Fréttablaðið - 25.04.2013, Side 62
25. apríl 2013 FIMMTUDAGUR| MENNING | 46
„Ég hef alltaf málað en stungið
öllu undir rúm jafnóðum, nema
einstaka mynd sem ég hef hengt
upp heima,“ segir Magnea Rivera
Reinaldsdóttir sem á myndir á
samsýningu sem opnuð er í dag í
galleríi að Hverfisgötu 44. Hún á
líka afmæli og óhætt er að segja
að hún haldi upp á það með stæl.
Hún kveðst aldrei hafa ætlað sýna
myndirnar sínar en fókið henn-
ar sé svo yndislegt og sjái alger-
lega um þetta. „Við erum þrettán
stykki að halda þessa sýningu,“
segir hún. „Átta ára það yngsta
og elstur er maðurinn minn Stef-
án Geir, sextíu og átta ára. Ég
næ þeim aldri líka í dag. Hún er
öll meira og minna í listum þessi
fjölskylda, eiginmaðurinn, báðar
dæturnar og annar tengdasonur-
inn eru myndlistarfólk, hinn er
leikari og tvö af barnabörnunum
eru í Listaháskólanum.“
Magnea starfar við heima-
hlynningu. Hún er þroskaþjálfi
og kveðst hafa unnið við það, alla
sína „hunds-og kattartíð“ eins og
hún orðar það. Hún hefur ekki
haldið sig í sviðsljósinu en hins-
vegar hefur saga hennar um leit-
ina að föðurnum orðið fræg í sýn-
ingunni Tengdó sem verður sýnd
í kvöld í 50. skipti. Nú eru tuttugu
ár síðan Magnea fann pabba sinn.
„Það var haustið 1993,“ rifjar hún
upp. Hún kveðst alveg hissa á hvað
verkið um leitina gangi lengi því
ekki sé það stórt. Hvernig skyldi
henni hafa liðið með að opinbera
sögu sína á fjölunum? „Mér líður
mjög vel með það. Aðallega af
því mér finnst Valur tengdason-
ur minn gera það svo vel og þeir
sem taka þátt í því með honum.
Ég var sátt við það alveg frá upp-
hafi. Hafði álpast til að skrifa ævi-
sögu mína í stórum dráttum og
Valur fékk hana lánaða. Hann er
svo góður penni og leyfði mér að
fylgjast með öllu sem hann gerði
þannig að ég kveið engu enda var
ég mjög ánægð þegar ég sá útkom-
una. Ég kvíði miklu meira fyrir að
opna þessa málverkasýningu. En
auðvitað er það skemmtilegt líka
og ég er í yndislegum hópi.“
gun@frettabladid.is
Tengdó með málverkasýningu
Magnea Rivera Reinaldsdóttir á afmæli í dag, sýnir myndlist í fyrsta skipti og í kvöld er 50. sýning á Tengdó sem byggt er á sögu hennar.
MAGNEA Ætlaði
aldrei að halda
sýningu á eigin
verkum en nú er
samt komið að
því, þökk sé stór-
fjölskyldunni sem
sýnir líka verk sín
á Hverfisgötu 44
í Reykjavík.
FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
Danssýningin „Dansaðu fyrir
mig“ verður frumsýnd í Hofi á
Akureyri í kvöld. Höfundur verks-
ins er breski danshöfundurinn
Brogan Davison, en hún dansar í
verkinu ásamt tengdaföður sínum,
Ármanni Einarssyni, skólastjóra
í tónlistarskóla Dalvíkur. Eigin-
maður Brogan og sonur Ármanns,
Pétur, hefur þá líka unnið að sýn-
ingunni, sem er sannkallað fjöl-
skylduverkefni.
Í sýningunni er fjallað um
drauma, óttann við að vera ekki
nógu góður og spurninguna hvort
dans sé fyrir alla. Ármann fær í
sýningunni tækifæri til að upp-
fylla 15 ára gamlan draum um að
búa til og dansa í sýningu í sínu
eigin bæjarfélagi.
Aðspurður segist Ármann ekki
vera að fást við ótta sinn í verk-
inu, heldur ótta tengdadótturinn-
ar. „Hennar ótti er að koma fram
með allsendis óvönum dansara ef
maður undanskilur nokkur stutt
dansnámskeið sem ég hef tekið í
Kramhúsinu,“ segir Ármann.
Þess má geta að þrátt fyrir
reynsluleysi skólastjórans og tak-
markað orðspor sem dansara er
uppselt á frumsýninguna og til
stendur að sýna verkið á Dalvík
og Ólafsfirði.
„Það er hollt að ýta aðeins við
staðalmynd dansarans í hugum
fólks. Það að tæplega fimmtugur
karlmaður á Dalvík sem er ekki
með neina dansmenntun geti stig-
ið á svið og tekið þátt í slíkri list-
sköpun minnir fólk á að dans er
fyrir alla,“ segir Ármann og við-
urkennir að þrátt fyrir óttaleysi þá
sé hann í þessu verkefni að fara út
fyrir þægindarammann.
Dansaðu fyrir mig verður sýnt
á Hofi í kvöld, Dalvík annað kvöld
og í Fjallabyggð á laugardag.
Skólastjóri tekur þátt
í danssýningu í Hofi
Ármann Einarsson skólastjóri fer út fyrir þæginda-
rammann þegar hann tekur þátt í dansverki tengda-
dóttur sinnar „Dansaðu fyrir mig“.
DANSAR MEÐ TENGDAFÖÐUR SÍNUM Brogan Davison og Ármann Einarsson
tilbúin í slaginn fyrir danssýninguna „Dansaðu fyrir mig“.
ÓKEYPIS AÐGANGUR
Dagskrá á www.gardabaer.is
UNGMENNATÓNLEIKAR
há
tíð
GARÐABÆJAR 25.-28. apríl 2013
THORSHAVN – GARÐABÆR
Fimmtudagur 25. apríl kl. 20:30
í Kirkjuhvoli, Vídalínskirkju
Laugardagur 27. apríl kl. 17:00
í Haukshúsi, Álftanesi
Sunnudagur 28. apríl kl. 20:30 í Kirkjuhvoli, Vídalínskirkju
STJÖRNUDÚÓ
ÍSLAND – DANMÖRK
Flosason-Lauritsen kvartett
Gestasöngvari Ragnheiður Gröndal
Föstudagur 26. apríl kl. 20:30 í Urðarbrunni hátíðarsal Fjölbrautaskólans í Garðabæ
SVEIFLA Á SJÁLANDI Flosason-Lauritsen kvartett Laugardagur 27. apríl kl. 14:00 í Jónshúsi, við Strikið
EDVARD NYHOLM
DEBESS KVINTETT
RAGNHEIÐUR GRÖNDAL
GUÐMUNDUR PÉTURSSON