Fréttablaðið - 25.04.2013, Side 36
25. apríl 2013 FIMMTUDAGUR| SKOÐUN | 36
Senn líður að kosningum og
síðustu vikurnar hafa kosn-
ingaloforðin dunið á kjós-
endum. Þau snúast aðalleg
um að bæta hag heimil-
anna, leysa skuldavandann,
lækka skatta, auka ráðstöf-
unartekjur og koma hjólum
atvinnulífsins aftur af stað.
Allt mikilvæg málefni sem
brýnt er að taka á. En gæti
verið að undir niðri séum
við að vonast til að halda
áfram sama leiknum og við
lékum fyrir hrun? Og til
hvers var þá öll sú sjálfskoðun sem
við fórum í gegnum þegar við gerð-
um grín að 2007. Hefur orðið einhver
raunveruleg hugarfarsbreyting?
Hefur orðið til nýtt verðmætamat?
Hver erum við og hvers konar fram-
tíð viljum við byggja börnunum
okkar? Erum við þjóð sem gengur
á auðlindir, deyðir fljót og fjötrar
fossa eða þjóð sem skapar sér mann-
sæmandi líf á öðrum forsendum?
Öflugur atvinnuvegur
Skapandi greinar eru öflugur
atvinnuvegur. Hagræn áhrif menn-
ingartengdrar starfsemi eru mæl-
anleg og hlutfallslegt framlag
til landsframleiðslunnar raunar
meira en það sem íslenskur land-
búnaður leggur til. Menningin
skapar ekki bara verðmæti heldur
mótar hún líka sjálfsmynd þjóðar-
innar. Hún speglar og sýnir okkur
hver við erum, hvaðan við komum
og á hvaða leið við erum. 19. febrú-
ar – 17. mars síðastliðinn var hald-
in menningarhátíð í Kennedy Cen-
ter í Washington sem að
þessu sinni bar yfirskrift-
ina „Nordic Cool“. Þessi
árlega hátíð hefur það að
markmiði að kynna Was-
hingtonbúum menningu
ólíkra heimsálfa. Í ár var
horft til Norðurlandanna.
Dagskrá hátíðarinnar var
ætlað að endurspegla mat
listrænna stjórnenda henn-
ar á því hvað það væri að
vera norrænn? Þeirra nið-
urstaða var að einkenni
okkar menningarsvæð-
is væru náttúran, stöðugleikinn,
frumkvöðlasýnin, hönnunin- og
tæknin, velferð barnanna, jafnrétti
kynjanna og fjölbreytileikinn.
Landsliðið á „Nordic cool“
Það vakti verðskuldaða athygli hve
stór hlutur Íslands var á hátíðinni
í samanburði við hin þátttökulönd-
in. Á „Nordic cool“ komu m.a. fram
Sinfóníuhljómsveit Íslands, Max-
ímús Músíkus, Vesturport, Íslenski
dansflokkurinn, Tríó Sunnu Gunn-
laugs, Duo Harpverk og Víking-
ur Ólafsson, auk þess sem FM
Belfast, Retro Stefson og Sóley
voru fulltrúar Iceland Airwaves.
Að ógleymdu fossaverki Rúríar.
Íslenska þjóðin getur svo sann-
arlega verið stolt af þessu lands-
liði og þeirri mynd sem framlag
þess gaf af þjóðinni. Að 330.000
manna þjóð skuli búa yfir svo kraft-
miklu listalífi og eiga jafn fram-
úrskarandi listamenn og þá sem
komu fram á Nordic Cool hátíð-
inni er auðvitað mjög merkilegt.
Við erum menningarþjóð. Við
byggjum menningu okkar á göml-
um merg, tölum gamalt tungu-
mál og þó síungt, og eigum forn-
an heimsbókmenntaarf. Við höfum
átt framsýnt fólk sem hefur plægt
þá akra sem við erum enn að sá í
og uppskera úr. Þannig hafa fram-
sækin lög verið sett á Alþingi sem
breytt hafa landslaginu og skapað
framtíð sem er okkar nútíð.
