Fréttablaðið - 25.04.2013, Side 34
25. apríl 2013 FIMMTUDAGUR| SKOÐUN | 34
Verðtryggða húsnæðis-
lánið mitt hefur hækkað
um 350.000 krónur á 28
dögum. Takk fyrir mig.
Staðan er svipuð og jafn-
vel mun verri hjá þús-
undum annarra heimila.
Mánaðamótin eru orðin
tími skelfingar hjá íbúðar-
eigendum, enda stjórnar
vísitala neysluverðs lífi
þeirra. Þetta er eins og að
vera sífellt í rússneskri
rúllettu. Allt að helm-
ingur íslenskra heimila
er tæknilega gjaldþrota.
Við erum að tala um tugþúsundir
heimila. Þeim fjölgar sífellt, mið-
stéttin er að hverfa og þúsund-
ir Íslendinga sjá fram á skulda-
ánauð í framtíðinni. Takk fyrir
skjaldborgina, kæru stjórnvöld.
Takk, þið fastapennar blaðanna og
netmiðla sem sjáið Ísland breyt-
ast í eyðimörk nema verðtrygg-
ing húsnæðislána fái að haldast.
Takk fyrir hina farsælu efnahags-
stjórn sem hefur leitt til stöðug-
leika í efnahagsmálum, eða hitt þó
heldur. Og svo þarf alveg sérstak-
lega að þakka þeim sem sjá enga
aðra lausn en að afsala Evrópu-
sambandinu fullveldi þjóðarinn-
ar – enda erum við auðvitað full-
komlega ófær um að sjá um okkur
sjálf. Svo er þetta allt krónunni að
kenna, enda er hún ekkert annað
en verkfæri djöfulsins. Lifir sjálf-
stæðu lífi og hefur það eina mark-
mið að ganga frá heimilum lands-
ins og skapa verðbólgu. Auðvitað
er það henni að kenna að verð-
tryggð lán heimila landsins hafa
hækkað um 23 milljarða króna á
einum mánuði. Það hefur
ekkert að gera með skelfi-
lega hagstjórn. Eða hvað?
Stjórnarflokkarn-
ir þegja þunnu hljóði,
enda fullkomið ráðaleysi
þegar kemur að skuldum
heimilanna. Minni spá-
menn þessara flokka tala
áfram um nauðsyn þess
að viðhalda verðtrygg-
ingu, enda megi annars
fastlega búast við ragna-
rökum. Sjálfstæðismenn
hvetja til minna vægis
verðtryggingar. Á manna-
máli þýðir það að flokkurinn ætlar
ekki að hrófla við henni.
Hagnaður bankanna
Á sama tíma birtast fréttir af
góðum hagnaði bankanna, sem er
fenginn með peningaprentun sem
á sér enga stoð í veruleikanum.
Peningaprentun sem leiðir ein-
ungis til meiri þenslu og verð-
bólgu. Laun bankastjóranna hafa
tekið stökk á undanförnum tveim-
ur árum og að óbreyttu verður
stemningin í bankakerfinu fljót-
lega orðin meiri en nokkru sinni
fyrr – bíðum bara í tvö til þrjú ár.
Stjórnvöld hafa horft opinmynnt
á, án þess að aðhafast nokkuð.
Reyndar er það ekki alveg rétt –
forsætisráðherra hefur þó sagt að
hún skilji ekkert í launum skila-
nefnda.
Það er ekki bara almennt verð-
lag sem er stjórnlaust. Þannig
hafa stjórnvöld staðið fyrir gegnd-
arlausum gjaldskrár- og skatta-
hækkunum allt kjörtímabilið,
sem hafa farið beint út í verðlag-
ið og kynt undir verðbólgu og þar
með hækkun skulda heimilanna.
Bankarnir hafa skálað, lífeyris-
sjóðirnir líka. Núna um mánaða-
mótin bættist síðan það nýjasta
við, sykurskatturinn. Stjórnvöld-
um er ekkert óviðkomandi. Þau
vilja hafa puttana í því hvað við
borðum og drekkum. Þessi for-
sjárhyggja þýðir að verðtryggð
húsnæðislán hækka um 1 milljarð
króna, enda fer hækkunin beint í
neysluvísitöluna. Takk fyrir mig.
