Fréttablaðið - 25.04.2013, Blaðsíða 66
25. apríl 2013 FIMMTUDAGUR| MENNING | 50
TÓNNINN
GEFINN
Freyr Bjarnason
Ready to Die er fyrsta hljóðversp-
latan sem kemur út undir nafninu
Iggy & The Stooges síðan Raw
Power leit dagsins ljós árið 1973,
fyrir fjörutíu árum.
Auk hins 66 ára forsprakka Iggy
Pop spila á plötunni gítarleikarinn
James Williamson og trommarinn
Scott Asheton. Þeir spiluðu einn-
ig á Raw Power en það er síðasta
platan sem þessir þrír spiluðu á
saman. Til að fylla í skarð bassa-
leikarans Ron Asheton, sem lést
2009, var fenginn Mike Watt.
Iggy Pop stofnaði The Stooges
í Detroit árið 1967 eftir að hann
hafði farið á tónleika með The
Doors og orðið yfir sig hrifinn.
Iggy, sem heitir réttu nafni James
Osterberg, fékk bræðurna Scott
og Ron Asheton til liðs við sig og
einnig bassaleikarann Dave Alex-
ander og úr varð hljómsveitin The
Stooges.
Sveitin vakti fljótt athygli fyrir
líflega sviðsframkomu, sérstak-
lega Iggy Pop. Hann kom alltaf
fram ber að ofan og makaði jafn-
an steikum eða hnetusmjöri á lík-
ama sinn, skar sjálfan sig með
gleri og tók dýfu ofan í áhorfenda-
skarann.
The Stooges gerði plötusamn-
ing við stórfyrirtækið Elektra árið
1968 og gaf út samnefnda plötu ári
síðar. Platan fékk dræmar viðtök-
ur þrátt fyrir að hafa að geyma lög
á borð við 1969, I Wanna Be Your
Dog og No Fun, sem eru öll orðin
vel kunn í dag. Næsta plata á eftir,
Funhouse, sem kom út 1970, fékk
engu betri móttökur. Smám saman
töpuðu meðlimir sveitarinnar sér
í fíkniefnaneyslu, sér í lagi Iggy,
og The Stooges lagði nánast upp
laupana.
David Bowie kom sveitinni á
kortið á ný þegar hann tók upp
þriðju plötuna, Raw Power. Þá
hafði Dave Alexander helst úr
lestinni og í staðinn kom James
Williamson, en aftur tókst sveit-
inni ekki að slá í gegn. Fljót-
lega eftir það hætti The Stooges
endan lega og Iggy Pop hóf vel
heppnaðan sólóferil með aðstoð
Bowies.
Árið 2003 kom Iggy Pop, sem
hafði áður slegið í gegn með
lögum á borð við Lust for Life og
The Passenger, öllum að óvörum
og boðaði endurkomu The Stooges
eftir um það bil þrjátíu ára hlé.
Fékk hann bræðurna Ron og Scott
aftur til liðs við sig en í þetta sinn
hljóp Mike Watt í skarðið í stað-
inn fyrir Dave Alexander. Sveitin
fór í tónleikaferð og er enn að. Til
að mynda spilaði hún í Listasafni
Íslands árið 2006, en tónleikarnir
áttu upphaflega að vera í Laugar-
dalshöllinni.
Síðasta plata á undan Ready
to Die kom út 2007, hét The
Weirdness og var gefin út undir
nafninu The Stooges. Hún hlaut
misjafnar viðtökur en David
Fricke hjá The Rolling Stone er
sáttur við nýju plötuna og gefur
henni þrjár og hálfa stjörnu. Hann
segir hana hráa og kraftmikla
með Iggy Pop í hörkuformi.
freyr@frettabladid.is
Iggy & The Stooges
með endurkomu
Ready to Die með Iggy & The Stooges kemur út eft ir helgi. Hvorki meira né
minna en 40 ár eru liðin síðan síðasta plata með Iggy & The Stooges kom út.
