Fréttablaðið - 25.04.2013, Síða 64

Fréttablaðið - 25.04.2013, Síða 64
25. apríl 2013 FIMMTUDAGUR| MENNING | 48 Þau gera alveg sína eigin útgáfu, þetta eru sænskir karakterar en ekki íslenskir, en það eru samt heilu samtölin, ræðurnar og senurn- ar sem eru beint upp úr bókinni,“ segir Kári Tulinius rithöfundur, spurður hvernig sænski leikhópurinn PotatoPotato hafi unnið sýning- una Talanglösa Martyrer, sem byggð er á bók hans Píslarvottar án hæfileika sem kom út 2010. Þú vannst þetta eitthvað með þeim, ekki satt? „Jú, ég fór út, bæði fyrir ári þegar þau voru að byrja að vinna verkið og svo aftur fyrir mánuði þegar þau voru í miðju æfingaferlinu.“ Leikhópurinn Potato Potato er frá Malmö og hefur á stefnuskrá að rannsaka pólitískar aðgerðir – og aðgerðaleysi – í evrópskum samtíma með ögrandi sviðslist og skoðar nú sérstak- lega pólitíska þátttöku í norrænu paradísinni. Sagan Píslarvottar án hæfileika var skrifuð í kjölfar hrunsins og mótmælanna gegn því og Kári segir efnið falla mjög vel að því sem leik- hópurinn vill koma á framfæri. Verkið var frumsýnt í Stokkhólmi 8. apríl og hlaut rífandi góða dóma í sænskum blöðum. Þetta er farandsýning sem einnig hefur verið sýnd í Malmö og fer héðan til Óslóar og Gauta- borgar. „Þau laga sýninguna að aðstæðum á hverjum stað, til dæmis verður hluti hennar fluttur á ensku hér á Íslandi, þar sem ekki er hægt að ganga út frá því að allir áhorfendur skilji sænsku,“ útskýrir Kári. Ertu ánægður með útkomuna? „Alveg rosa- lega. Ég er náttúrulega ekki óhlut drægasti áhorfandinn en ég er alveg í skýjunum. Sænskir áhorfendur kunnu líka vel að meta sýninguna, fólk brast í grát og féllst í faðma í salnum eftir frumsýninguna. Ótrúlega sterk sýning.“ Miðasala er á midi.is. fridrikab@frettabladid.is Pólitískar aðgerðir og aðgerðaleysi Talanglösa Martyrer nefnist leiksýning sem sænski leikhópurinn PotatoPotato sýnir í Tjarnarbíói í kvöld og tvö næstu kvöld. Sýningin er byggð á skáldsögu Kára Tulinius, Píslarvottar án hæfi leika, og hann segist vera í skýjunum með útkomuna. KÁRI TULINIUS VINUR SJÓNVARPSÁHORFENDA Einn leikaranna í sýningunni er Íslendingum að góðu kunnur. Christian Hillborg lék blaðamanninn Daniel Ferbé í sjónvarpsþáttunum vinsælu Brúnni. Christian Hillborg, sem lék blaðamanninn Daniel Ferbé í hinum vinsælu sjónvarpsþáttum Brúnni, er einn leikaranna í sýningunni. Þetta er fyrsta sýningin sem Christian tekur þátt í með PotatoPotato en hann hefur áður verið beðinn um að vera með í sýningum hópsins. „Ég hafði bara ekki tíma fyrr en núna,“ segir hann. Christian segist aðallega vera sviðsleikari, leikur í kvikmyndum og að sjónvarpsþáttum sé meira aukavinna. Hann hefur leikið á sviði í Stokkhólmi, Malmö og fleiri stöðum í Svíþjóð, í Ósló og nú í Reykjavík. Hefur hann komið til Ís- lands áður? „Nei, en mig hefur alltaf dreymt um að koma hingað og það er yndislegt að vera loksins kominn.“ Christian lofar áhorf- endum góðri sýningu í kvöld og næstu kvöld. „Þetta er frábær sýning og fær fólk vonandi til að hugsa um hverju það er tilbúið að fórna fyrir betra samfélag í þessari paradís sem við köllum Norðurlönd.“ Loksins kom- inn til Íslands Þjóðleikhúsið er á Facebook, fylgstu með – facebook.com/leikhusid 551 1200 prufur@leikhusid.is leikhusid.is Nánari upplýsingar: Haust 2013 Frumsýning: Þjóðleikhúsið leitar að leikurum á aldrinum 8–14 ára! Á næsta leikári setur Þjóðleikhúsið upp ÓVITA eftir Guðrúnu Helgadóttur, en þar leika börn fullorðna og öfugt. Því vantar okkur eikara til að leika fullorðna fólkið í sýningunni. Krakkar sem vilja leika á stóra sviðinu, á aldrinum 8–14 ára og ekki hærri en 160 cm — eru hvattir til að mæta og sækja um. Skráning í prufur fer fram í Þjóðleikhúsinu, mánudaginn 29. apríl á milli klukkan 14 og 19. Jazzhátíð Garðabæjar hefst í dag og stendur fram á sunnudag. Fyrstu tónleikarnir eru í kvöld í Kirkjuhvoli. Þá verður frumflutt ný tónlist sem færeyski bassa- leikarinn Edvard Nyholm Debess hefur samið fyrir íslenska djass- tónlistarmenn. Stærstu tónleikar hátíðarinnar verða annað kvöld í Urðarbrunni, hátíðasal Fjöl- brautaskólans í Garðabæ. Þar verður boðið upp á „Stofudjass í stórum sal“ með Flosason/ Lauritsen kvartettinum. Sérstak- ur gestur er Ragnheiður Gröndal. Tvennir tónleikar verða á laugar dag. Í Jónshúsi við Strik- ið verður dagskrá með valin- kunnum lögum swing-tímans klukkan 14 og í Haukshúsi á Álftanesi stígur stjörnudúóið Ragnheiður Gröndal og Guð- mundur Pétursson á svið með djassperlur klukkan 17. Hátíðinni lýkur á sunnudagskvöld með tón- leikum í Kirkjuhvoli. Þar sýnir unga kynslóðin hvað í henni býr. Aðgangur er ókeypis á alla tón- leikana. Dagskráin er aðgengileg á www.gardabaer.is - gun Djass, djass, djass STJÖRNUDÚÓ Guðmundur Pétursson og Ragnheiður Gröndal koma fram í Hauk- shúsi.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.