Fréttablaðið


Fréttablaðið - 29.04.2013, Qupperneq 8

Fréttablaðið - 29.04.2013, Qupperneq 8
29. apríl 2013 MÁNUDAGUR| FRÉTTIR | www.volkswagen.is Fágaður ferðafélagi Volkswagen Tiguan Tiguan Sport & Style kostar aðeins frá 6.180.000 kr. Volkswagen Tiguan sportjeppi eyðir aðeins 5,8 l á hverja 100 km. Fullkomið leiðsögukerfi fyrir Ísland Komdu og reynsluaktu Volkswagen Tiguan KATRÍN JAKOBS- DÓTTIR Vinstri græn „Við erum himinlifandi með úrslitin, förum inn með góðan þingflokk og erum staðráðin í að hafa góð áhrif í samræmi við okkar áherslur,“ segir Guðmundur Steingrímsson, formaður Bjartrar framtíðar. „Við fórum hátt í könnunum í janúar og það var okkur mikilvægt því svo fór samkeppnin að harðna og þá var ansi gott að vera búin að stimpla sig inn. Við vissum að það yrði ekki einfalt að koma stjórnmálaafli inn á þing – það voru margir sem reyndu það. Við erum ánægð með það að hafa náð sex mönnum inn.“ - kh Himinlifandi með úrslitin 8,3% GUÐ MUNDUR STEIN- GRÍMSSON Björt framtíð „Ég er mjög þakklátt og bjartsýn fyrir hönd Pírata að okkur hafi tekist að setja heimsmet með að koma Pírötum á þjóðþing. Það þýðir að æ fleiri sjá að þessi nýja áhersla og nýir tímar í stjórnmálum er eitthvað sem kjósendum finnst mikilvægt,“ segir Birgitta Jónsdóttir, kapteinn hjá Pírötum. „Það sýndi sig hins vegar með mjög afgerandi hætti hvað þessi 5% regla er út í hött. Það hefði getað farið svo að hátt í 20% þjóðarinnar fengju ekki sína fulltrúa á þing, sem er ótrúlegt og mikill lýðræðishalli.“ - kh 5% reglan út í hött 5,1% BIRGITTA JÓNSDÓTTIR Pírataflokkur 8 2013 VIÐBRÖGÐ LEIÐTOGANNA Við gleðjumst yfir því að njóta mests stuðnings allra flokka á þinginu og þetta var virkilega spennandi, bæði í aðdraganda kosninganna, vegna þess hve miklar sveiflur voru á fylginu, og síðan alla kosninganóttina. Ég neita því ekki að ég hefði vijlað sjá þarna ákveðna þingmenn sem lengi áttu von, enda inni á þingi. En svona er þetta, maður fær ekki allt sem maður biður um í þessu,“ segir Bjarni Benediktsson. „Ég tel að þegar til allra þátta sé horft þá eigi Sjálfstæðisflokkurinn að vera þakk- látur fyrir að fá þetta traust.“ - kóp Þakklátur fyrir traustið 26,7% BJARNI BENEDIKTS- SON Sjálfstæðis- flokkur „Niðurstaðan er auðvitað mikið gleðiefni fyrir okkur. Fyrst og fremst sýnir hún að stór hluti þjóðarinnar telur mikilvægt að forgangsraða í samræmi við það sem við höfum talað fyrir í þessari kosningabaráttu. Sem betur fer þá þýðir stuðningur við þá forgangsröðun líka að við fáum sterka stöðu til að fram- kvæma í samræmi við þann vilja,“ segir Sigmundur Davíð Gunnlaugsson. Hann segir framhaldið skýrast af því hverjir verði tilbúnir til að vinna með flokknum að þeim málum. - kóp Þjóðin styður forgangsröðina 24,4% SIGMUNDUR DAVÍÐ GUNN- LAUGSSON Framsóknar- flokkur „Þetta er auðvitað býsna afdráttarlaus niðurstaða. Ríkis- stjórnarflokkarnir tapa miklu fylgi og Framsóknarflokkurinn er hinn ótvíræði sigurvegari. Nú vinnum við bara út úr þess- ari stöðu,“ segir Árni Páll Árnason. Hann telur úrslitin ekki breyta neinu varðandi sína stöðu. „Þessi mæling var komin fram áður en ég tók við flokknum. Það er hins vegar auð- vitað alveg ljóst að við höfum ekki náð viðspyrnu í kosninga- baráttunni.“ - kóp Náðum ekki viðspyrnu 12,9% ÁRNI PÁLL ÁRNASON Samfylking „Ég er sátt með okkar baráttu og held að sá meðbyr sem við höfum fundið fyrir á síðustu dögum hafi skilað sér. Því ber þó ekki að leyna að ég hefði viljað fá aðeins meira fylgi. Ég lagði mig aðeins í nótt og þá vorum við með 11,9 prósent og þegar ég vaknaði aftur var fylgið komið niður í 10,9 og ég ákvað því að sofa ekki meira svo það minnkaði ekki um fleiri prósent,“ segir Katrín Jakobsdóttir. „Við getum hins vegar verið nokkuð ánægð með baráttuna og góðan anda í hópnum. Ég er bjartsýn á framtíðina, þó við hefðum viljað meira.