BER AÐ OFAN Iggy Pop, að sjálfsögðu ber að ofan, á Bluefest Byron Bay-
tónlistarhátíðinni í Ástralíu fyrir skömmu. NORDICPHOTOS/GETTY
Það var ekki fyrr en um miðjan níunda áratuginn sem The Stooges var
hampað fyrir að hafa haft gríðarleg áhrif á þróun pönktónlistar í heim-
inum og var hún sögð ein fyrsta pönksveitin. Teljast nú plötur sveitarinnar
til merkra rokkplatna í tónlistarsögunni og í gegnum árin hafa flytjendur á
borð við Nirvana, Queens of the Stone Age, The White Stripes, Green Day
og Nick Cave nefnt The Stooges sem mikinn áhrifavald í tónlistarsköpun
sinni. Til marks um þetta var hljómsveitin vígð inn í Frægðarhöll rokksins
árið 2010.
Ein fyrsta pönksveit sögunnar
Það hlýtur að vera mikið fagnaðarefni fyrir íslenska tónlistaráhugamenn
að breska tónlistarhátíðin All Tomorrow´s Parties hafi bæst við flóruna
hérlendis.
Hátíðin verður haldin á gamla varnarsvæðinu í Keflavík og verður for-
vitnilegt að fylgjast með hvernig til tekst í lok júní. Listamennirnir eru
ekki af verri endanum með sjálfan Nick Cave og hljómsveit hans The Bad
Seeds fremsta í flokki.
Í samtali við Fréttablaðið í gær sagði stofnandi All Tomorrow´s Parties,
Barry Hogan, vel
koma til greina að
halda hana aftur á
næsta ári. Þannig
mun hún mögulega
eiga fastan sess í ís-
lenska tónlistarlands-
laginu á komandi
árum og laða til sín
fjöldann allan af
þekktum útlenskum
böndum.
Fyrir eru hér á
landi tvær stórar
tónlistarhátíðir með
erlendum flytjendum;
Sónar, sem verður
haldin í annað sinn
í febrúar á næsta ári, og að sjálfsögðu Iceland Airwaves, sem fer fram í
fimmtánda sinn mánaðamótin október/nóvember.
Ef komandi misseri eru skoðuð munu aðeins fjórir mánuðir líða á milli
þriggja stórra tónlistarhátíða hér á landi en hingað til hafa tónlistar-
unnendur þurft að bíða í heilt ár á milli Iceland Airwaves-hátíða. Ekki
slæmt fyrir lítið land eins og Ísland.
Hátíðir á fjögurra
mánaða fresti
Í spilaranum
NICK CAVE AND
THE BAD SEEDS
Helgi Júlíus - Í blús
Robert the Roommate - Robert the Roommate
Rúnar Eff - Knee Deep
Skýringar Stendur í stað síðan í síðustu viku Fellur um sæti síðan í síðustu viku Hækkar á lista síðan í síðustu viku Nýtt á lista
Listarnir eru teknir saman fyrir Félag hljómplötuframleiðenda. Listarnir eru birtir í heild sinni á Vísir.is.
Þátttakendur í Lagalistanum Bylgjan, FM957, Xið 977, Rás 2, K100,5, tonlist.is. Verslanir í Tónlistanum Skífan, Hagkaup, Penninn/
Eymundsson, 12 tónar, Harpa, Smekkleysa plötubúð, Elko, tonlist.is.
18.4.2013 ➜ 24.4.2013
LAGALISTINN TÓNLISTINN
Sæti Flytjandi Lag
1 Pink / Nate Ruess Just Give Me a Reason
2 Retro Stefson She Said
3 Justin Timberlake Mirrors
4 Christina Aguil. / Blake Shelton Just a Fool
5 Christina Aguil. / Pitbull Feel This Moment
6 Valdimar Beðið eftir skömminni
7 Imagine Dragons Radioactive
8 Phillip Phillips Gone, Gone, Gone
9 Lumineers Stubborn Love
10 Bastille Pompeii
Sæti Flytjandi Plata
1 Ásgeir Trausti Dýrð í dauðaþögn
2 John Grant Pale Green Ghosts
3 Ýmsir Tíminn flýgur áfram
4 Raggi Bjarna Dúettar
5 Of Monsters and Men My Head Is an Animal
6 Retro Stefson Retro Stefson
7 Valdimar Um stund
8 Pink Floyd Dark Side of the Moon
9 Eiríkur Fjalar Very Best Off
10 David Bowie The Next Day