Fréttablaðið - 25.04.2013, Blaðsíða 78
25. apríl 2013 FIMMTUDAGUR
| SPORT | 62
Ekkert lið hefur misst jafnmarga lykilmenn
á milli ára og ÍBV. Sjö fastamenn
eru horfnir á braut og illa hefur
gengið að fylla í skarð þeirra. Liðið
hefur hafnað í 3. sæti þrjú síðustu
tímabil en ólíklegt er að komandi
tímabil verði eftirminnilegt.
Undanfarin ár hafa Eyjamenn
fengið sterka leikmenn frá
Bretlandseyjum rétt fyrir mót.
Nauðsynlegt er að liðið styrki
sig á miðjunni ef ekki á illa
að fara í Eyjum. Sömuleiðis er
enginn líklegur til þess að raða inn
mörkum fyrir Eyjaliðið eins og það
er skipað í dag.
ÍBV hafnar í 9. sætiSPÁ FRÉTTA-
BLAÐSINS
2013
➜ STJARNAN
David James
➜ ÞJÁLFARINN ➜ NÝJU ANDLITIN
➜ HVAÐ ER LANGT SÍÐAN...
... liðið varð meistari – 15 ár ...liðið var ekki inn á topp þrjú – 4 ár ...liðið
spilaði í B-deild – 5 ár ... liðið varð bikarmeistari – 15 ár ... liðið skoraði flest
mörk í deildinni – 9 ár ... Hermann Hreiðarsson lék í ÍBV-búningnum – 16 ár.
Hermann Hreiðars-
son er 38 ára
gamall og á sínu
fyrsta tímabili með
liðið. Hermann hefur
spilað yfir 500 deildar-
leiki á Íslandi og í Englandi og að
baki sextán ára atvinnumannaferil
en þetta er frumraun hans sem
þjálfari.
David James (Bournemouth)
Hermann Hreiðarsson (Coventry)
Gunnar Þorsteinsson (Ipswich)
Eiður Aron Sigurbjörnsson (Örebro)
Fylgstu með þessum:
Víðir Þorvarðarson – fær meiri ábyrgð í
vængbrotinni sókn ÍBV.
➜ EINKUNNASPJALDIÐ VÖRNIN ★★★★★ SÓKNIN ★★★★★ ÞJÁLFARINN ★★★★★ BREIDDIN ★★★★★ íSLANDSMEISTARI: 3 SINNUM (SÍÐAST 1998) BIKARMEISTARI: 4 (1998)
Fyrrverandi landsliðsmark-
vörður Englands er stærsta
nafnið sem spilað hefur
með íslensku félagsliði.
Hann þarf þó að hafa
hugann við verkefnið,
sýna metnað og
leiðtogahæfni svo
Eyjamenn geti brosað
í sumar.
hefst eftir
10
daga
Prófaðu nýja Sensodyne tannburstann og finndu muninn.
Sensodyne tannburstinn
MJÚK BURS
TUN
Á VIÐKVÆM
UM
SVÆÐUM
Ný og betri hönnun.
• Sensodyne tannburstarnir eru sérstaklega hannaðir
fyrir þá sem eru með viðkvæma tannhálsa.
• Burstahausinn er nettur og bogadreginn með ávölum
burstahárum til að auðvelda burstun.
• Burstahárin eru mjúk sem gerir fólki kleift að bursta niður
við tannholdið án þess að skaða tannhold og tannhálsa.
D
Y
N
A
M
O
R
E
Y
K
JA
V
ÍK
SPORT
HANDBOLTI Aðeins fáeinum dögum
eftir að Valur tryggði sæti sitt í
N1-deild karla fyrir næstu leiktíð
var Ólafur Stefánsson, nýr þjálfari
liðsins, mættur til landsins til að
stýra sinni fyrstu æfingu.
„Ég kom nú reyndar bara heim
til að kjósa – horfa á Silfur Egils og
Kastljós,“ sagði hann í léttum dúr.
„Svo er internetið úti svo lélegt að
það gekk ekkert annað en að koma
heim.“
Ólafur er nú að spila í Katar sem
kunnugt er en hann varð meistari
með félagsliði sínu þar á dögunum.
Það eru þó enn tvær bikarkeppn-
ir sem á eftir að klára og mun því
Ólafur aftur halda utan í byrj-
un næsta mánaðar. Hann er svo
alkominn heim um miðjan júní.
Fyrr í vetur var tilkynnt að
Ólafur muni stýra liði Vals en
hann gerði þá tveggja ára samning
við félagið. Hann er þegar búinn
að mynda þjálfarateymi en honum
til aðstoðar verða Ragnar Óskars-
son og Claes Hellgren, markvarða-
þjálfari og fyrrverandi leikmaður
sænska landsliðsins.
„Claes mun koma til landsins
af og til en aðallega sinna mark-
vörðunum með fjarþjálfun. Mark-
varðaþjálfun er ein af mínum
mörgu veiku hliðum og ég er að
reyna að safna mér þeirri þekk-
ingu sem mig vantar,“ sagði Ólaf-
ur og bætti við að hann hefði þegar
lært margt af Hellgren.
