Fréttablaðið - 25.04.2013, Qupperneq 65
FIMMTUDAGUR 25. apríl 2013 | MENNING | 49
HVAÐ?
HVENÆR?
HVAR?
FIMMTUDAGUR 25. APRÍL 2013
Sýningar
13.00 Viðsnúningur, nýtt útilistaverk
eftir Guðjón Ketilsson, verður afhjúpað
við Kjarvalsstaði. Verkið er ætlað fyrir
börn í lífi og leik.
14.00 Flökkusýningin Kjarval og Gull-
mávurinn/Ferðalag listmálara verður
sett upp í Listasafni Reykjavíkur– Kjar-
valsstöðum.
15.30 Inga Jónsdóttir býður upp á
leiðsögn um sýningarnar Til sjávar og
sveita og Slangur(-y) á Listasafni Árnes-
inga. Brugðið verður á leik með gestum
og eru barnafjölskyldur sérstaklega
boðnar velkomnar. Aðgangur ókeypis.
Síðustu Forvöð
17.00 Sýning Hamish Fulton opnar í i8
Gallerýi.
Hátíðir
11.00 Sarka Mrnakova og Georg Hol-
landers hjá SAGE bjóða upp á ævintýra-
lega þrautabraut á Ingólfstorgi fyrir alla
fjölskylduna.
20.30 Árleg Jazzhátíð hefst í Garðabæ.
Dagskrá má finna á heimasíðunni www.
gardabaer.is
Opið Hús
10.00 Garðyrkjuskólinn í Hveragerði
verður með opið hús. Andlitsmálning
og leikir fyrir börnin, kynning á náms-
brautum skólans, brakandi ferskt hnúð-
kál, kryddjurtir og grænmeti til sölu
og Garðyrkjuverðlaunin verða afhent í
áttunda sinn.
Kvikmyndir
14.00 Kvikmyndahátíð heldur áfram
á Borgarbókasafni, Tryggvagötu 15,
þar sem sýndar verða stuttar sjón-
varpsmyndir byggðar á hinum klass-
ísku Grimms-ævintýrum. Fyrsta mynd
dagsins er myndin Kynjaborðið, gull-
asninn og kylfan í skjóðunni (Tischlein
deck dich), klukkan 16 er það myndin
um Öskubusku (Aschenputtel) og
klukkan 17 er það Froskkóngurinn (Der
Froschkönig).
Uppákomur
12.00 Kampur frístundamiðstöð býður
upp á fjölskylduskemmtun á Klambra-
túni.
12.00 Hjólaratleikur fjölskyldunnar við
styttur bæjarins verður haldinn í tilefni
Barnamenningarhátíðar. Hægt er að
fara í leikinn hvenær sem er á milli 12
og 18. Hefst hann við Hörpu og lýkur
í höggmyndagarði Ásmundar Sveins-
sonar við Sigtún. Þátttökuspjöld fást í
afgreiðslu Hörpu.
12.00 Hópurinn sem stendur að kaffi-
húsinu GÆS sem opnar í Tjarnarbíó í
júní stendur fyrir leikandi léttum og
ljúffengum kaffigjörningi á Ingólfs-
torgi. Gjörningurinn er liður í Pop up
viðburðum Listar án landamæra. Allir
hvattir til að koma og grípa GÆSina og
sumarið í leiðinni.
13.00 Skeifudagur Grana á Mið-
Fossum í Andakíl (hestamiðstöð Lbhí)
verður haldinn hátíðlegur.Nemendur
í hrossarækt við Lbhí sýna afrakstur
vetrarstarfsins í reiðmennsku og
frumtamningum. Auk þess varða
sýningaratriði reiðkennara, kynning á
frumtamningatryppum, úrslit í keppni
um Reynisbikarinn og Gunnarsbikarinn
14.00 Boðið verður upp á nýja ratleiki,
barnaleiðsögn og skemmtun í Þjóð-
minjasafninu. Aðgangur er ókeypis.
19.30 Átak er kröftugt félag fólks
með þroskahömlun. Þau standa fyrir
skemmtidagskrá og karaoke keppni á
Karaoke Sport Bar. Halli Reynis trúba-
dor kemur fram ásamt Magnúsi Paul
Korntop og þeir munu hita upp fyrir
karaoke keppni kvöldsins.
Málþing
09.00 Ráðstefna um menningarlega
minnihlutahópa í barna- og unglinga-
bókum heldur áfram í fyrirlestrasal
Þjóðminjasafns Íslands. Öllum er
velkomið að sitja fyrirlestra ráðstefn-
unnar endurgjalddslaust. Nánari upp-
lýsingar á heimasíðunni conference.
hi.is/campusculturae
Tónlist
14.00 Hamrahlíðarkórarnir kalla á
vorið með skemmtuninni Vor vítamín
í hátíðarsal Menntaskólans við
Hamrahlíð. Þá verða ýmis skemmti-
atriði og uppákomur m.a.leikir fyrir
börn,ljósmyndastofa og fatamarkaður.
Aðgangur er ókeypis.
15.00 Þjóðlagahópurinn Gljúfrabúi
spilar, syngur og dansar fyrir gesti.
17.00 Karlakór Grafarvogs heldur sína
árlegu vortónleika í Grafarvogskirkju.
Yfirskrift tónleikana er Vor í voginum.
20.00 Karlakór Kjalnesinga heldur vor-
tónleika í Langholtskirkju. Íslensk, rúss-
nesk og sænsk karlakóraklassík verður
á efnisskránni auk hæfilegs skammts af
Stuðmönnum og Þursum, en sérstakur
gestur er Egill Ólafsson. Miðaverð er kr.
3.000 en kr. 2.500 í forsölu.
21.00 Hinar einu sönnu Dægurflugur
koma saman á ný eftir langa fjarveru
og halda sannkallaða sumartónleika
á Café Rosenberg. Aðgangseyrir er kr.
1.500.
21.00 The Dirty Deal bluesband heldur
blústónleika á Kaffi Rós, Hveragerði.
Tilboð á barnum og 1.000 kr. inn.
22.00 Björgvin Gíslason,Ásgeir
Óskarsson,Haraldur Þorsteinsson,Jens
Hansson og Sigurður Sigurðsson leika
Summertime Blues á Ob-La-Dí-Ob-La-
Da,Frakkastíg 8. Aðgangseyrir er kr.
1.000.
Leiðsögn
14.00 Hellaleiðsögn fyrir börn um
Silfur Íslands. Takmarkaður fjöldi barna
kemst að, gestir beðnir að taka númer
í móttöku. Önnur leiðsögn verður farin
kl. 14.30.
Upplýsingar um viðburði sendist á hvar@
frettabladid.is og einnig er hægt að skrá
þá inni á visir.is.