Sú fylgisaukning sem Fram-
sóknarflokkurinn hefur séð í
skoðanakönnunum að undan-
förnu er ekki tilviljun. Hann er
eini flokkurinn sem er með klára
stefnu í verðtryggingamálum
– hún skal í burtu. Afnám verð-
tryggingar dugar hins vegar ekki
eitt og sér – jafnframt þarf að
grípa til annarra aðgerða til að
tryggja stöðugleika í efnahags-
lífi og stöðugra gengi. Það verð-
ur gert.
Það er með hreinum ólíkindum
að nokkur stjórnmálaflokkur skuli
geta mælt með því óréttlæti sem
viðgengst í þessu landi. Það er með
ólíkindum að nokkur maður skuli
geta stungið niður penna og mælt
með þeirri gegndarlausu eigna-
upptöku sem á sér stað um hver
mánaðamót með verðtrygging-
unni. Val kjósenda er því einfalt í
komandi kosningum – X-B.
Undanfarin ár hafa lands-
menn búið við niðurskurð
og auknar álögur til að
greiða kostnað hruns-
ins. Sameiginlegur sjóður
landsmanna var rekinn
með 216 milljarða halla en
er nú kominn í jafnvægi
þrátt fyrir 90 milljarða
vaxtagreiðslur. Á grunni
þessarar vinnu birtast nú
himinháir kosningavíxlar.
Hvað á að gera?
Sumir vilja lækka skatta á þá rík-
ustu. Hækka skatta á tekjulága og
lækka skatta á tekjuháa í gegnum
afnám þrepaskiptingu tekjuskatts.
Aðrir vilja lækka skuldir allra um
20%. Það yrði vissulega gaman í
smá stund en svo ekki meir. Þrem-
ur til fjórum árum síðar yrðum við
á sama stað með skuldir heimilanna
enda myndi verðbólgan æða áfram.
En ríkissjóður yrði 300 milljörðum
fátækari. Við jafnaðarmenn
teljum skynsamlegra að
greiða niður skuldir, lækka
90 milljarða reikninginn
og forgangsraða í þágu
velferðar. En best væri að
breyta kerfinu.
Hvernig á að gera það?
Við jafnaðarmenn teljum
að besta leiðin til að bæta
lífskjörin sé að taka upp
nýja gjaldgenga mynt.
Mynt sem heldur verðgildi sínu.
Núna greiða heimilin, fyrirtækin
og hið opinbera 150 milljarða á ári
fyrir að hafa krónuna. Verðbólga á
Íslandi er þrisvar sinnum hærri en
innan evrulanda. Vextir á Íslandi
eru ríflega tvisvar sinnum hærri
en í Evrópu. Ný mynt á Íslandi
myndi gera verðtryggingu óþarfa
og lækka matarverð. Um leið yrði
auðveldara fyrir fyrirtækin að ráð-
ast í fjárfestingar og fjölga störf-
um. Þannig gætu hið opinbera,
heimilin og fyrirtækin notað 150
milljarða krónuskatt í annað.
Og hvenær á að gera það?
Stöðugleikinn er ekki fjarlæg
draumsýn. Ný ríkisstjórn gæti
lokið viðræðum og efnt til þjóðar-
atkvæðagreiðslu á næsta kjörtíma-
bili. Segi þjóðin já, væri nokkrum
mánuðum síðar hægt að tengja
krónu við evru með svipuðum hætti
og Danir gera. Það er því raunsætt
að komast í gjaldmiðlasamstarf
eftir tvö ár, einhendi flokkarnir
sér að ljúka viðræðum. Þá leið vilja
jafnaðarmenn fara til að bæta lífs-
kjör á Íslandi.
Eigum við að bæta lífskjör?
Takk fyrir mig!
Ætli fólk geri sér almennilega grein
fyrir því hversu mikið er í húfi í
kosningum á laugardag? Saman
verðum við að standa vörð hvert um
annað, réttlætið og lýðræðið.