Með lögum skal land byggja
Í dag byggir íslenskt tónlistarlíf á 50
ára gömlum lögum sem sett voru um
tónlistarskóla árið 1963. Með lög-
unum var skapað hagstætt rekstr-
arumhverfi utan um skólana sem
gerði það að verkum að tónlistar-
skólum fjölgaði gríðarlega á næstu
áratugum og eru í dag yfir áttatíu. Á
þeim grunni byggir Sinfóníuhljóm-
sveit Íslands. Eins má rekja bygg-
ingu Þjóðleikhússins sem vígt var
1950 til framsýnna og hugrakkra
ráðamanna. Sú framsýni skapaði
leiklistinni vettvang til að blómstra.
Það skiptir máli hverja við veljum til
valda. Það skiptir máli að hafa vitra
og framsýna ráðamenn sem setja
þau lög í landinu sem styðja, efla og
þroska okkur sem þjóð. Höfum það
hugfast, þegar við göngum til kosn-
inga og alla daga að við erum menn-
ingarþjóð.
Við erum menningarþjóð
Í pistli sem thorgils@
frettabladid.is skrifar á
ritstjórnarsíðu Frétta-
blaðsins í gær undir fyr-
irsögninni Fundið fé á
lokasprettinum er fjallað
um þá áráttu ráðherra að
koma færandi hendi fyrir
kosningar, skrifandi upp
á framtíðarskuldbinding-
ar án nokkurra heimilda.
Loforðin eru þá gefin um
fé sem ekki er í hendi. Ein-
hverra hluta vegna er ég heiðraður
sérstaklega með myndbirtingu og
talin upp meint loddaratrikk mín.
Þetta þarfnast leiðréttingar við.
1Fangelsi á Hólmsheiði. Hið rétta er að þar ákvað Alþingi
á sl. þingi að veita fjármunum til
nýrrar fangelsisbyggingar eftir
rúmlega hálfrar aldrar þjark og
stöðnun. Fyrstu skóflustungu fögn-
uðu starfsmenn Fangelsisstofnun-
ar, fangaverðir, lögreglumenn og
fleiri nýlega.
2 Endurnýjun björgunar-flota Slysavarnarfélags-
ins Landsbjargar. Hið rétta
er að þar hefur Alþingi
samþykkt þingsályktunar-
tillögu þingmanna úr öllum
flokkum undir forystu Jóns
Gunnarssonar, þingmanns
Sjálfstæðisflokksins og
fyrrverandi forseta Slysa-
varnarfélagsins Lands-
bjargar, og ákvað að verja
veita 30 milljónir króna
árlega í átta ár til þessa löngu tíma-
bæra verkefnis. Samtökin efndu til
fundar með fréttamönnum í tilefni
þess að samkomulagið var undir-
ritað.
3Ný flugstöð í Reykjavík. Hið rétta er að eftir áralangt þjark
tókst að reka endahnút á deilur
ríkis og borgar um flugvöllinn í
Vatnsmýrinni. Það mun hafa það í
för með sér að unnt verður að reisa
nýja flugstöð enda gengur andvirði
sölu á landi upp í þá framkvæmd.
Í samkomulagi sem undirritað var
gengur borgin að þeim kröfum
sem við höfum teflt fram og varða
öryggi flugsins.
Síðan nefnir thorgils@frettabla-
did.is að ég sé á förum til Vest-
mannaeyja að skýra opinberlega frá
stöðunni í ferjumálum ásamt bæjar-
stjórn Vestmannaeyinga. Aftur þar
er um að ræða fé sem fjárveitingar-
valdið á Alþingi hefur ákveðið að
ráðstafa. Það er eðlilegt að fulltrúi
framkvæmdavaldsins greini frá
stöðu mála í lok kjörtímabils. Hér
eru því engin trikk á ferðinni, ágæt-
ur thorgils@frettabladid.is, engar
framtíðarávísanir án innistæðu,
ekkert fundið fé upp úr hatti, aðeins
fé sem Alþingi hefur samþykkt að
veita til þessara þörfu verkefna.
Fundið fé?
Ég hef tilhneigingu til að
vera bjartsýn og ganga út
frá því að fólk vilji öðrum
vel. Það sama gildir um
fólk í stjórnmálum. Ég
geng út frá því að það geri
það vegna þess að það vilji
betrumbæta samfélag sitt.
Leggja sitt af mörkum.
