Fréttablaðið - 25.04.2013, Qupperneq 60
25. apríl 2013 FIMMTUDAGUR| MENNING | 44
➜ ... Krakkar á grunnskólaaldri fá tækifæri til
að semja tónverk í Iðnó.
Kammersveitin býður krökkum á grunnskólaaldri
að gerast „tilraunatónskáld“ á stuttum námskeiðum
í Ævintýrahöllinni í Iðnó í dag milli tíu og ellefu og
á morgun frá þrjú til fjögur. Allir krakkar eru vel-
komnir hvort sem þeir eru í tónlistarnámi eða ekki.
Á námskeiðunum leiðbeinir Ingi Garðar Erlends-
son, básúnuleikari og S.L.Á.T.U.R.-tónskáld,
ásamt Guðrúnu Hrund Harðardóttur víóluleikara.
Tilrauna verkin verða enn fremur túlkuð af snill-
ingunum Tinnu Þorsteinsdóttur á píanó og Unu
Sveinbjarnardóttur á fiðlu. Á námskeiðunum verða
möguleikar mismunandi hljóðfæra kynntir og hefð-
bundin og óhefðbundin nótnaskrift rannsökuð.
Að lokum býður Kammersveitin forvitnum tón-
leikagestum á öllum aldri á tónleika í Ævintýra-
höllinni á laugardaginn 27. apríl klukkan eitt, þar
bætist slagverksleikarinn Frank Aarnink í hóp
túlkenda með einstök slagverkshljóðfæri í far-
teskinu!
Á tónleikum laugardagsins leika hljóðfæra-
leikarar Kammersveitarinnar úrval verka sem
samin voru á námskeiðunum, auk þess að kynna
hljóðfærin fyrir tónleikagestum og leika önnur
verk eftir ýmis tilraunatónskáld á öllum aldri. - sbt
MENNING
KVÆÐABÓK ÚR VIGUR 8. JÚNÍ
Bragi Valdimar Skúlason í Baggalúti fer með Kvæðabók
úr Vigur í Vigur 8. júní
Handritið er verk margra skrifara og unnið undir handarjaðri
Magnúsar Jónssonar digra í Vigur (1637–1702) sem var efnaður
maður og ástríðufullur bókasafnari. Það geymir fj ölbreyttan
kveðskap, trúarlegan og veraldlegan, sem ætlaður var til
fróðleiks, skemmtunar og uppbyggingar.
Titilsíðan er skrautleg og orðalagið augljóslega
samið til að heilla lesendur.
Árni Magnússon fékk handritið frá Páli Vídalín,
tengdasyni Magnúsar.
STAÐARHÓLSBÓK RÍMNA 28. APRÍL
Kjartan Sveinsson úr Sigurrós fer með Staðarhólsbók
rímna í Dalina næsta sunnudag. Ásamt Stein-
dóri Andersen mun Kjartan fl ytja gjörning sem
tengist handritinu í Tjarnarlundi í Saurbæ og
verður athöfnin í tengslum við Jörfagleðina
svonefndu.
Staðarhólsbók rímna er eitt merkasta rímnahand-
rit sem til er og er skrifað á skinn á fyrri hluta 16.
aldar af Tómasi Arasyni, vel þekktum vestfi rskum skrifara. Þar eru
33 rímafl okkar og sumir þeirra eru hvergi varðveittir annars staðar.
Árni Magnússon fékk handritið árið 1707 frá Pétri Bjarnasyni, bónda
á Staðarhóli í Saurbæ.
SKÁLDSKAPARFRÆÐI 8. MAÍ
Charlotte Böving fer með Snorra-Eddu á Eyrarbakka 8. maí.
Handritið var ritað um 1300 og vitnar um kennslu í skáldskapar-
fræðum á miðöldum. Meðal efnis í því er ein gerð Skáldskapar-
mála Snorra-Eddu ásamt þulum.
Séra Halldór Torfason í Gaulverjabæ gaf Árna Magnússyni handritið
árið 1691. Þegar Árnasafni var skipt í kjölfar handritamálsins var
ákveðið að eddukvæðahlutinn yrði eft ir í Höfn.