Við kjósum ekki „af því bara“.
Við kjósum vegna þess að okkur
hefur verið gefið vald. Við verðum
að nota það vald. Í lýðræðissam-
félagi berum við öll ábyrgð. Tæki-
færið til breytinga er núna. Við
verðum að velja okkur fólk á þing
til að verja grunnstoðir samfélags-
ins og tryggja afkomu þeirra sem
hafa orðið undir á síðustu árum.
Við viljum flest öll hér á Íslandi búa
land svipað hinum Norðurlöndunum
– stefnum þangað saman. Bætum
kjör almennings saman, leiðrétt-
um lán heimilanna saman, tökum
heildarendurskoðun á lífeyriskerf-
inu saman, fáum nýja stjórnarskrá
saman, verjum velferðarkerfið
saman, tryggjum auðlindir í þjóðar-
eigu saman – tökum höndum saman
um breytingar til hins betra. Það er
ekki gott að þurfa að sitja með sárt
ennið að ári og þurfa að hugsa með
sér „maybe I should have“. Við verð-
um að þora!
Sigurvegari kosninganna
Mörg okkar í Dögun hafa bar-
ist fyrir heimilin í mörg ár, m.a.
á vettvangi Hagsmunasamtaka
heimilanna. Við hljótum því að
vera glöð yfir að áherslur okkar
eru að vinna þessar kosningar.
Nú eru allflestir hagfræðingar
farnir að viðurkenna að þær leið-
ir sem við leggjum til séu raun-
hæfar og jafnvel mjög æskileg-
ar. Sumir töluðu um barbabrellur
og reyndu að gera lítið úr órétt-
lætinu – en hafa nú þurft að éta
það ofan í sig. Við í Dögun höfum
bent á margar mismunandi leið-
ir að sama marki – en við þurfum
að standa með sjálfum okkur og
heimilunum til þess að leiðrétt-
ingar lána og afnám verðtrygg-
ingar nái fram að ganga og þær
þurfa að lenda á fjármálakerf-
inu, því það ber ábyrgðina á tjón-
inu. Dögun er með best útfærðu
stefnuna þegar kemur að því hvað
tekur síðan við.
Dögun eina nýja aflið á uppleið
Á síðustu dögum hefur komið í
ljós að Dögun er eina nýja aflið
sem er að auka við sig fylgi. Við
hvetjum því alla til að kynna sér
málefnin á XT.is og sameinast
um eitt nýtt afl sem setur heimil-
in í 1. sæti og er hvað líklegast til
að brjóta 5% múrinn. Tryggjum
talsmenn heimilanna, réttlætis og
lýðræðis inn á þing!
„Maybe I should have“
➜Stöðugleikinn er ekki fjar-
læg draumsýn. Ný ríkisstjórn
gæti lokið viðræðum og efnt
til þjóðaratkvæðagreiðslu á
næsta kjörtímabili
➜ Tryggjum talsmenn
heimilanna, réttlætis og
lýðræðis inn á þing!
➜ Hann er eini fl okkurinn
sem er með klára stefnu í
verðtryggingamálum - hún
skal í burtu.
STJÓRNMÁL
Magnús Orri
Schram
alþingismaður
FJÁRMÁL
Karl Garðarsson
skiptar 2. sæti
á lista Framsóknar-
fl okksins í
Reykjavíkurkjör-
dæmi suður
STJÓRNMÁL
Andrea Ólafsdóttir og
Þorvaldur Geirsson
1. og 2. sæti Dögunar í Suðurkjördæmi
Opið frá kl. 9–20 alla daga
Engihjalla og Granda
999kr. pk
4 x 115g h
amborgar
ar og brau
ð4 st
órir 115
g
hambo
rgarar
með
fjórum
stórum
brauðu
m
1.099kr. kg
Svínahnak
ki, kryddað
ur
verð áður 1
.399 kr. kg
999kr. kg
Svínakótile
ttur, krydd
aðar
verð áður 1
.158 kr. kg
GOTT Á GRILLI[