Fréttablaðið - 25.04.2013, Page 74
25. apríl 2013 FIMMTUDAGUR| MENNING | 58
„Fyrst þegar ég sá handritið hélt
ég að ég myndi aldrei ná að læra
allan þennan texta. Það kom mér
á óvart hvað það tók mig skamm-
an tíma að læra allan textann því
,“ segir leikkonan Rán Ragnars-
dóttir, sem fer með hlutverk Jane
í uppfærslu Borgar leikhússins á
Mary Poppins.
Rán er 14 ára og elst í hópi
þeirra sem fara með hlutverk
systkinanna Jane og Michael.
Áslaug Lárusdóttir leikur Jane
til móts við Rán og með hlut-
verk Michael fara Grettir
Valsson og Patrekur Thor
Herbertsson. „Við erum
öll góðir vinir en ég þekkti
bæði Áslaugu og Gretti því
við lékum saman í Galdra-
karlinum í Oz,“ segir Rán,
en það verk var frumraun
hennar í Borgarleikhús-
inu og fór hún þar með
nokkur minni hlutverk.
Rán segist ekki hafa
verið vongóð um að
vera valin í hlutverk-
ið eftir fyrstu pruf-
una. „Ég hélt að
ég hefði algjör-
lega klúðrað
söngprufunni
svo það kom
mér mikið
á óvart
þegar ég
var boðuð í seinni prufuna,“ rifj-
ar hún upp en hún þekkti söguna
um göldróttu barnfóstruna ekki
mikið áður en hún fékk hlutverk-
ið. „Það er óhætt að segja að ég
þekki hana töluvert betur núna,“
segir hún og hlær.
Spurð hvert uppáhalds-
lagið hennar í sýningunni
sé nefnir hún lagið Allt er
hægt og uppáhalds atriðin
sín segir hún vera
Matskeið af sykri
og atriðið þegar
leikföngin lifna
við. Þegar hún á
að velja uppáhalds-
mótleikarann flækj-
ast málin þó. „Þau
eru öll svo frábær.
Gói er samt brjálæðislega fynd-
inn og hann er sá sem kemur
manni oftast til að hlæja.“
Rán er að ljúka 8. bekk í Lang-
holtsskóla en segist ekki hafa
upplifað öfund frá skólafélög-
unum. „Kannski helst því að
á meðan á æfingarferlinu
stóð fór ég oft úr skólanum
í hádeginu. Á móti kom að
ég þurfti bara að læra enn
meira heima,“ segir hún og
hlær.
- trs
Þekkir söguna
betur núna
Rán Ragnarsdóttir leikur Jane í Mary Poppins.
Sýningin Mary Poppins er sú stærsta og veigamesta sem hefur verið sett
á svið í Borgarleikhúsinu hingað til og er búið að ákveða að taka sýning-
arnar upp aftur í haust.
Hartnær 37.000 miðar hafa verið seldir á Mary Poppins frá því að sýningar
hófust í febrúar.
Alls koma 50 manns á sviðið í sýningunni auk þess er fjöldi fólks sem
vinnur að sýningunni á bak við tjöldin.
Yfir 200 sérsaumaðir búningar eru notaðir í verkinu.
Hartnær 37.000 miðar seldir
GÓÐIR VINIR Rán situr hér á leiksviðinu og með henni eru þau Áslaug, Grettir og
Patrekur Thor, en þau eru hópurinn sem leikur systkinin Jane og Michael í Mary
Poppins. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
➜ Gói er alveg brjálæðislega
fyndinn og hann er sá sem
kemur manni oftast
til að hlæja.
PI
PA
R
\T
BW
A
SÍ
A
1
31
17
3
ERU FRAMTÍÐAR-
DRAUMARNIR
KOMNIR Á FLUG?
KYNNTU ÞÉR NÝTT OG SPENNANDI
FLUGVIRKJANÁM Í KEILI!
AST (Air Service Training ltd.) í Skotlandi hefur sett upp útibú frá skóla
sínum hjá Keili á Ásbrú í Reykjanesbæ.
Nám í flugvirkjun er fyrir konur og karla sem vilja öðlast alþjóðleg
starfsréttindi og starfa í fjölbreyttu starfsumhverfi að viðhaldi flugvéla af
öllum stærðum og gerðum. Miklir alþjóðlegir atvinnumöguleikar eru fyrir
flugvirkja og góð tækifæri til frekari menntunar og starfsþróunar.
Um er að ræða tveggja ára samþykkt nám fyrir flugvirkja „Approved IR
Part 66 Category B“ sem er bóklegt og verklegt iðnnám flugvirkja.
Nánari upplýsingar á www.flugvirkjun.is
KEILIR ÁSBRÚ 578 4000 keilir.net