Fréttablaðið - 25.04.2013, Page 43

Fréttablaðið - 25.04.2013, Page 43
ÍSBÚÐIR FIMMTUDAGUR 25. APRÍL 2013 Kynningarblað Íspinnar Frostpinnar Ís í brauði Mjólkurhristingur Heimagerður ís Ný stjórn tók við hjá Emm-essís síðasta haust og henni fylgja ferskir vindar og ýmsar nýjungar. Heilsusamlegri ís „Við leggjum áfram fyrst og fremst áherslu á gæði í okkar framleiðslu og höfum bætt mörgum nýjum bragðtegundum við þann góða grunn sem við nú þegar höfum. Sem dæmi má nefna frostpinna sem koma til móts við þá sem hugsa um heilsuna, pinna sem við notum ferska safa í og eru án allra þekktra ofnæmisvalda. Eins hafa umbúðir fengið andlitslyft- ingu og verið færðar í nútímalegt horf,“ segir Elín Þórðardóttir, nýr framkvæmdastjóri hjáEmmessís. Ekta íslenskur gæða mjólkurís „Í Djæf-línuna höfum við bætt við pinnum með karamellufyllingu og karamelluhjúp, öðrum með kara- mellufyllingu og súkkulaðihjúp og enn einum með toffífyllingu og súkkulaðihjúp. Við notum áfram eingöngu fyrsta f lokks hráefni í okkar ís, íslenska mjólk og mjólk- urvörur auk þess að nota aðeins ekta rjómasúkkulaði, þetta er topp- vara,“ segir Elín. Gamli Poppísinn sem alltaf stendur fyrir sínu, hefur breytt um nafn og heitir núna Djæf með hrískúlum og bætist í Djæf-lín- una en samtals framleiðir Emmess- ís átta tegudir af Djæf-íspinnum. Íspinni við allra hæfi Í heildina framleiðir Emmessís um það bil þrjátíu mismunandi frost- og íspinna. Lurkana þekkja allir og til viðbótar við hinn sívin- sæla Græna lurk og Tívolílurk eru komnar heislusamlegar nýjungar í Lurka-línuna. „Við erum að bæta við Epla-, Appelsínu og Bláberja- lurki sem allir eru að hluta gerð- ur úr hreinum safa og í þeim eru aðeins náttúruleg litar- og bragð- efni, engin rotvarnarefni og engir þekktir ofnæmisvaldar, svo allir ættu að geta fundið íspinna við hæfi,“ segir Elín Elín bendir einnig á að fyrir utan þessa miklu f lóru ís- og frostpinna selji Emmessís ís í allar ísbúðir með gæðin að leiðarljósi eins og í pinnunum. Þar er hægt að velja rjómaís, gamaldags ís og jógúrtís svo dæmi séu tekin. Nýjungar hjá Emmessís Nú fer sumarið í hönd með hækkandi sól og þá nota margir tækifærið til að gleðja sig með íspinna. Emmessís hefur sett á markað fjölmargar nýjungar sem ættu að falla í kramið. Þar á meðal er heilsusamlegur ís með epla-, appelsínu- og bláberjabragði. Sumarið leggst vel í starfsfólk Emmessís. MYND/PJETUR Hnetu- og Daim topparnir verða á sínum stað Djæf-línunni tilheyra átta íspinnar. Meðal nýjunga eru pinnar með karamellufyllingu og toffífyllingu. Flestir þekkja Grænan lurk og Tívolílurk. Nú hefur Mixlurkur bæst í hópinn Epla- Appelsínu og Bláberja- lurkar eru meðal nýjunga. Þeir eru að hluta gerðir úr hreinum safa og í þeim eru aðeins nátt- úruleg litar- og bragðefni, engin rotvarnarefni og engir þekktir ofnæmisvaldar

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.