Fréttablaðið - 25.04.2013, Blaðsíða 42
KYNNING − AUGLÝSINGGrillið FIMMTUDAGUR 25. APRÍL 20132
Útgefandi: 365 miðlar ehf., Skaftahlíð 24, s. 512 5000 Umsjónarmaður auglýsinga: Sigurður Helgi Grímsson, sigurdurhg@365.is, s. 512-5464 Ábyrgðarmaður: Jón Laufdal.
Matreiðsluþættir eru eins misjafn-ir og þeir eru margir. Sumir eru mjög hefðbundnir en í öðrum er
leitast við að brjóta formið og fara nýjar leið-
ir. Eins eru hugmyndirnar að baki þáttun-
um afar misjafnar. Þátturinn Út að grilla
með Kára og Villa, sem sýndur var sumar-
ið 2004, skar sig úr öðrum matreiðsluþáttum
og var örlítið öðruvísi. Bræðurnir Vilhelm
Anton Jónsson, eða Villi naglbítur, og Kári
bróðir hans stjórnuðu þættinum. „Senni-
lega kviknaði hugmyndin út frá því. „Út að
grilla með Kára og Villa hljómaði svo miklu
betur en þáttur með nafnið Út að grilla með
Einari og Tobba,“ segir Villi og hlær dátt
við að rifja þetta upp. „Við bræðurnir erum
samt miklir áhugamenn um matargerð en
fyrst og fremst var þetta vegna þess að nafn-
ið passaði svo vel.“
Matreiðslu- og spjallþáttur
Þátturinn gekk út á það að Villi og Kári
flökkuðu um með gasgrill og fóru á óhefð-
bundna og skrítna staði til að grilla á og
fengu til sín góða gesti þangað. „Við vorum
til dæmis með einn þátt uppi á gamla RÚV-
húsinu, annan í sprengjubyrgi, í hvalveiði-
skipi og víðar. Síðan spjölluðum við við gest-
ina um hvað þeir voru að gera og um mat og
uppskriftir. Þannig að þetta var svona mat-
reiðslu- og spjallþáttur.“
Sömdu lag í hverjum þætti
Í lok hvers þáttar sömdu þeir bræður alltaf
eitt lag á staðnum. „Lagið fjallaði oftast um
eitthvað tengt matnum eða staðnum og
svo voru gestirnir fengnir til að syngja með
okkur. Eivör Pálsdóttir var í einum þætti og
söng með okkur. Þannig að við eigum grill-
lag með Eivöru.“ Spurður hvort eitthvað af
lögunum sé tækt til útgáfu hlær Villi góðlát-
lega og harðneitar. „Það verður aldrei.“
Alþýðlegur grillþáttur
Villi segir þáttinn hafa verið alvöru grill-
þátt og ekkert í ætt við matreiðsluþætti sem
teknir séu upp í stúdíóum og heimaeld-
húsum. „Þetta var alvöru og stundum há-
vaðarok, skítkalt og vesen. Þá mættu gestir
bara með húfur og peysur og við tjölduðum
kannski einhverju veislutjaldi. Þannig var
þetta mjög raunverulegt og
alþýðlegt.“
Mikið pönk og mikill bjór
Eitt sinn reyndu Villi og Kári
að fá Ólaf Ragnar Gríms-
son og Davíð Oddsson í þátt-
inn eftir að þeir höfðu átt í
einhverri deilu. „Við fengum
tvo tölvunarfræðinga að mig
minnir sem hétu einmitt Ólaf-
ur Ragnar og Davíð Oddsson
í staðinn.“ Þátturinn var svo
kynntur í bak og fyrir undir því yfirskini að
Ólafur Ragnar og Davíð Oddsson ætluðu að
mæta. Það var ekkert rangt við það en flest-
ir áttu þó von á öðrum mönnum. „Það var
mikið pönk og mikill bjór í þessum þáttum.“
Stjörnuþáttastjórnendur
Upphafið á þáttunum var þannig að Villi
og Kári keyrðu um á stórum bandarísk-
um sportbíl. Svo sátu þeir og drukku bjór
og slökuðu á. „Hug-
myndin var að við værum svo mikl-
ar stjörnur og þyrftum því ekki að gera neitt.
Og þannig var það líka í þáttunum, sem var
frábær hugmynd. Björgvin Ploder og allir
hinir stilltu upp meðan við sátum og drukk-
um bjór.“
Skemmtilegast að elda úti
Spurður hvort hann sé mikill áhugamað-
ur um grill svarar Villi játandi. „Mig langar
mikið að smíða mér grill sem ég sá á ferða-
lagi um Króatíu. Það er eins og þakrenna í
laginu og ofan í rennuna setur maður við-
arkubb sem er látinn brenna niður í glóð.
Svo er 30 sentímetra teinn með kjöti sett-
ur yfir grillið. Þá væri ég til í að eiga svona
pönnu frá Murikka sem er fyrir gashitara
eða bara til að skella beint á eld. Þannig er
ekkert mál að elda hvar sem er.“ Það leynir
sér ekki að Villi er áhugamaður um allt sem
viðkemur eldamennsku úti við. „Ég ferðast
mikið á Land Rovernum mínum og finnst
langskemmtilegast að elda og borða úti.“
Hugsar hlýtt til grillsumarsins 2004
Sjónvarpsþátturinn Út að grilla með Kára og Villa var á dagskrá Skjás eins sumarið 2004. Þar grilluðu þeir bræður Vilhelm og Kári
Jónssynir á hinum undarlegustu stöðum og fengu góða gesti í heimsókn. Í lok þáttar var svo samið lag sem gestir sungu með þeim.
Villi hefur verið viðriðinn sjónvarp í mörg ár og hugsar hlýlega til sumarsins 2004 þegar
þátturinn Út að grilla með Kára og Villa var tekinn upp og sýndur. Meðfylgjandi er
mynd af þeim bræðrum frá umræddu sumri. MYND/VALLI
Meira í leiðinni
N1 VERSLANIR
N1 ÞJÓNUSTUSTÖÐVAR: ÁRTÚNSHÖFÐA | HÁHOLTI | HRINGBRAUT | LÆKJARGÖTU
WWW.N1.IS
ERT ÞÚ KLÁR
FYRIR GRILL-
SUMARIÐ?
Hjá N1 færð þú gæðagrill og grillvörur
fyrir kröfuharða grillmeistara.