Fréttablaðið - 25.04.2013, Síða 70
25. apríl 2013 FIMMTUDAGUR| MENNING | 54
Stefán Baldur Árnason er óvenju-
legur Vesturbæingur að því leyt-
inu að hann notar frítíma sinn í
að reykja kjöt í kofa úti í garði
hjá sér.
„Ég á vinkonu sem býr í Nor-
egi. Hún er með mataróþol og má
ekki borða sykur eða nítrat. Hún
var að fárast yfir því að hana
langaði svo í hangikjöt en komst
hvergi í það án þessara efna. Ég
átti kjöt af góðum sauð og ákvað
að prófa þetta sjálfur,“ segir
Stefán Baldur.
Hann náði sér í stóran pappa-
kassa og ákvað að reykja kjötið
í honum úti í garði. Fram að því
hafði hann geymt kjötið í pækli
með hunangi. „Það var bruna-
gaddur á þessum tíma og ég vissi
að nágrannarnir voru með lokaða
glugga, þannig að ég var ekkert að
trufla þá.“ Hann bjó sér til bruna-
dunk úr öldós og setti kolamola
þar ofan í ásamt birkispæni. Hann
laumaði dunkinum undir pappa-
kassann en í kassann hafði hann
hengt kjötið eftir að hafa snúið
kassanum við. Þessi óhefðbundna
aðferð svínvirkaði.
Í desember síðastliðnum þegar
Stefán Baldur hélt upp á fertugs-
afmælið sitt tók hann matargerð-
ina skrefinu lengra og útbjó mis-
munandi pækla fyrir kjötið, þar
á meðal með cayenne-pipar og
karrí. Pappakassa með kjötinu
geymdi hann í kofa sem sonur
hans bjó til á ismíðanámskeiði.
Gestirnir í afmælinu voru ekki
sviknir en Stefán heldur alltaf upp
á afmælið sitt og segir það mið-
punktinn í kjötframleiðslu sinni.
Lamba- og kindaskrokkana kaupir
hann og sker sjálfur og einnig
veiðir hann hreindýr og gæsir og
gerir reyktilraunir á því kjöti.
Auk reykta kjötsins hefur
hann prófað sig áfram í pylsu-
og ostagerð en nýlega bjó hann
til ricotta-ost eftir að hann vant-
aði fyllingu í pasta sem hann var
að búa til. Einnig hefur hann
dundað sér við að brugga bjór.
Stefán Baldur starfar sem vef-
stjóri hjá Össuri. Spurður hvort
hann sé ekki í kolröngu starfi
segist hann efast um það. „En
þegar kemur að ellilífeyrinum
ætla ég að flytja upp í sveit og
leggjast í sjálfsþurftarbúskap.
Eiginkonan ætlar að vera ein-
hvers staðar í París á meðan.
Hún hefur engan áhuga á þessu.
Ég ætla bara að vera einn þar
og brugga bjór, vera með roll-
ur og svoleiðis „næsheit“.“
Hvað færðu út úr þessu öllu
saman? „Þegar ég var lít-
ill krakki bjó ég til efnafræði-
tilraunir og þetta er litli krakk-
inn í mér að gera öðruvísi
efnafræðitilraunir fyrir full-
orðna.“ freyr@frettabladid.is
Reykir kjöt úti í garði hjá sér
Vesturbæingurinn Stefán Baldur Árnason ætlar að stunda sjálfsþurft arbúskap uppi í sveit í ellinni.
HJÁ KOFANUM Stefán Baldur Árnason hjá kofanum þar sem hann reykir allt sitt kjöt. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
Stefán Baldur dró nýlega fram úr smíðakofanum bógstykki sem hann
hafði reykt síðan um jólin. „Ég hafði látið það hanga síðan þá og það var
búið að þorna vel upp. Þetta var eins og að skera hráskinku.“
Eins og að skera hráskinku
Á nýlegum fyrirlestri hjá mér spurði ein ung stúlka út í sleik
og vildi vita hvort allt væri ónýtt
ef maður væri bara „geðveikt
lélegur“ í þessari athöfn kenndri
við Frakka. Ég brosti út í annað
og áður en ég vissi af varð ég
aftur þrettán ára með sveitta lófa.
Þegar ég var unglingur óttaðist
ég fátt meira en að fara í sleik.
Vin konur mínar voru sjóaðar í
þessum málum og reyndu hvað
þær gátu að róa mig og útskýra
fyrir mér að hreyfa bara tunguna
í hringi, en allt kom fyrir ekki.
Mér fannst þetta gjörsam lega
ógeðsleg tilhugsun, að slefa upp
í einhvern annan og taka á móti
hans slefi. Ég gat engan veginn
séð hvað var eftirsóknar vert við
þetta allt saman. Eftir því sem
leið á unglings árin gerði ég mér
grein fyrir því að sleikurinn var
nauðsyn legur undanfari þess að
byrja saman og óhjákvæmileg
tómstundaiðja ungra kærustupara.
