Fréttablaðið


Fréttablaðið - 29.04.2013, Qupperneq 10

Fréttablaðið - 29.04.2013, Qupperneq 10
29. apríl 2013 MÁNUDAGUR SILKISKORIÐ ÁLEGG FRÁ GOÐA – gott á brauðið, í salatið eða bara eitt og sér! SKINKA KJÚKLINGAÁLEGG REYKT SPÆGIPYLSA HUNANGSSKINKA E N N E M M / S IA • N M 57 28 6 | FRÉTTIR | 10 2013 Rekstrarvörur - vinna með þér VIÐBRÖGÐ LEIÐTOGANNA „Við erum frekar svekkt. Við undirbjuggum okkur vel og byggjum á gömlum grunni. Það komst greinilega ekki nægjan- lega vel til skila,“ segir Margrét Tryggvadóttir hjá Dögun. „Það voru margir um hituna og erfitt fyrir ný framboð að kynna sig og aðgreina. Fjölmiðlar voru misduglegir að sinna þeim. Þetta er áfellisdómur yfir kosningakerfinu. Eitt af því sem við vildum breyta var að afnema þennan fimm prósenta þröskuld.“ - gar Áfellisdómur yfir kerfinu 3,1% MARGRÉT TRYGGVA- DÓTTIR „Eins og mörg ný framboð áttum við erfitt uppdráttar,“ segir Pétur Gunnlaugsson, formaður Flokks heimilanna. „Aðstöðu- munurinn milli gömlu flokkanna og nýrra framboða er mikill. Það er erfitt þegar skoðanamyndandi kannanir eru birtar rétt fyrir kosningar. Píratarnir komust inn og það er ánægjulegt. Að öðru leyti höfum við gamla fjórflokkinn og Bjarta framtíð. Sæ- greifarnir fagna sigri og við fáum enga nýja stjórnarskrá.“ - gar Áttum erfitt uppdráttar 3,0% PÉTUR GUNNLAUGS- SON „Úrslit í lýðræðislegum kosningum eru ævinlega fagnaðarefni, ekki af því að þau sé endilega rétt heldur af því að þau eru óvefengjanleg,“ segir Þorvaldur Gylfason, vaktstjóri Lýðræðis- vaktarinnar. „Kjósendur felldu sinn dóm og honum unum við. Þeir flokkar tveir sem hrósa sigri gáfu loforð sem er ógerlegt að efna, ég tala nú ekki um ef reynt verður að efna þau bæði í einu. Það er ástæða fyrir fólkið í landinu að hafa varann á sér.“ - gar Unum dómi kjósenda mjög vel 2,5% ÞORVALDUR GYLFASON „Ég er aðallega vonsvikinn fyrir hönd fólksins í landinu, að það hafi ekki viljað þiggja lausnirnar okkar fyrir það sjálft,“ segir Kjartan Örn Kjartansson, oddviti Hægra grænna í Reykjavík norður. „Það hafa að vísu nokkrir flokkar tekið upp frá okkar stefnuskrá, eins og að hugsa um heimilin og taka á hrægömmunum, en ég er ekki viss um hvernig það mun koma út fyrir fólkið. Af því höfum við mestar áhyggjur.“ - gar Vonsvikinn fyrir hönd fólksins 1,7% KJARTAN ÖRN GUNN- ARSSON „Mér sjálfum fannst kosningabaráttan ákaflega gefandi og skemmtileg. Hvarvetna í kjördæminu sem ég fór fann ég nú sem áður mikinn hugmyndafræðilegan samhljóm með íbúunum,“ segir Jón Bjarnason, formaður Regnbogans. „Ég mun áfram sem hingað til berjast með fólkinu í landinu fyrir hugsjónum mínum og baráttumálum og leita þeim stuðnings á nýjum og öðrum vettvangi en úr ræðustól Alþingis.“ - gar Berst áfram með fólkinu 1,0% JÓN BJARNASON „Við erum ótrúlega glöð og þakklát þeim 326 sem kusu okkur. Við höfum fundið fyrir miklum áhuga á landsbyggðinni þó við höfum bara boðið fram í einu kjördæmi,“ segir Ylfa Mist Helgadóttir, oddviti Landsbyggðarflokksins. Ylfa segir að starf Landsbyggðarflokksins sé nú fyrst að hefjast. „Næst munum við bjóða fram í öllum landsbyggðarkjördæmunum hið minnsta.“ - kh Ætla að bjóða aftur fram 0,2% YLFA MIST HELGA- DÓTTIR „Okkar atkvæði voru frekar fá en góð,“ segir Methúsalem Þórisson, talsmaður Húmanista. „Við erum að endurreisa flokkinn eftir hlé og í þessu moldviðri sá fólk okkur ekki sem raunhæfan kost. Það hefur í raun ekki mikið breyst. Þetta er bara eins og var fyrir hrun. Þessi atkvæði sem menn kalla dauð munu ekki verða dauð ef þeir sem fengu þau halda áfram sínu starfi. Og við höldum ótrauð áfram.“ - gar Ekki kostur í moldviðrinu 0,1% METHÚSALEM ÞÓRISSON „Tölurnar gefa ekki mikla vísbendingu um okkar styrk og möguleika,“ segir Þorvaldur Þorvaldsson, oddviti Alþýðufylk- ingarinnar. „Ólíkt mjög mörgum öðrum vorum við framboð sem var byggt á sólid stefnuskrá en ekki hamrað í kring um einhverja einstaklinga sem töldu sig hafa eitthvert sérstakt persónufylgi. Okkar atkvæði eru af mestu gæðum sem völ er á. Okkar áhrif ná langt, langt út fyrir þennan hóp.“ - gar Áhrif langt út fyrir hópinn 0,1% ÞORVALDUR ÞORVALDS- SON „Lýsingardómurinn stendur upp úr eftir þetta en kosningarnar eru bara aukaatriði,“ segir Sturla Jónsson, oddviti K-lista. Lýsing var á fimmtudag dæmd til að endurgreiða viðskipta- vini fyrirtækisins rúmlega 680 þúsund krónur sem hann hafði ofgreitt vegna bílasamnings. „Með dómnum er tekið á verð- tryggingunni sem ég er búinn að vera að berjast fyrir í þrjú ár. Kosningaúrslitin eru æðisleg en dómurinn er enn þá betri.“ - kh Kosningarnar bara aukaatriði 0,1% STURLA JÓNSSON SIGURREIFUR Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Framsóknarflokksins, þakkar stuðninginn á kosningavöku á laugardagskvöldið. FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.