Fréttablaðið


Fréttablaðið - 25.04.2013, Qupperneq 80

Fréttablaðið - 25.04.2013, Qupperneq 80
25. apríl 2013 FIMMTUDAGUR| SPORT | 64 KÖRFUBOLTI „Þetta er frídagur þannig að við munum taka létta æfingu um morguninn. Skjótum aðeins á körfuna og förum svo saman í bröns og hlæjum saman. Leikmenn fara svo heim til sín, fá sér lúr eða hvað þeir vilja gera fram að leik,“ sagði Teitur Örlygs- son, þjálfari Stjörnunnar, um undir- búning sinna manna fyrir leikinn stóra gegn Grindavík í kvöld. Staðan fyrir kvöldið er einföld. Stjarnan leiðir einvígið 2-1 og verð- ur meistari með sigri. Tapi liðið aftur á móti leiknum verður spil- aður oddaleikur í Grindavík. „Þetta er rosalegt tækifæri. Við höfum oft talað um þetta markmið í úrslitakeppninni. Menn mega ekki missa sjónar á þessu mark- miði. Sama hvort við vinnum eða töpum. Menn hafa reynt að halda fókus á markmiðið og það er bann- að að missa sjónar á því. Einbeit- ingin hefur sem betur fer verið góð í liðinu,“ sagði Teitur. „Við gáfum það út fyrir tíma- bilið að markmiðið væri að verða Íslandsmeistari. Við höfum viljað bæta okkur frá hverju ári og búa til sigurhefð. Það taka allir Stjörnuna alvarlega í dag.“ Teitur er reynslumikill kappi og var mjög sigursæll leikmaður. Reynsla hans mun líklega vega þungt í því að undirbúa liðið sitt rétt fyrir leikinn. Enginn orðið Íslandsmeistari „Það er oft best að gera ekki of mikið úr hlutunum þó svo að þetta sé stærsta tækifæri Stjörnunn- ar frá upphafi til þess að verða meistari. Ég held að það hafi eng- inn í okkar liði orðið Íslandsmeist- ari áður. Hungrið er því fáránlega mikið í liðinu. Það hjálpar til að liðið hefur verið lengi saman og það er mikil reynsla í liðinu. Við erum í eldri kantinum og strákarnir eru þroskaðir og það hefur sýnt sig í síðustu leikjum. Við höfum ekki gefið mörg færi á okkur,“ sagði Teitur. Hann hefur enga trú á öðru en að hans menn verði klárir í bátana og að stressið taki ekki yfir. „Það getur verið stress rétt í upphafi en menn spila það úr sér. Mönnum líður kannski illa þegar þeir eru að bíða. Svo þegar menn koma í upphitun á sínum heimavelli sjá þeir að það er ekkert að óttast. Ég held að stemningin verði ekk- ert yfirþyrmandi. Vonandi koma fleiri en áður. Vonandi fáum við fólkið sem hefur verið að íhuga að koma. Þetta er staðurinn og stund- in til þess að koma á leik. Vonandi verður kofinn troðfullur. Við höfum staðið okkur vel í leikjum þar sem mikið er í húfi og allt í beinni. Mínir menn virðast þrífast á þann- ig umhverfi sem er frábært.“ henry@frettabladid.is Hungrið er fáránlega mikið Það er stórt kvöld fram undan í Garðabæ en körfuboltalið félagsins getur þá tryggt sér sinn fyrsta Íslands- meistaratitil í körfubolta. Það er mikil eft irvænting fyrir leiknum í Garðabæ og það kemur í hlut þjálfarans, Teits Örlygssonar, að stilla spennustig leikmanna rétt fyrir leikinn. Hann hefur engar áhyggjur af sínu liði. STANDA SAMAN Teitur þarf að huga að því að lærisveinar hans verði með spennu- stigið rétt stillt í leiknum í kvöld. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI SÍÐUSTU FIMM LIÐ SEM GÁTU TRYGGT SÉR TITILINN Á HEIMAVELLI Grindavík 2012. 91-98 tap gegn Þór Þ. Keflavík 2010. 69-105 tap gegn Snæfelli. Snæfell 2010. 73-82 tap gegn Keflavík. KR 2009. 84-83 sigur gegn Grindavík. Grindavík 2009. 83-94 tap gegn KR. HANDBOLTI Forráðamenn austur- ríska úrvalsdeildarfélagsins Westwien höfðu ekki erindi sem erfiði er þeir buðu landsliðs- manninum Snorra Steini Guð- jónssyni að gerast spilandi þjálf- ari liðsins á dögunum. Snorri hélt til Vínarborgar til viðræðna við fulltrúa félagsins sem lögðu hart að honum að taka starfið að sér. Eftir nokkra íhug- un ákvað Snorri hins vegar að hafna tilboði félagsins. Hann hefur spilað með danska liðinu GOG í vetur en liðið vann sér þá sæti í dönsku úrvalsdeild- inni með Snorra í lykilhlutverki. Snorri er samningsbundinn félaginu. GOG hefur verið að rífa sig upp eftir að félagið fór á hausinn á sínum tíma og spurning hvað félagið gerir fyrir næsta vetur. Erlingur Richardsson, þjálfari ÍBV, er með tilboð frá Westwien sem hann íhugar þessa dagana en Erlingur er einnig í þjálfarateymi landsliðsins. - esá Snorri hafnaði Westwien NEI TAKK Snorri Steinn vildi ekki fara til Austurríkis. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM Allt sem þú þarft... Yfirburðir Fréttablaðsins staðfestir! Auglýsing í Fréttablaðinu nær til yfir 92% lesenda blaðanna Lesa bæði Fréttablaðið og Morgunblaðið Lesa bara Morgunblaðið Lesa bara Fréttablaðið 64% 8% 28% Fréttablaðið er sem fyrr mest lesna dagblað landsins með glæsilegt forskot á samkeppnisaðila sinn eins og síðasta könnun Capacent Gallup sýnir ótvírætt. Prentmiðlakönnun Capacent Gallup. 18-49 ára á höfuðborgarsvæðinu. Meðallestur á tölublað, jan.-júní 2012.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.