Fréttablaðið - 29.04.2013, Side 16
FÓLK|HEIMILI
„Allt í kringum okkur sjáum
við form af öllum mögulegum
stærðum og gerðum. Sum form
eru mótuð af mannshendinni
en önnur eru náttúruleg. Með
ímyndunaraflinu getum við hins
vegar séð eitthvað annað út úr
hlutunum og þannig virkjað aðra
skynjun innra með okkur.“
Þannig lýsir Anna Þórunn Hauks-
dóttir nýjustu vöru sinni, bakk-
anum Sunrise, sem hún frum-
sýndi á liðnum HönnunarMars.
Bakkinn er í þremur útgáfum,
bleikur, svartur og gráblár og
er fletinum skipt upp í þrjú hólf
með eikarlímtré. Formin minna á
sólina koma upp milli fjalla eða
húsa en sjálf hafði Anna sólar-
upprás við bóndabæ og fjall í
huga þegar hún mótaði formin.
Anna Þórunn hefur getið sér
gott orð fyrir hönnun sína á
vörum fyrir heimilið en fyrir ári
frumsýndi hún á HönnunarMars
handrennda kertastjaka úr ís-
lensku birki, sem hún nefnir
Family. Þá sýndi hún einnig
postulínsskálina Feed me en
hugmyndin að henni spratt
út frá svöngum fuglsungum í
hreiðri sem biðu eftir æti með
opna gogga.
Nánar má forvitnast um hönn-
un Önnu Þórunnar á vefsíðunni
www.annathorunn.is.
SÓLARUPPRÁS Á BAKKA
Nýjasta vara Önnu Þórunnar Hauksdóttur vöruhönnuðar er morgunverðar-
bakkinn Sunrise. Bakkann frumsýndi hún á HönnunarMars.
Garðurinn Skrúður að Núpi í Dýrafirði hlaut nýlega alþjóðleg verðlaun sem nefnast „Premio
Internazionale Carlo Scarpa per il
Giardino“ eða „Alþjóðaverðlaun Carlo
Scarpa fyrir garða“. Verðlaunin verða
afhend við hátíðlega athöfn á árlegri
hátíð 11. maí næstkomandi í Treviso á
Ítalíu.
Verðlaunin eru nefnd eftir frægum
ítölskum arkitekt, Carlo Scarpa, sem
átti sitt helsta blómaskeið á áratug-
unum eftir seinna stríð en lést langt
fyrir aldur fram. Einar E. Sæmundsen
landslagsarkitekt var einn þeirra sem
áttu þátt í að aðstoða dómnefndina sem
kom hér til lands í lok ágúst á síðasta
ári. „Þessi verðlaun eru veitt árlega til
að heiðra menningarlandslag þar sem
saman fara mikilfengleg náttúra og
mikil menningarverðmæti með mikið
fræðslugildi. Verðlaunin hafa verið veitt
síðan 1990 og undanfarin ár hafa ýmsir
staðir í Evrópu, Afríku og Austurlönd-
um nær hlotið verðlaunin.“
Það er ítalski tískurisinn Benetton
sem stendur á bak við verðlaunin að
sögn Einars en fyrirtækið rekur öfluga
rannsóknar- og menningarstofnun.
Hann segir sjóðinn hafa haft samband
við sig á síðasta ári og tvo aðra íslenska
landslagsarkitekta, þá Reyni Vilhjálms-
son og Þráin Hauksson, og spurt út í
garðsögu á Íslandi í tengslum við Al-
þjóðaverðlaunin. „Þetta kom nú eins
og hálfgert skýfall yfir okkur á miðju
sumri. Við undirbjuggum komu þeirra
og bentum þeim á fimm garða og í lok
ágúst kom hópur-
inn hingað til
lands og eyddi tíu
dögum við skoðun
á gömlum görðum.
Um var að ræða
Alþingisgarðinn
sem gerður var
1894, Skrúð sem
gerður var 1909,
Lystigarð Akur-
eyrar sem gerður
var 1912, Hallar-
garðinn við Tjörnina og Borgargarðinn
í Laugardal.“ Þrír elstu garðarnir eru
gerðir á 18 ára tímabili og segir Einar
landsmenn hafa verið stórhuga og
bjartsýna á þessum árum. Verðlaunin
eru því mikil viðurkenning á verkum
þessara eldhuga sem garðana gerðu.
Það var séra Sigtryggur Guðlaugs-
son prófastur sem átti heiðurinn af
gerð Skrúðs en grunnur að honum var
lagður rétt eftir aldamótin 1900. Í dag
er Skrúður í umsjá Skrúðsfélagsins á
vegum Ísafjarðabæjar. „Þessi verðlaun
eru mikill heiður fyrir allt það hugsjóna-
fólk sem hóf að móta umhverfi okkar
eftir aldamótin 1900. Skrúður og aðrir
garðar frá þessum tíma bera vott um
stórhug aldamótakynslóðarinnar.“
SKRÚÐUR HLAUT AL-
ÞJÓÐLEG VERÐLAUN
VERÐLAUNAGARÐUR Nýlega hlaut Skrúður að Núpi í Dýrafirði alþjóðleg
verðlaun. Hann var gerður fyrir rúmlega 100 árum af miklu hugsjónafólki.
SÖGUPERLA
Dómnefndin frá Ítalíu
ásamt íslenskum að-
stoðarmönnum í Skrúði
að Núpi í Dýrafirði.
MYND/ÚR EINKASAFNI
UPPDRÁTTUR
Teikning af garðinum
eftir séra Sigtrygg frá
upphafi síðustu aldar.
MYND/ÚR EINKASAFNI
HJÁLPAÐI TIL
Einar E. Sæmundsen
landslagsarkitekt.
MYND/ÚR EINKASAFNI
Tilboðsvörur á frábæru verði
70%afsláttur
allt að
af völdum vörum og
sýningareintökum Borðstofustólar frá 7.900 kr Heilsukoddar 2.900 kr
Borðstofuborð frá 40.000
Höfðagaflar frá 5.000
Sjónvarpsskápar frá 25.000
Rúm 153cm frá 157.000
Speglar frá 5.000
Fjarstýringavasar frá 2.500
Hægindastólar frá 99.000
Tungusófar frá 75.400
Hornsófar frá 139.900
Sófasett frá 99.900
AquaClean áklæði
kynningarafsláttur AquaClean áklæði er sérstaklega auðvelt að hreinsa
aðeins með vatni!
H Ú S G Ö G N
Hornsófar - Tungusófar - Sófasett
Sófasett - Hornsófar - Tungusófar
Tungusófar - Sófasett - Hornsófar
Tungusófar - Sófasett - Hornsófar
Verslun okkar er opin:
Virka daga kl.9-18
Laugardaga kl.11-16
Sunnudaga lokað
Patti verslun I Dugguvogi 2 I Sími: 557 9510 I vefsíða www.patti.is
Nýtt
Torino
Mósel
Milano
Basel
Paris
HÖNNUN
3mm að framan og 9mm
að aftan. Aðeins 1.3 kg.
HRAÐI
Kveikir á sér á 2 sekúndum.
Intel i7 örgjörvi. 128GB Solid State.
FEGURÐ
Hringburstuð stálumgjörð.
Framúrskarandi verðlaunahönnun.
ZENBOOK™
Anna Þórunn Hauksdóttir vöruhönnuður
hannar muni fyrir heimilið.
FÓLK ER KYNNINGARBLAÐ sem býður aug-
lýsendum að kynna vörur og þjónustu í formi
viðtala og umfjallana ásamt hefðbundnum auglýs-
ingum. Blaðið fylgir Fréttablaðinu daglega.
Útgefandi: 365 miðlar | Ábyrgðarmaður: Jón Laufdal
Sölumenn: Jónína María Hafsteinsdóttir, jmh@365.is, s. 512 5473
Sverrir Birgir Sverrisson, sverrirbs@365.is, s. 512 5432
Elsa Jensdóttir, elsaj@365.is, s. 512-5427 | Hönnun: Silja Ástþórsdóttir