Fréttablaðið - 29.04.2013, Síða 6

Fréttablaðið - 29.04.2013, Síða 6
29. apríl 2013 MÁNUDAGUR| FRÉTTIR | léttur fiskréttur Vertu með Góð leikfimi fyrir allar konur sem vilja styrkja sig og líða betur. ASKÝRING | 6 2013 Möguleg stjórnarmynstur samanlagt fylgi á landsvísu fjöldi þingmann a umfram 32 +6 +2 +3 +3 0 51,1% 45,6% 48,2% 48,2% 43,6% +2 47,6% ➜ Atli Gíslason ➜ Álfheiður Ingadóttir ➜ Árni Johnsen ➜ Ásbjörn Óttarsson ➜ Ásta R. Jóhannesdóttir ➜ Birkir Jón Jónsson ➜ Björgvin G. Sigurðsson ➜ Björn Valur Gíslason ➜ Jóhanna Sigurðardóttir ➜ Jón Bjarnason ➜ Jónína Rós Guðmundsdóttir ➜ Lilja Mósesdóttir ➜ Lúðvík Geirsson ➜ Magnús Orri Schram ➜ Margrét Tryggvadóttir ➜ Mörður Árnason ➜ Ólafur Þór Gunnarsson ➜ Ólína Þorvarðardóttir ➜ Ólöf Nordal ➜ Sigmundur Ernir Rúnarsson ➜ Siv Friðleifsdóttir ➜ Skúli Helgason ➜ Þorgerður K. Gunnaradóttir ➜ Þór Saari ➜ Þráinn Bertelsson ➜ Þuríður Backman ÞESSI SITJA EKKI LENGUR Á ALÞINGI Yfirgnæfandi líkur eru á samstjórn Sjálfstæðis- og Framsóknarflokks, samkvæmt heimildum Fréttablaðs- ins. Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, hefur lýst því yfir að hann vilji láta reyna á slíka stjórn, enda sé það eina mögulega tveggja flokka stjórnarsamstarf- ið. Sigmundur Davíð Gunnlaugs- son, formaður Framsóknarflokks- ins, segir flokkinn hins vegar munu láta málefnin ráða för. Hann muni ekki hvika frá stefnu sinni varðandi skuldamál heimilanna. Engar formlegar viðræður fóru af stað í gær. „Ég ætla nú bara að bíða eftir því að forsetinn fari yfir málin og gefa honum svigrúm til þess og meta svo hlutina í fram- haldi, en það hafa ekki farið fram neinar viðræður milli okkar og ann- arra flokka. Ég geri ráð fyrir því að við bíðum eftir því að hann kalli í okkur,“ sagði Sigmundur Davíð. Ólafur Ragnar Grímsson, for- seti Íslands, tilkynnti í gær að í dag myndi hann hitta formenn allra flokka sem náðu inn á þing og í framhaldi af því ákveða hverjum fyrst yrði veitt umboð til stjórnar- myndunar. Hver verður forsætisráðherra? Heimildir Fréttablaðsins herma að innan Sjálfstæðisflokksins hafi margir hverjir viljað að formað- urinn tæki forystu og kallaði til viðræðna, áður en forsetinn ræddi við alla flokka. Ekki væri eftir neinu að bíða og með því fengi flokkurinn ákveðið forskot í barátt- unni um forsætisráðherrastólinn. Þar liggur í raun mesta spennan. Sjálfstæðisflokkurinn er stærsti flokkurinn, en úrslitin eru hins vegar þau næstverstu í sögu flokks- ins. Framsóknarflokkurinn er ótví- ræður sigurvegari kosninganna og flokkarnir hafa jafnmarga þing- menn, nítján talsins. „Ég ætla ekki að stilla því þannig upp á þessum tímapunkti,“ sagði Bjarni Benediktsson um það hvort hann ætlaði að krefjast forsætis- ráðherraembættisins. Ráðuneytum skipt upp Heimildir blaðsins herma að um leið og það skýrist hvor flokk- urinn muni leiða ríkisstjórnina verði tiltölulega auðvelt að skipta ráðuneytum niður. Bjarni hefur talað um að skipta velferðarráðu- neytinu upp og hafa heilbrigðis- málin í sér ráðuneyti. Verði af því þarf að skipta öðru ráðuneyti upp, eigi flokkarnir að vera með jafnmarga ráðherra, sem er langlíklegast. Þar hafa menn horft til innanríkisráðu- neytisins eða atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytisins, sam- kvæmt heimildum Fréttablaðs- ins. Það er því líklegt að ráð- herrar í næstu ríkisstjórn verði tíu talsins. Skuldamálin Fyrst þarf hins vegar að semja um málefnin. Þó ákveðinn samhljómur hafi verið í áherslum flokkanna á skuldamál heimila, var Framsókn með skýrt afmarkaðar tillögur sem enginn hinna flokkanna hefur tekið undir. Að sumu leyti er flokkurinn því einangraður. Hann er hins vegar sigurvegari kosninganna og getur bæði starfað til hægri og vinstri. Líklega verður fundin einhver leið til að semja um þau mál, hvernig sem hún mun líta út. Aðrir flokkar en þeir tveir stærstu gera ekki ráð fyrir öðru en að Sjálfstæðis- og Framsóknar- flokkur nái saman. Þeir huga varla að öðrum möguleikum fyrr en, og þá ef, siglir í strand hjá þeim. Slagurinn mun standa um forystuhlutverkið Framsóknarflokkurinn mun ekki gefa eftir í skuldamálum heimilanna í stjórnar- myndunarviðræðum. Sjálfstæðisflokkurinn vill samstarf með Framsókn. Engar formlegar viðræður hafnar en þegar er farið að huga að fjölgun ráðherra. HAFA SIG TIL Forystumenn flokkanna hittust í umræðum á Stöð 2 í gærkvöldi. Engar formlegar viðræður eru hafnar um stjórnarmyndun. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM Kolbeinn Óttarsson Proppé kolbeinn@frettabladid.is

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.