Nú er ég í fyrsta sinn
sjálf stödd í miðri hring-
iðu kosninga sem virkur
þátttakandi. Við mér blasir
umhverfi og leikreglur sem
mér hugnast illa og ganga
þvert á það sem mér hefur verið
kennt. Það ríkir þegjandi sam-
komulag um að styrkur felist í því
að rægja aðra og skapa vantraust.
Sá sem gerir mest af því uppsker
að lokum lófaklapp og umboð til að
stjórna landinu.
Birtingarmyndirnar eru víða
og beinast ýmist að persónum eða
stjórnmálahreyfingum. Allt er
undir og ekkert er heilagt. Nýlið-
ar í stjórnmálum liggja vel við
höggi í þessum leik. Svona svipað
og nýi strákurinn í bekknum. Það
er auðvelt að sannfæra aðra um að
hann falli ekki inn í hópinn af því
að hann er öðruvísi. Fjöl-
miðlar taka virkan þátt í
leiknum og fyllast um leið
eldmóði.
Nýlega lét háttvirtur
utanríkisráðherra þau orð
falla að nýi flokkurinn í
bekknum væri án allra
pólitískra hugsjóna. For-
maður Heimdallar velti
því sama fyrir sér á Fés-
bók sinni. Fullyrti að Björt
framtíð hefði byrjað á því
að búa til nafn á flokkinn,
finna svo fólk á lista og
væri nú rétt að byrja að velta fyrir
sér hugsjónum. Fésbókarvinum
þótti það töff og læk-uðu óspart.
Mínar spurningar eru þessar:
Skiptir drengskapur máli þegar við
veljum okkur ráðamenn? Gefur slík
framkoma einhverjar vísbending-
ar um hvernig þeir nálgast stjórn-
mál? Skipta kosningaloforð meira
máli en vel útfærð framtíðarsýn og
markmið?
Þetta eru meðal annars þær
spurningar sem við verðum að
spyrja okkur þegar við göngum til
kosninga. Viljum við ríkjandi skipu-
lag eða viljum við breytt stjórnmál?
Þar sem styrkur felst í því að sjá
hlutina í víðara samhengi, setja sér
skýr langtímamarkmið og vinna að
þeim saman.
Sköpum samfélag sem sættir
sig ekki við náttúruspjöll í þágu
skammtímahagsmuna. Fögnum
fjölbreytni, í allri sinni fegurð. Þar
sem við ráðumst á rót vandans –
ekki bara sjúkdómseinkennin. Þar
sem við klárum skynsamleg verk-
efni á borð við aðildarviðræður við
ESB.
Virkjum frumkvæði og sköpum
hvata til þess að fólk ráðist sjálft
í sköpun og framkvæmdir. Aukum
framleiðni og hamingjustig okkar
með því að virkja ólíka færni í
menntakerfinu. Beinum fólki í hag-
kvæmari og hentugri úrræði í heil-
brigðiskerfinu. Byggjum brú milli
fólks og stjórnmála.
Göngum óhrædd til kosninga og
látum drengskap skipta máli.
Drengskapur í stjórnmálum
STJÓRNMÁL
Ögmundur
Jónasson
innanríkisráðherra
➜ Engar framtíðarávísanir
án innistæðu, ekkert fundið
fé upp úr hatti, aðeins fé sem
Alþingi hefur samþykkt
➜ Aukum framleiðni og
hamingjustig okkar með
því að virkja ólíka færni í
menntakerfi nu.
➜ Við höfum átt framsýnt
fólk sem hefur plægt þá
akra sem við erum enn að sá
í og uppskera úr.
STJÓRNMÁL
Brynhildur S.
Björnsdóttir
3. sæti Bjartrar
framtíðar í
Reykjavík suður
MENNING
Arna Kristín
Einarsdóttir
tónleikastjóri
Sinfóníuhljóm-
sveitar Íslands
Opið frá kl. 9–20 alla daga
Engihjalla og Granda
Á
m
eð
an
b
irg
ði
r e
nd
as
t
1.089kr. kg
Lambarif, þ
urrkryddu
ð
1.699kr. kg
Lambafram
partur, þur
rkryddaðu
r
2.499kr. kg
Lambalær
isneiðar, þ
urrkryddað
ar
blandað
as
t
Á
m
eððð
an
b
irg
ði
r e
nd
a
2.999kr. kg
Lambakót
ilettur, þur
rkryddaða
r
GOTT Á GRILLI[