Fréttablaðið - 25.04.2013, Síða 86
25. apríl 2013 FIMMTUDAGUR| MENNING | 70
„Hugmyndin fæddist á andvöku-
nótt í nóvember. Ég lá andvaka og
fékk skyndilega þá flugu í haus-
inn að skipuleggja tónlistar-
hátíð á Ólafsfirði sem ætti
að heita Ólæti. Ég vakti
Lilju, kærustu mína,
sagði henni frá hugmynd-
inni og fór svo og skrifaði
þetta allt niður,“ segir Sunna
Björg Valsdóttir, nemandi við
Menntaskólann á Tröllaskaga.
Hún skipuleggur tónlistar- og
menningarhátíðina Ólæti sem
fram fer á Ólafsfirði helgina 4.
til 7. júlí ásamt Lilju Björk Jóns-
dóttur, Elísabetu Örnu Vals dóttur,
Auði Ingólfsdóttur og Hafdísi
Arnardóttur.
Sunna Björg, Lilja
og Auður sátu nám-
skeið hjá Evrópu
unga fólksins í
byrjun þessa árs
og sóttu í kjöl-
farið um styrk
hjá samtök-
unum. „Eftir
námskeiðið
vorum við
komnar með fullmótaða hug-
mynd og styrkurinn gerði okkur
svo kleift að fara af stað,“ segir
Sunna Björg. Hún viðurkennir að
það sé að mörgu að huga þegar
skipuleggja á heila tónlistarhátíð.
„Ég hélt að þetta yrði ekk-
ert mál þar sem hugmyndin var
þegar komin, en það þarf að
huga að mörgu og miklu fleira en
mig hafði órað fyrir. Það þarf til
dæmis að fá leyfi fyrir hinu og
þessu, redda gæslu og auðvitað
gistingu fyrir gesti og tónlistar-
fólk.“
Hátt í tuttugu hljómsveitir
hafa staðfest komu sína á Ólæti
og þeirra á meðal er raftónlistar-
maðurinn Skurken og sveitirnar
Vigri og Hide Your Kids. Sú
síðastnefnda er frá Garða-
bæ og tók þátt í Músíktil-
raunum í ár. „Hugmyndin
var sú að taka inn hljóm-
sveitir sem eru enn að
fóta sig og gefa þeim
þannig tækifæri
til að koma sér á
framfæri. Við
reynum svo líka
að fá þekktari nöfn til að koma
fram til að trekkja að.“
Að sögn Sunnu Bjargar hafa
Ólafsfirðingar sýnt stúlkunum
mikinn stuðning. „Við erum ein-
mitt á fullu að kynna hátíðina
fyrir bæjarbúum og hvetja þá til
þátttöku,“ segir Sunna að lokum.
Miðasala á hátíðina hefst á Midi.
is og á völdum Olísstöðvum þann
1. maí næstkomandi.
sara@frettabladid.is
Tónlistarhátíð varð
til á andvökunótt
Sunna Björg Valsdóttir skipuleggur tónlistarhátíðina Ólæti sem fram fer á Ólafs-
fi rði í júlí. Hugmyndin varð til er Sunna Björg lá andvaka eina nótt í nóvember.
Vigri
Skurken
Kaleó
Sjálfsprottin spévísi
Hide Your Kids
Tuttugu sveitir
koma fram á Ólátum
Mugison heldur útskriftar tónleika
í hljóðverinu Sundlauginni í Mos-
fellsbæ á laugardaginn. Hann
útskrifast með meistaragráðu í
sköpun, miðlun og frumkvöðlastarfi
frá tónlistardeild Lista háskóla
Íslands nú í vor.
„Þetta eru síðustu tónleikarnir
tengdir skólanum. Hringferðin með
Of Monsters and Men og tónleikarn-
ir á Sónar voru hluti af því líka,“
segir Mugison. Nám hans tengist
hljóðfærinu Mirstrument sem hann
byrjaði að smíða fyrir þremur árum
ásamt Páli Einarssyni. Það saman-
stendur af lyklaborði með 192 tökk-
um, tveimur iPad-tölvum og í gólf-
búnaði eru rafmagn, ljósatengi,
RME-hljóðkort og fleira. „Ég hef
verið að reyna að gera eitthvað við
þetta hljóðfæri og skrásetja ferlið.
Þetta er síðasti hlutinn af því hvern-
ig mér gengur og svo fer þetta allt
inn í lokaritgerðina sem ég á að
skila eftir mánuð,“ segir hann.
Aðspurður segir hann námið hafa
verið virkilega áhugavert. „Maður
kemur inn með verkefni sem maður
ætlar að einbeita sér að og svo er
stutt við bakið á manni. Ég sendi
„mentornum“ tölvupóst í hverri
viku um hvað ég er að gera. Þetta er
svolítið eins og maður fengi einka-
þjálfara sem hvetur mann áfram og
sér nýja vinkla á hlutunum.“
Mugison hvetur þá sem ætla á
tónleikana, sem hefjast kl. 17, til að
taka með sér pullu ef þeir vilja setj-
ast niður. - fb
Útskrifast í Mirstrument-fræðum
Mugison heldur útskrift artónleika í Sundlauginni í Mosfellsbæ á laugardaginn.
MUGISON Mugison byrjaði að smíða
mirstrument fyrir þremur árum.
Verið er að undirbúa sýningar á einleiknum How to
Become Icelandic in 60 Minutes í Ósló, Stokkhólmi og
í Prag.
„Við ætlum að prófa á þessum stöðum og sjá hvort
það gengur vel. Við munum vinna með þar til gerðum
framleiðendum, handritshöfundum og leikurum á
hverjum stað,“ segir höfundurinn og leikarinn Bjarni
Haukur Þórsson. Leikstjóri verksins er Sigurður
Sigurjóns son.
Rúmlega sjötíu sýningar á einleiknum eru fyrirhug-
aðar á þessu ári í Kaldalóni í Hörpu. „Það voru tæp-
lega sextíu sýningar í fyrra. Það var tilrauna verkefni
sem gekk vonum framar og núna er þegar byrjað að
tala um næsta ár líka,“ segir Bjarni Haukur en Örn
Árnason mun leysa hann af í einhverjum sýningum
vegna mikils sýningaálags.
Fyrsta sýningin í nýrri lotu verður 30. apríl. Að
sögn Bjarna Hauks eru 20% áhorfenda í salnum yfir-
leitt Íslendingar. „Það hefur komið mér skemmti-
lega á óvart hve margir Íslendingar hafa látið sjá sig.
Þarna er verið að gera grín að Íslendingum. Við erum
náttúru lega mjög spes á margan hátt.“ - fb
Prófar í Ósló, Stokkhólmi og Prag
Einleikur Bjarna Hauks, How to Become Icelandic in 60 Minutes, aft ur af stað.
ÞRÍR GÓÐIR Örn Árnason, Sigurður Sigurjónsson og Bjarni
Haukur Þórsson sýna einleikinn í Kaldalóni.
„Það mun vera appelsínu Brazzi
borinn fram í rauðvínsglasi með
klökum. Framsetningin skiptir
sköpum.“
Kristján Freyr Einarsson, grafískur hönnuður.
DRYKKURINN
➜ Mugison bjó til hliðarsjálfið Monkeyboy sem hitaði upp fyrir
hann sjálfan á túrnum með Of Monsters and Men um Evrópu.
Þannig gat hann prófað sig áfram á Mirstrument-hljóðfærinu.
VINNA SAMAN
Sunna Björg
Valsdóttir, til
hægri, skipu-
leggur
tónlistar-
hátíðina Ólæti
ásamt kærustu
sinni, Lilju
Björk Jóns-
dóttur, og þremur
öðrum stúlkum.
Sýningin Mýrar, móar og fjöll með myndlistarmanninum Tolla
verður opnuð í Safnahúsinu í Borgarnesi í dag. Máltækið „Ber
er hver að baki nema sér bróður eigi“
á vel við því Bubbi Morthens, bróðir
Tolla, ætlar að mæta með kassagít-
arinn og spila við opnunina klukk-
an 14.
Sýnd verða málverk og teikn-
ingar eftir Tolla og eru verkin inn-
blásin af töfrum borgfirskra
sveita. Listamaðurinn
verður viðstaddur opn-
unina til klukkan 16
og fá gestir því tæki-
færi til að spyrja
hann nánar út í verk-
in. - fb
Bræður í Borgarnesi
Bubbi Morthens syngur á myndlistarsýningu Tolla.
BRÆÐUR Bubbi
morthens og Tolli verða í
Borgarnesi í dag.
D
YN
A
M
O
R
EY
K
JA
V
ÍK
Fimm gamlingjar komast að því að það er miklu
betri aðbúnaður í fangelsum en á elliheimilum
og grípa til sinna ráða. En leiðin á bak við rimlana
reynist þyrnum stráð ...
SPENNANDI
KÓSÍKRIMMI!
2. SÆTI
EYMUNDSSON KILJUR
17.-23. APRÍL