“ - kóp Bjartsýn á framtíðina 10,9% Kjörsókn í kosningunum á laugar- dag var 81,4 prósent og hefur kjör- sókn í þingkosningum ekki verið lélegri frá því á fyrri hluta síðustu aldar. Mest var kjörsóknin í Norð- vesturkjördæmi, 83,6 prósent en minnst var hún í Reykjavíkurkjör- dæmi norður, 78,9 prósent. Grétar Þór Eyþórsson, pró- fessor í stjórn- málafræði, segir laka kjörsókn ekki koma sér á óvart. Hann telur tengsl á milli lélegrar kjörsóknar í síðustu sveitar- stjórnarkosning- um og í alþingiskosningunum nú. „Það var þá sem traustið á stjórn- málunum fór lengst niður og það hefur ekki jafnað sig neitt almenni- lega síðan. Og við erum líka búin að sjá farsa í kringum þinglokin um daginn, sem var kannski ekki til að bæta þarna úr. Hins vegar held ég að fjöldi framboða hafi tosað kjör- sóknina upp á móti þessu.“ Töluvert var um útstrikanir í Reykjavíkurkjördæmunum tveim- ur. Katrín Theodórsdóttir, formaður yfirkjörstjórnar í Reykjavík norð- ur, sagði í gærkvöldi að yfirkjör- stjórn myndi skila skýrslu í dag og þá komi í ljós hverjir voru strikað- ir mest út og hvort útstrikanir hafi haft einhver áhrif. Fimm fram- bjóðendur í kjördæminu voru mikið strikaðir út. Sveinn Sveinsson, for- maður yfirkjörstjórnar í Reykjavík suður, tók í svipaðan streng og sagð- ist vonast til þess að hægt yrði að greina frá útstrikunum í dag. Í Suðurkjördæmi var einnig nokkuð um útstrikanir, eða á um þúsund kjörseðlum. Mest var strik- að út hjá Sjálfstæðisflokknum og oftast var Ásmundur Friðriksson strikaður út. Það er þó ekki talið munu hafa nein áhrif. Lítið var um útstrikanir í Norð- vestur- og Norðausturkjördæmum að sögn yfirkjörstjórna þar. Flestir efstu menn á listum í Norðaustur- kjördæmi voru strikaðir út auk þess sem nokkrir strikuðu yfir Val- gerði Sverrisdóttur, fyrrverandi ráðherra, sem var í heiðurssæti hjá Framsóknarflokknum í kjör- dæminu. Ekki hafa fengist upplýs- ingar um útstrikanir í Suðvestur- kjördæmi. thorunn@frettabladid.is Kjörsókn ekki verið slakari í sjötíu ár Kjörsókn hefur ekki verið lakari í þingkosningum í rúm 70 ár. Prófessor í stjórn- málafræði segir það ekki koma á óvart en fjöldi framboða hafi líklega híft kjör- sóknina aðeins upp. Töluvert var um útstrikanir í Reykjavík og Suðurkjördæmi. Kjörsókn eftir kjördæmum Norðvesturkjördæmi 83,6% Norðausturkjördæmi 83,4% Suðvesturkjördæmi 82,4% Suðurkjördæmi 81,8% Reykjavík suður 80,1% Reykjavík norður 78,9% Alls 81,4% Kjörsókn síðustu þingkosninga 2009 85,1% 2007 83,6% 2003 87,7% MEST ÞÁTTTAKA Í NV-KJÖRDÆMI GRÉTAR ÞÓR EYÞÓRSSON Dauðu atkvæðin aldrei fleiri Tæplega tólf prósent atkvæða fóru til flokka sem ekki náðu mönnum á þing. „Það hefur aldrei áður verið svona mikið um dauð atkvæði, allavega eftir að hlutfallskosningar voru teknar upp. Það er hluti af þessari óánægju og mótmælaöldu sem gengur yfir að fólk er tilbúið að sýna óánægju sína í verki með því að kjósa framboð, jafnvel þó það séu engar horfur á því að þau fái kosningu,“ segir Gunnar Helgi Kristinsson, prófessor í stjórnmálafræði. Á KJÖRSTAÐ Kjörsókn hefur hefur ekki verið lakari í þingkosningum í rúm 70 ár. Í Reykjavík norður var kjörsókn 78,9%. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI 12% Atkvæða fóru til fl okka sem ekki náðu sæti á þingi.

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.