin frumvörp eru lögð fram sem skapa strax ágreining um heildarmyndina. Þegar markmiðin eru sambærileg hjá flokkum á þingi, eins og t.d. að hjálpa verði heimilum í miklum skuldavanda, þá á klárlega að vera ger- legt að ræða hugmyndir allra stjórnmála- afla og vinna sameiginlega að settu marki. Slík vinnubrögð myndu örugglega skila okkur mun betri stefnumörkun og ákvörðunum til lengri tíma. Meira traust Fyrir fjórum árum varð búsáhalda- bylting á Íslandi. Fólkið í landinu kallaði á breytt vinnubrögð. Við síðustu kosn- ingar varð töluverð endurnýjun í hópi þingmanna en vinnubrögðin breyttust lítið og margir myndu segja að þau hafi hreinlega versnað. Enn standa stór mál eftir óleyst og þingmenn virðast ekki hafa skynjað að kallað var eftir breyttum vinnubrögðum sem fela í sér að átök verði lögð til hliðar. Það væri skilvirkasta leiðin til að byggja upp traust á Alþingi að nýju en á laugardaginn gefst tilvalið tækifæri fyrir nýkjörna þingmenn að hefja þá vegferð. Ný kynslóð Þó óljóst sé hvernig atkvæði falla á kjördag er ljóst að ný kynslóð formanna tekur við stjórn landsins. Í DAG Þorbjörg Helga Vigfúsdóttir borgarfulltrúi FYRIR FÓLKIÐ Í LANDINU GLEÐILEGT SUMAR Árni Þór Sigurðsson flytur ávarp. Jonas Sjöstedt, formaður Vänsterpartiet í Svíþjóð, flytur ávarp. Félagar úr Lúðrasveit Verkalýðsins blása í lúðra og fagna sumri með okkur. Ukulele band VG flytur frumsamin lög. Djasskvartettinn Ferlíki og Jón Svavar. DAGSKRÁ FRÁ KL. 14-16 FAGNAÐU SUMRI MEÐ VG GÓMSÆTAR VEITINGAR HOPPUKASTALI, ANDLITSMÁLUN, BLÖÐRUFÖNDUR OG CANDY FLOSS Komdu fagnandi í kosningamiðstöðina okkar að Borgartúni 16 HLÖKKUM TIL AÐ SJÁ ÞIG! ALLIR VELKOMNIR Lýðskrum Þegar allt kemur til alls, og efnahags- tillögur Framsóknar og Sjálfstæðisflokks- ins eru skoðaðar er ekki hægt að komast að annarri niðurstöðu en þessari: Þetta er lýðskrum. Á þeim grunni verður ný helm- ingaskiptastjórn mynduð næstu helgi, rétt örfáum árum eftir hrun. Eða eins og maðurinn sagði, Guð blessi Ísland. http://www. http://blog.pressan.is/gauti/ Gauti B. Eggertsson Sniðgöngum Kaffi París Kaffihús sem vill ekki AA-fólk inn á gafl hjá sér getur farið þangað sem sólin skín ekki. Ég hef oft komið inn á Kaffi París en ég mun ekki stíga fæti þangað inn framar og hvet ég alla, AA-fólk sem aðra kaffi- þyrsta að fara eitthvað annað. Til dæmis eru kaffihús í nágrenninu sem taka á móti AA-fólki sem og virkum alkóhól- istum, hommum, lesbíum, feitum, litlum, stórum, rauðhærðum, dökkhærðum og börnum í fylgd með fullorðnum. http://www.pressan.is/pressupennar/ BubbiMorthens Bubbi Morthens Ófærð á Íslandi? Okkur er tamt að hlæja að Bretum, Frökkum og öðrum þjóðum í Evrópu, þegar þeir segja fréttir og sýna myndir af því, sem við myndum kalla snjóföl og tala um gríðarlegar samgöngutruflanir og ófærð. Því er fyndið að sjá talað um það í innanlandsfréttum í morgun og í dag að snjó hafi „kyngt niður“, þótt nokkurra sentemetra þykkt snjólag settist á götur og gangstéttir á höfuðborgar- svæðinu í rúma klukkustund í morgun og heyra síðan stanslausar fréttir fram eftir morgni um hina miklu „ófærð“ sem hefði skapast svo að helstu leiðir væru torfærar eða lokaðar vegna snjóþyngsla. http://omarragnarsson.blog.is/blog/ Ómar Ragnarsson AF NETINU
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.