Ég taldi sleikinn vera eins og
óþægilegan plástur sem best
væri að rífa af í einum rykk.
Maður þyrfti bara að fara einu
sinni í sleik og þar með komast
yfir versta hjallann og þá yrði
allt saman í lagi. Það var því með
hvatningu vinkvenna minna að
ég og ungur piltur sammældumst
um að prófa að fara í sleik, á bak
við tré, um verslunarmannahelgi.
Vinkonurnar stóðu álengdar, til-
búnar að deila upplifuninni með
mér og jafnvel veita mér vott af
áfallahjálp. Það var næstum eins
og þetta hafi gerst í gær. Mér
fannst þetta ógeð. Slef og óstýri-
lát tunga og teinar og tennur. Ég
lofaði sjálfri mér að þetta myndi
ég aldrei gera aftur nema ég væri
sjúklega skotin í gaurnum.
Það er heila málið. Stundum
liggur unglingum svo á að gera
hlutina að það á bara að spóla inn í
miðja mynd þar sem allt stuðið og
fjörið er, ekki ósvipað því hvernig
klám sýnir kynlíf. Spurðu hvaða
ungling í grunnskóla um „Sleikfés“
og þá færðu smá sýn inn á kossa-
flensið sem nú ríkir. Þetta er ekki
spurning um einn sleik og hversu
lengi hann varði heldur að ná sem
flestum á sem skemmstum tíma.
Ég reyni iðulega að segja
krökkunum „mínum“ að kyn-
líf og sleik sé ekki hægt að kenna
því öll erum við ólík og með mis-
jafnan smekk. Sumar tungur fara
í hringi, aðrar skylmast og enn
aðrar skjótast inn og út. Þegar
maður stundar kynlíf með ein-
hverjum þar sem gagnkvæm virð-
ing og ást er til staðar skipta tækni
og vandræðalegheit engu máli,
því fólk prófar sig áfram saman.
Þannig þróar hvert par sína eigin
sleiktækni saman. Ef þú kyssir ein-
hvern annan byrjar æfingarferlið
allt upp á nýtt. Kynlíf er ekki eitt-
hvað sem þarf að rumpa af heldur
á einmitt að leyfa sér að njóta þess
með tilheyrandi tilfinningum, slefi
og stunum.
Slef og óstýrilát tunga
BLAUTUR KOSS Það er ekki hægt að
kenna sleik. NORDICPHOTOS/GETTY
Stundum þarf ekki að leita
lengra en inn í eldhús eftir
góðum snyrtivörum. Hér er listi
yfir hluti sem yfirleitt má finna
í ísskápnum til að fegra líkama
og sál:
1 Sítrónur – kreistan sítrónu-safa í vatn má nota til að
hvítta neglur, hreinsa óhreina
húð og setja í hárið til að gefa
því meiri glans.
2 Hrein jógúrt – má bera á andlitið til að næra þurra húð
og kæla sólbrennda húð.
3 Bananar – er fullur af vítam-ínum og er rakagefandi fyrir
bæði hár og á húð.
4 Hakkaðar möndlur og hun-ang – góður heimatilbúinn
skrúbbur fyrir sturtuna.
Snyrtivörur
úr ísskápnum
BANANAR
Rakagefandi
fyrir húð og
hár.
KYNLÍF TAKTU ÞÁTT!
Sendu Siggu Dögg póst og
segðu henni frá vandamáli
úr bólinu. Lausnin gæti
birst í Fréttablaðinu.
kynlif@frettabladid.is
SUMARDAGINN
FYRSTA
OPIÐ
Í DAG
– FULLT HÚS ÆVINTÝRA
REYKJAVÍK • Fiskislóð 1
Opið 12–16
ellingsen.is
MERIDA CROSSWAY 10
HERRA- OG DÖMUHJÓL
13.332 KR.
79.990 KR.
Léttgreiðslur
í 6 mánuði.
Léttgreiðslur
í 6 mánuði.
MERIDA MATTS REDWOOD
11.665 KR.
69.990 KR.
MERIDA BELLA 16
BARNAHJÓL 4–6 ÁRA
4.998 KR.
29.990 KR.
Léttgreiðslur
í 6 mánuði.
5.990 KR.
MERIDA KIDS
BARNAHJÁLMUR
MERIDA KRÅKEOY 7
18.332 KR.
109.990 KR.
Léttgreiðslur
í 6 mánuði.
PIPA
R\TBW
A
• SÍAA
• 1
3
1
3
0
9
MERIDA DINO/BELLA 12
BARNAHJÓL 2–4 ÁRA
4.165 KR.
24.990 KR.
Léttgreiðslur
í 6 mánuði.
ÚRVAL
AUKAHLUTA!