Markverðir í annarri íþrótt
„Það er nokkuð sem ég hefði átt
að læra fyrir löngu, fyrir tuttugu
árum eða svo, hvernig þeir hugsa.
Markverðirnir eru auðvitað í allt
öðru sporti en við hinir,“ sagði
hann.
Honum líst vel á það verkefni
sem hann er að koma af stað hjá
Val. „Þetta eru flottir leikmenn
sem við erum með og langflestir
verða líklega áfram. Það gæti svo
gerst að við fengjum einhverja
hjálp og þá líklega að utan,“ sagði
Ólafur og vildi lítið segja um hvort
hann myndi fá til liðsins stórar
kempur úr heimi handboltans.
„Ætli ég leyfi þeim flestum ekki
að vera í friði. Það er þó aldrei að
vita nema einhver nöfn detti inn.“
Fall hefði engu breytt
Valur þurfti að fara í gegnum
umspil til að halda sæti sínu í
deildinni og vann Stjörnuna í
úrslitum eftir tvo spennandi leiki.
„Ég var auðvitað ánægður með
það en Stjarnan var að spila vel
og hefðu vel getað unnið þetta. Ég
samdi auðvitað við Val með þess-
ari óvissu um hvort liðið héldi sæti
sínu í deildinni. En það hefði svo
sem engu breytt enda æfingarnar
alveg jafn góðar fyrir því.“
Og sem fyrr segir er Ólafur
þegar byrjaður að hugsa um næsta
tímabil. „Nú er þetta allt saman
að byrja. Það er hægt að æfa alls
kyns hluti strax í dag – aðallega
það sem snýr að líkamlega þætt-
inum sem hægt er að sinna í fjar-
þjálfun. Þegar ég er svo á staðnum
verður farið meira út í aðra þætti.
En tíminn er byrjaður að „tikka“
hjá okkur.“
eirikur@frettabladid.is
Kom bara heim til að kjósa
Ólafur Stefánsson kom til landsins í fyrradag og stýrði þá sinni fyrstu æfi ngu með Val. Hann er strax
byrjaður að undirbúa lið sitt fyrir næsta tímabil og hefur ráðið Claes Hellgren sem markvarðaþjálfara.
REYNDIR Claes Hellgren og Ólafur Stefánsson slá á létta strengi í Vodafone-höllinni í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
Ólafur Stefánsson er nú á mála hjá Lakhwiya í Katar og klárar tímabilið
ytra áður en hann snýr alfarið aftur heim í júní.
„Gæðin í þessari deild eru ágætlega mikil,“ sagði hann um handboltann
í Katar. „Það er verið að ná í fræga leikmenn og sú þróun mun halda
áfram. Ég spilaði til dæmis við Nikolaj Markussen um daginn og það er
alveg klárt að það eru fleiri sterkir á leið út,“ sagði Ólafur en Markussen er
danskur landsliðsmaður sem var hjá Atletico Madrid.
Hann segir að þessi þróun geti vel verið jákvæð fyrir handboltaíþrótt-
ina. „Það kemur svo ljós hvernig þetta verður eftir HM 2015 [sem haldið
verður í Katar]. Það er allt annar hugsanagangur í gangi þarna úti og menn
eiga erfitt með að plana lengra fram í tímann en nokkra mánuði.“
Öðruvísi í Katar
HANDBOLTI Tillaga liggur fyrir
ársþing HSÍ um að fjölga liðum í
N1-deild karla strax á næstu leik-
tíð. Í stuttu máli snýst tillagan
um að ef sextán lið skrá sig til
leiks á Íslandsmótinu skuli tíu
þeirra spila í efstu deild en sex í
fyrstu deildinni.
Samkvæmt núverandi lögum
HSÍ þarf Íslandsmótið að telja
alls 20 lið svo að skiptingin
verði á þann veg að tíu lið spili í
efstu deild. Sextán lið tóku þátt í
Íslandsmótinu á tímabilinu sem
lýkur nú í vor. Átta léku í N1-
deildinni og átta í 1. deildinni.
Undanfarin ár hafa átta lið
leikið í N1-deild karla og fjögur
efstu liðin farið í úrslitakeppni.
Samkvæmt nýju tillögunni myndi
úrslitakeppnin stækka og átta
efstu liðin fara í úrslitakeppni.
Verði liðunum fjölgað um tvö
í N1-deild karla myndu Stjarnan
og Afturelding bætast við deild-
ina. Tillagan verður tekin fyrir á
ársþingi HSÍ sem haldið verður á
þriðjudaginn næsta. - esá
Tillaga um að
fj ölga liðum
FÉLLU Lið Aftureldingar féll úr
N1-deildinni í vor en mun endur heimta
sæti sitt í deildinni verði liðunum
fjölgað í tíu á næsta tímabili.
FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN