Fréttablaðið - 29.04.2013, Page 2

Fréttablaðið - 29.04.2013, Page 2
29. apríl 2013 MÁNUDAGUR| FRÉTTIR | 2 Eldar, hvort varstu ánægðari með þingkosningarnar eða EVE-kosningarnar? „Það er erfitt að segja, en ég leyfi mér að vona að við eigum fyrir höndum Bjarta framtíð, fyrir bæði Ísland og EVE-heiminn.“ Eldar Ástþórsson, upplýsingafulltrúi CCP, sat á lista Bjartrar framtíðar og kom einnig að kosningum í sýndarheimi leiksins EVE Online. BANGLADESS Eldur braust í gær út í rústum fataverksmiðjunnar í Bangladess sem hrundi í síðustu viku. Verkfæri bjögunarmanna sem reyndu að bjarga konu úr rústunum orsökuðu eldinn sem var fljótur að breiðast út enda nóg af eldfimu efni í rústunum. Ekki tókst að bjarga konunni. Minnst 377 manns eru taldir af eftir að fataverksmiðjan, sem er í Dakka, höfuðborg Bangladess, hrundi á miðvikudaginn. Þrjú þús- und manns voru þá við störf í verk- smiðjunni en líkurnar á að finna einhvern á lífi núna fara minnk- andi með hverri mínútunni að sögn björgunarmanna. Verksmiðjueigandinn var hand- tekinn á landamærum Indlands er hann reyndi að flýja land en alls hafa sex manns verið handteknir vegna hrunsins, þar af tveir verk- fræðingar. Mótmæli hafa átt sér stað í Dakka meðal verksmiðju- starfsmanna í kjölfar slyssins og krefjast þeir meðal annars betri aðstæðna og kjara. - áp Minnst 377 eru látnir eftir að verksmiðja hrundi til grunna í Dakka höfuðborg Bangladess: Eldur braust út í rústum fataverksmiðjunnar HANDTEKINN Eigandi verksmiðjunnar sem hrundi í Bangladess á miðvikudag var handtekinn um helgina er hann reyndi að flýja land. Minnst 377 eru látnir. INDLAND Tuttugu og tveir eru í haldi lögreglu í Delí á Indlandi eftir að sex ára stúlku var nauðg- að á almenningssalerni og hún skorin á háls. Árásin átti sér stað á laugardag í útjaðri borgarinn- ar og var farið með stúlkuna á spítala þar sem hún gekkst undir aðgerð á hálsi og kynfærum. Yfirheyrslur standa yfir mönn- unum og segir lögreglustjórinn Ajay Chaudhary að lögreglan sé staðráðin í að finna hinn seka. 22 handteknir í Nýju-Delí: Nauðguðu og skáru sex ára stúlku á háls LÖGREGLUMÁL Grunnskólapiltur réðst á ókunnuga níu ára stelpu á göngustíg í Hafnarfirði á laugardag og reyndi að skera hana á háls með hnífi. Pilturinn hafði verið útskrifaður af Barna- og unglingageð- deild Landspítalans sólarhring fyrir árásina. Stúlkan var á gangi eftir göngustíg við Herjólfs- götu í vesturbæ Hafnarfjarðar síðdegis á laugardag ásamt vinkonu sinni þegar pilturinn, sem er sextán ára gamall og á síðasta ári í grunnskóla, kom aðvíf- andi, vopnaður hnífi. Pilturinn greip stúlkuna, hélt henni aftan frá, lagði stóran hníf að hálsi hennar og veitti henni áverka. Nærstatt par varð vitni að árásinni. Konan rak upp mikið óp sem stökkti piltinum á flótta en maðurinn hljóp hann uppi. Í millitíðinni hafði hann kastað hnífnum í sjóinn. Stúlkunni var komið á spítala og reyndist vera með talsverðan áverka á hálsi, þó ekki lífshættuleg- an. Þá var hún með áverka á höndum eftir að hafa gripið til varna gegn árásarmanninum. Hún var útskrifuð í gær og fór til síns heima. Piltinum var komið rakleiðis aftur undir læknis- hendur á geðdeildinni. Hann á við mjög alvarleg andleg veikindi að stríða og er tæpast sakhæfur, samkvæmt upplýsingum blaðsins. Haft var sam- band við barnaverndaryfirvöld vegna málsins, enda er pilturinn ekki lögráða. Hnífurinn sem pilturinn beitti fannst við leit í fjörunni í gær. - sh Níu ára stúlka var heilan dag á spítala eftir árás veiks unglingspilts: 16 ára piltur skar telpu á háls Á VETTVANGI Stúlkan var á gangi með vinkonu sinni á þessum göngustíg þegar árásin óhugnanlega átti sér stað. Hnífnum kastaði pilturinn í sjóinn. FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL ÍÞRÓTTIR „Að öllu öðru óbreyttu er útlit fyrir að við munum þurfa að vísa hluta af yngstu iðkendum félagsins frá ef þeir vilja halda áfram hjá okkur á næsta ári,“ segir Jón Finnbogason, formaður Íþróttafélagsins Gerplu í Kópa- vogi. Gerpla hefur frá því í fyrra- sumar óskað eftir því við bæjar- yfirvöld í Kópavogi að fá aðgang að öðrum íþróttahúsum bæjarins en því sem félagið