PHYSIOLOGUS 10. MAÍ
Ragnar Stefánsson jarðskjálft afræðingur fer ásamt Hugleiki
Dagssyni með Physiologus til Dalvíkur 10. maí.
Í handritinu, sem er frá um 1200, er að fi nna brot úr predikunum
og sjö kafl a úr riti sem kallast Physiologus. Í því er fj allað um
ýmsar skepnur og eiginleikar þeirra útlagðir á guðfræðilegan hátt.
Árni Magnúss fékk hand-
ritið frá séra Þórði
Oddssyni á Völlum í
Svarfaðardal.
MARGRÉTAR-
SAGA 18. MAÍ
Vigdís Finnbogadóttir fer með
Margrétarsögu á Skriðuklaustur 18. maí.
Heilög Margét var verndardýrlingur þungaðra
kvenna og talið er að handrit Margrétar sögu hafi
stundum verið lögð við læri eða á kvið sængurkvenna
til þess að létta þeim fæðingu. Skýrir þetta sennilega vin-
sældir sögunnar og einnig smæð handritanna, en Margrétar
saga er til í allmörgum íslenskum handritum sem fl est eru í litlu
broti eins og þessi bók.
Árni Magnússon fékk handritið 1704 frá Bessa Guðmundssyni sýslumanni
á Skriðuklaustri.
FLATEYJARBÓK 1. JÚNÍ
Steinunn Sigurðardóttir fatahönnuður fer með
Flateyjarbók til Þingeyra í Húnaþingi 1. júní.
Flateyjarbók var sett saman að beiðni stórbóndans Jón
Hákonarsonar í Víðidalstungu í Húnavatnssýslu.
Flateyjarbók er stærst íslenskra miðaldahandrita en við
gerð hennar voru notaðar húðir af 113 kálfum.
Brynjólfur biskup Sveinsson gaf Friðriki 3. Dana-
konungi 1656 handritið sem kom heim 21. apríl
1971. Sá viðburður markaði upphaf afh end-
ingar handrita úr dönskum söfnum.
Það kviknaði sú hugmynd hjá okkur hér á Árna-stofnun að setja upp sýningar á völdum hand-ritum um land allt og minna þannig um leið á
það að handritin eru komin alls
staðar af að landinu,“ segir Svan-
hildur Óskarsdóttir hjá Árna-
stofnun. Stofnunin kynnti í gær
átakið Handritin heim í hérað en í
tengslum við það hafa sex handrit
úr eigu safnsins verið endurgerð
og verða þau flutt við hátíðlega
athöfn heim í hérað af lands-
kunnum einstaklingum.
„Handritsfóstrurnar okkar
munu á hverjum stað segja frá
umræddu handriti og þýðingu
þess. Við fengum til liðs við okkur
þjóðþekkta einstaklinga, þau
Kjartan Sveinsson, Vigdísi Finn-
bogadóttur, Charlotte Böving,
Ragnar Stefánsson, Hugleik Dags-
son, Steinunni Sigurðardóttur og
Braga Valdimar Skúlason,“ segir
Svanhildur.
Auk handritasýninganna, sem
hannaðar eru af Finni Arnar,
verður afmælinu fagnað með
bókaútgáfu, alþjóðlegri ráðstefnu
í október, verkefnum með Dönum
og hátíð með þátttöku Dana á
afmælis daginn 13. nóvember. - sbt
HANDRITIN
HEIM Í HÉRAÐ
350 ára afmæli Árna Magnússonar og stórmerkilegu
handritasafni hans verður fagnað á árinu.
Krökkum boðið að semja tónverk
Kammersveitin tekur þátt í Barnamenningarhátíð á stuttum námskeiðum.
VIÐ TÓNSMÍÐAR Kammersveitin hefur áður boðið krökkum
að vinna með sér á Barnamenningarhátíð og var myndin
tekin við það tækifæri.
FÓSTRURNAR
Charlotte Böving, Bragi
Valdimar Skúlason,
Kjartan Sveinsson,
Vi gdís Finnbogadóttir,
Hugleikur Dagsson og
Steinunn Sigurðar-
dóttir komu saman á
Árnastofnun í gær.
FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI