Fréttablaðið


Fréttablaðið - 25.04.2013, Qupperneq 39

Fréttablaðið - 25.04.2013, Qupperneq 39
 | FÓLK | 3TÍSKA Ég er hrifinn af því að blanda nýstárlegum efnum saman við klassísk efni,“ segir Ásgrímur Már Friðriksson þegar hann er spurður út í útskriftarverkefni sitt í fatahönnun frá Listaháskóla Íslands en sýning á verk- um allra útskriftarnema LHÍ stendur nú yfir í Listasafni Reykjavíkur, Hafnarhúsi. Lína Ásgríms samanstendur af kjólum, stuttum jökkum, buxum og pilsum, allt í ljósum litatónum. „Ég notaði neoprem-efni, sem minnir á kafarabúningaefni, í bland við kasmír- ull og til að hafa einnig jarðtengingu notaði ég ofið bast með. Í rannsókninni skoðaði ég heilagleikann í vísindaskáld- skap og velti fyrir mér „post apoc- alyptic“, eða eftir-heimsendi-stemm- ingu og endurupprisu. Stundum er sagt í gamni að skordýrin muni erfa heiminn og frá þeim fékk ég formið. Ég hækkaði til dæmis mittið upp til að láta útlimina sýnast lengri. Svo notaði ég fiskibein í hárið á sýningarstúlkunum til að byggja heildina upp. Mér finnst skemmtilegast að hanna fyrir sterka kvenímynd, ég vil enga væmni.“ Ásgrímur hóf nám í fatahönnun við skólann fyrir nokkrum árum en gerði hlé á náminu til að sinna fjölda verkefna sem honum buðust. Hann var meðal annars einn af stofnendum Kiosk og einn aðalhönnuður E-label. Þá vann hann fyrir danska tísku- tímaritið Cover og hjá Eskimo. „Það kom svo að því að ég vildi koma mér aftur í gírinn og klára skólann. Ég var búinn að safna mér reynslu sem hefur nýst mér vel við námið og nú er stefnan sett á að komast utan að vinna,“ segir Ásgrímur og er ánægður með hvernig tískusýning útskriftarhópsins í fatahönnun gekk. „Þetta var mjög góður bekkur og við lögðum öll mikinn metnað í að gera vel og búa til flotta og heild- stæða sýningu. Við erum alls ekki útkeyrð eftir þessa törn eins og við bjuggumst við heldur þvert á móti full af eld- móð. Við erum rétt að byrja.“ ■ heida@365.is SMEKKBUXUR SNÚA AFTUR Helstu tískuhönnuðir hafa komið smekkbuxum í öllum regnbogans litum á markaðinn. Þær koma alltaf aftur og aftur. Verslanir víða um heiminn eru að fyllast af sumarfötunum og er eftir því tekið hversu smekkbuxur koma sterkar inn. Þær eru í öllum litum, stuttar og síðar. Tískan fer alltaf í hringi en margir muna sjálfsagt eftir síðustu smekk- buxnatísku. En nú þarf sem sagt að endurnýja kynnin við smekk- buxurnar en ekki þó taka þær gömlu upp því sniðið er öðruvísi. Nú eru skálmarnar þröngar og vinsælar eru buxur gerðar úr rúskinni. Jennifer Aniston, Kylie Minogue, Alexa Chung, Alessandra Ambrosio, Helena Christensen og Hanneli Mustaparta hafa allar látið sjá sig í litríkum smekkbuxum undanfarið. H&M, Zara og Mango selja nú smekkbuxur auk annarra verslana en það var meðal annarra Phillip Lim, hönnuðurinn frægi, sem sýndi slíkar buxur í öllum litum á tískusýningu fyrir sumarið 2013. BLEIKAR Þessar rúskinnssmekk- buxur eru hönnun Phillips Lim. NÝTT Smekkbuxurnar eru ekki víðar, eins og áður var held- ur með þröngum skálmum. Rúskinn er afar vinsælt. VILL ENGA VÆMNI ÍSLENSK FATAHÖNNUN Ásgrímur Már Friðriksson er einn útskriftarnema úr fatahönnun frá LHÍ. Hann sótti innblástur til vísindaskáldskapar og skordýra. ÓLÍK EFNI Ásgrímur Már Friðriksson er óhræddur við að blanda saman ólíkum efnum í hönnun sinni. Útskrift- arlínu hans frá LHÍ má sjá í Hafnarhúsinu. MYND/GVA HÁ MITTI „Stundum er sagt í gamni að skordýrin muni erfa heiminn og frá þeim fékk ég formið.“ MYND/ÚLFAR LOGI Holtagörðum, s. 553-1800 Opið virka daga 11-18, laugardaga 11-15 www.facebook.com/fondurlist GLÆSILEGT ÚRVAL AF SKARTGRIPAEFNI Stærsta föndurverslun landsins Úrvalið er hjá okkur Belladonna á Facebook Skeifunni 8 • 108 Reykjavík • Sími: 517 6460 • www.belladonna.is Mikið úrval af léttum yfirhöfnum Stærðir 38-58
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.