hefur til afnota í Versölum. Jón segir að þótt aðstað- an í Versölum sé frábær þá sé áhuginn á fimleikum mun meiri en svo að Gerpla geti tekið við öllum sem vilja komast að. Í bréfum til bæjaryfirvalda frá því síðastliðið haust kemur fram að eitt þúsund börn bíði eftir að geta byrjað að stunda fimleika hjá félaginu. Sum þeirra hafi beðið í þrjú ár. Að sögn Jóns má meðal annars rekja sprenginguna til samsetn- ingar Kópavogsbúa með tilkomu nýrra hverfa í bænum. Mikið sé af börnum í Kópavogi. „Ég er alls ekkert viss um að við stönd- um frammi fyrir sama vandamáli eftir tíu ár,“ bendir Jón á. Hann segir að leysa mætti vandann nú með því að hleypa Gerplu inn í íþróttahúsin Smárann eða Kórinn. Í bæjarstjórn hafi einmitt verið rætt um að nýta þau hús betur. „Bæjarstjórinn segist hvetja íþróttafélögin til að nýta húsin betur. Ef mönnum finnst léleg nýt- ing á íþróttahúsunum þá getum við leyst þann vanda. Hleypið okkur bara inn í íþróttahúsin og nýting- in mun snarbatna,“ segir Jón, sem kveður bæinn ekki enn hafa svar- að fyrrnefndum erindum frá því í haust og ekki léð máls á því að hleypa Gerplu í Smárann eða Kór- inn nema í staka tíma sem ekki gagnist. Skýringin sé einföld: „Smárinn er fyrir Breiðablik og Kórinn er fyrir HK, það er bara pólitísk ákvörðun. Það er ekki sagt beint við okkur en það er augljóst og það sjá allir,“ segir Jón. Hús- næðiseklan muni bitna mest á þeim börnum í flokki þriggja til fimm ára sem ættu að óbreyttu að færast upp um flokk næsta haust. „Yngstu börnin æfa á sunnudög- um. Við sex ára aldur færast þau yfir á virka daga en aðstaðan er algjörlega sprungin á þeim tímum. Við þurfum bæði að vísa frá fólki sem vill koma til okkar og er á biðlista og ef við sjáum ekki tals- vert brottfall hjá yngstu iðkend- unum núna í sumar þá munum við þurfa að vísa þeim frá,“ segir for- maður Gerplu. gar@frettabladid.is Yngstu börnin þurfa að hætta hjá Gerplu Formaður fimleikafélagsins Gerplu segir að sum yngstu börnin verða látin hætta fáist ekki meira húsnæði til að anna vaxandi aðsókn. Gerpla vilji fá tíma í öðrum íþróttahúsum Kópavogsbæjar en fái ekki þó hvatt sé til betri nýtingar í bæjarstjórn. FIMLEIKAFÓLK HJÁ GERPLU Barnasprengja í Kópavogi og aukinni áhugi á fimleik- um hefur orðið til þess að Gerpla getur langt í frá tekið við öllum sem vilja stunda íþróttina hjá félaginu. FRÉTTABLAÐIÐ/ Ef mönn- um finnst léleg nýting á íþróttahús- unum þá getum við leyst þann vanda. Jón Finnbogason, formaður Gerplu í Kópavogi BAÐST LAUSNAR Jóhanna Sigurðardóttir baðst lausnar fyrir sig og ráðuneyti sitt á Bessastöðum í gær og skaust svo út og inn í bíl, fram hjá blaðamönnum sem biðu hennar. FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL STJÓRNMÁL Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra gekk í gær á fund Ólafs Ragnars Grímssonar, forseta Íslands, og baðst lausnar fyrir sig og ráðuneyti sitt í kjölfar kosningaósigurs stjórnarflokkanna. Ólafur Ragnar tilkynnti á blaðamannafundi í kjölfarið að hann hygðist í dag funda með fulltrúum allra flokka sem náðu kjöri á þing og ákveða í kjölfarið hverjum hann mundi fela stjórnarmyndunarumboð. Það verður að líkindum annaðhvort formaður Sjálfstæðisflokksins eða Framsóknar- flokksins. Forsetinn sagði að í ljósi reynslunnar væri mikilvægt „að ekki sé bara traustur stuðningur við ríkisstjórnina á Alþingi heldur líka víðtæk sátt í samfélaginu“. - sh Forsetinn íhugar hver skuli fá stjórnarmyndunarumboð: Fundar með formönnum í dag ÍTALÍA, AP Ráðherrar í nýmynd- aðri ríkisstjórn á Ítalíu sóru embættiseið í gær. Enrico Letta er forsætisráðherra landsins. Greidd verða atkvæði um stuðn- ing við nýja ríkisstjórn á morgun. Á sama tíma og ráðherrarnir sóru embættiseið skaut maður tvo lögregluþjóna fyrir utan forsætis- ráðuneytið. Annar lögreglumann- anna er alvarlega særður, en hinn minna. Maðurinn hefur sagst hafa ætlað að skjóta stjórnmála- menn, en þar sem hann sá enga slíka hafi hann ákveðið að skjóta lögreglumennina í staðinn. - þeb Skotárás við ráðuneyti: Ný ríkisstjórn sór eið á Ítalíu SPURNING DAGSINS

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.