Fréttablaðið - 25.04.2013, Side 38
FÓLK|
Íslendingar nota samskiptavefinn Facebook næstmest allra í heiminum samkvæmt lista sem Iceland Review
birti. Konur eru 52% notenda en karlar
48%. Misjafnt er hvernig fólk notar
miðilinn en Danir hafa skipt notendum
upp í fimm flokka. Líklegast eru þeir
fleiri hér á landi þar sem margir nýta
sér áhrif Facebook til að koma ýmsum
skilaboðum á framfæri, til dæmis póli-
tískum nú fyrir kosningarnar. Skoðum
hina fimm.
SÁ FÉLAGSLEGI
Þessi notandi er á aldrinum 25-34 ára og
fer inn á Facebook 5-6 sinnum á dag og
fylgist einnig með Twitter og MySpace.
Hann er duglegur að uppfæra stöðu sína
með ýmsum skilaboðum, jafnt persónu-
legum sem öðrum, auk þess að lýsa yfir
skoðunum sínum. Þá er hann duglegur
að leggja orð í belg hjá öðrum eða
setja „like“ á ummæli. Þessi félagslegi
notandi hefur gaman af skyndiprófum
á Face book og ýmsum leikjum. Hann er
aðdáandi tónlistarmanna, listamanna
og félagasamtaka. Auglýsingar frá
fyrirtækjum eru þó ekki að hans skapi.
Félagslegi vinurinn tekur ekki þátt í
pólitískum umræðum. Þessi hópur er
duglegur að afla sér vina með því að
„adda“ þeim sjálfur.
ÁHORFANDINN
Samkvæmt dönsku könnuninni er þetta
stærsti hópurinn. Þessi hópur er með
ákveðna starfsmenntun eða háskóla-
próf. Hann fer inn á Facebook 3-4 sinn-
um í viku og er á aldrinum 25-45 ára.
Þessi aðili gefur ekki út yfirlýsingar eða
gerir miklar athugasemdir. Hann skoðar
myndir vina sinna og sendir skilaboð í
einkapósti. Áhorfandinn er ekki virkur
á Facebook þótt hann kíki þar inn dag-
lega. Hann tekur aldrei þátt í leikjum
eða könnunum og sendir heldur ekki
slíka beiðni á vini. Þessi hópur er á móti
auglýsingum á Facebook, bæði hvað
varðar vörumerki og stjórnmálamenn.
Hann lækar ekki samtök eða stofnanir
og „addar“ ekki vinum. Áhorfandinn er
nánast ósýnilegur á Facebook.
SÁ ÁHUGALAUSI
Af hverju þessi notandi er á Facebook er
í raun ráðgáta. Sá áhugalausi er yfirleitt
karlmaður á aldrinum 45-59 ára sem fer
á Facebook einu sinni til þrisvar í mán-
uði. Hann á ekki marga vini, enda skiptir
sú vinátta ekki miklu máli. Sá áhugalausi
setur ekki inn skoðanir sínar né heldur
skrifar við stöður hjá öðrum. Hann á það
þó til að kíkja á myndir frá vinum þótt
þeir hafi ekki hugmynd um það.
SÁ LEIKJAÓÐI
Ef þú furðar þig á því hver það sé sem
sífellt er að spila leiki á Facebook þá
eru það aðallega konur á aldrinum 25-39
ára. Bæði kynin spila þó Farmville. Þeir
leikjaóðu eru mjög oft inni á Facebook.
Spilarinn er líka duglegur að setja inn
statusa og svara öðrum, jafnvel gagn-
rýna það sem vinir segja. Hann er dug-
legur að dreifa fréttum, ýmsum skila-
boðum og tónlistarmyndböndum. Hann
fjarlægir aldrei vin af vinalista.
SÁ OFVIRKI
Ertu alltaf á Facebook? Ertu námsmaður
eða nýlega kominn út á vinnumarkað-
inn? Ertu á bilinu 18-34 ára og átt yfir
350 vini? Þú gætir verið þessi ofvirki.
Þetta er notandinn sem er duglegur
að skrifa stöðuuppfærslur, segir frá lífi
sínu, setur inn myndir og skoðar þær
hjá öðrum. Þessi ofvirki er duglegur að
svara ummælum annarra. Hann er líka
duglegur að pósta því sem honum finnst
áhugavert, til dæmis á fréttasíðum. Sá
ofvirki telur Facebook mjög mikilvægt
tæki til að halda sambandi við vini sína.
Þessi aðili er aðdáandi tónlistarmanna
og mannúðarsamtaka og skráir sig inn
á hin ýmsu fyrirtæki. Ofvirki notandinn
hefur jákvætt viðhorf til markaðsher-
ferða á Facebook. Þessi notandi er þó
ekki mikið í leikjum.
HINIR
Facebook-notendur falla eflaust undir
fleiri flokka. Flestir kannast við for-
eldrana sem pósta í sífellu myndum
af börnum sínum sem ömmur og afar
skrifa síðan innilega statusa við.
Aðrir eru duglegir að pósta myndum
af sjálfum sér. Þá er til hópur unglinga
sem á auðveldara með að tjá sig á
Facebook en í nálægð vina í skólanum.
Í könnun sem gerð var í Svíþjóð fyrir
nokkrum árum sögðust 37% svarenda
hafa skrifað eitthvað á Facebook sem
þeir höfðu síðan séð eftir. Talið er að sú
prósenta sé mun hærri í dag.
Á Facebook hafa gamlir vinir endur-
nýjað kynnin, nýir orðið til og sumir
hafa fundið ástina. Enn aðrir hafa mikla
þörf fyrir að safna vinum, hvort sem
þeir þekkja fólkið eða ekki. Íslend-
ingar virðast hafa fundið góðan vin í
Facebook miðað við það hversu margir
nota þennan miðil. Það er svo sem ekk-
ert skrítið, þessi þjóð hefur alltaf verið
forvitin um náungann. ■ elin@365.is
TÍSKA
FORVITNI
Íslendingar eru forvitin
þjóð og hefur gaman
af því að forvitnast um
náungann. Facebook
er því kærkomin hér á
landi.
HVAÐA FACEBOOK-
TÝPA ERT ÞÚ?
VINIR Ert þú Facebook-týpan sem segir veröldinni hvað þú ætlar að
borða eða gera skemmtilegt í kvöld? Eða notar þú samskiptavefinn til að
markaðssetja þig? Íslendingar eru ákafir notendur þessa miðils.
Rúnar
Róberts
Góður vinnufélagi!
Virka daga kl. 13 – 16
FÓLK ER KYNNINGARBLAÐ sem býður aug-
lýsendum að kynna vörur og þjónustu í formi
viðtala og umfjallana ásamt hefðbundnum auglýs-
ingum. Blaðið fylgir Fréttablaðinu daglega.
Útgefandi: 365 miðlar | Ábyrgðarmaður: Jón Laufdal
Sölumenn: Jónína María Hafsteinsdóttir, jmh@365.is, s. 512 5473
Sverrir Birgir Sverrisson, sverrirbs@365.is, s. 512 5432
Elsa Jensdóttir, elsaj@365.is, s. 512-5427 | Hönnun: Silja Ástþórsdóttir