Fréttablaðið - 29.04.2013, Side 35

Fréttablaðið - 29.04.2013, Side 35
MÁNUDAGUR 29. apríl 2013 | SKOÐUN | 15 OG HOLL TÓ DÝRT fyrir fjölskyld una 1349kr.kg Verð áður 1798 kr. kg Ýsa í raspi 25% afslátt ur Samfylkingin sat í ríkis- stjórn tvö kjörtímabil í röð og kannski var þetta bara orðið ágætt. Vissulega var þetta verri útreið en flokkurinn átti skilið – það var nánast eins og það væri orðið nýjasta tískuæðið í landinu að kjósa ekki Samfylk- inguna. Stundum var eins og Samfylk- ingin stæði ekki einu sinni sjálf með sér. Flokknum var leyft að klofna og virtist forystan láta sér það vel líka, enda með allan hugann við halla ríkissjóðs. Undir lokin var Samfylking- in orðin eins og svarti riddar- inn í Monty Python-myndinni. Fyrst fór vinstri armurinn yfir í VG, svo hægri armurinn í BF, loks fór umbótaarmurinn í Lýðræðis vaktina – maður beið bara eftir því Samtök frjáls- lyndra og vinstri manna væru endurvakin. Allir á útleið og á meðan var naumast litið upp vegna þess að forystan var að kljást við halla ríkissjóðs, stóð með fingurinn í gatinu, líka löngu eftir að orðið var þurrt hinum megin. Frumskylda formanns Sjálf- stæðisflokksins er talin vera sú að halda þeim sundurleita söfnuði saman. Sú hugsun blasir ekki beinlínis við hjá Samfó. Fleira? Að færast of mikið í fang með þeim áformum að breyta öllu sem aflaga hefði farið á Íslandi síðastliðin hundr- að ár – á fjórum árum. Í kjöl- farið skortur á einbeitingu og hreinlega þreyta, svo að bolt- arnir á lofti hrundu niður einn af öðrum og flokkurinn staddur í ósigrinum miðjum löngu fyrir kosningar þrátt fyrir heims- frægan árangur í baráttunni við halla ríkissjóðs. Svona má nú jagast. En gleymum því samt ekki að margt fólk var þakklátt Jóhönnu, eins og henni var eftir minnilega sýnt daginn fyrir kjördag og megi sú bjarta mynd lifa lengi í hugskoti henn- ar og Jónínu. Virkjun Framsóknar Fleira? Þetta óljósa sem öllu breytir: Andrúmsloftið. Þetta snerist víst um „heimilin“. Ha heimilin? sögðu vinstri menn og fóru strax að tuða um van- skilavillur í Arnarnesi eins og þeim væri á undarlegan hátt alveg sama um vanda fólks. Þetta snerist nefnilega um fólk í vanda; venjulegt fólk sem horfði á húsnæðislánin sín breytast í stökkbreyttan hrylling á meðan bankar tilkynntu hlaunagleiðir um methagnað og skilanefnd- arnar voru eins og furstadæmi fólks á geimfræðilegu kaupi sem afskrifaði skuldir af því meira veglyndi sem skuldar- inn átti það síður skilið. Dag- legar fréttir af afskriftum auð- manna dundu á fólki innan um sögur af ógæfu og eignamissi, ríkisstjórnin harmaði það og lagði niður enn eitt stöðugildið á Landspítalanum. Hvað gerir fólk þá annað en að gnísta tönnum? Það reynir að hætta því. Það reynir að sjá ljósið, reynir að leggja rækt við fornar dyggðir, ganga á fjöll, prjóna, safna skeggi, sníða sér stakk eftir vexti – finna sig. Það reynir að vera jákvætt. Reiðin kraumaði undir en beindist gegn stjórnarflokkunum sem voru taldir hafa svikið fyrirheit sín um jöfnuð og leiðréttingu á frám- unalegum lánahækkunum – en sýndu eigendum Icesave-reikn- inganna ólíkt meiri skilning. En reiðin sem tjáningarmáti var að hverfa. Smám saman fækkaði í röðum þeirra sem töldu sig eiga réttinn til reiðinnar á Austur- velli uns þar voru bara eftir tveir einkennilegir menn að lemja hvor í annars tunnu. Fólk vildi baráttuanda en ekki reiði, uppbyggingu en ekki niður rif, von en ekki hatur. Þessa sérstöku orku þjóðar sem orðið hafði fyrir miklu áfalli tókst Framsóknarmönnum öðrum betur að virkja. Hin mikla íslenska sekt Icesave breytti öllu. Niður- staðan í Icesave-dómsmálinu setti meira að segja í uppnám alla orðræðu eftirhrunsár- anna vegna þess hversu vinstri menn hengdu sig í aðra niður- stöðu en fékkst að lokum. Allt í einu fannst fólki að hin mikla íslenska sekt væri gufuð upp, til væri eitthvað sem héti „málstað- ur Íslands“ og að ríkisstjórnin hefði ekki staðið með þeim mál- stað og stoðaði þá lítt að reyna að útskýra að ekki hefði feng- ist nein lánafyrirgreiðsla nema gegn fyrirheitum um samninga um Icesave og án lánafyrir- greiðslu hefði ekki verið hægt að greiða laun hér á landi; samfé- lagið hefði í raun og veru hrunið. Fleira? Í kjölfar dómsins um Icesave var allt í einu eins og ekki væri til sú fráleita firra sem Framsóknarmenn gátu ekki látið hljóma eins og raunhæfan kost: „Já já, þið sögðuð þetta nú líka um Icesave …“ sögðu þeir góðlátlega við öllum mótbárum og blikkuðu kjósendur en vinstri menn rifu hár sitt milli þess sem þeir spurðu eins og ráð- þrota kennari: Var ég ekki búinn að margreyna að útskýra þetta fyrir ykkur? Við gegn þeim: allt í einu voru það Framsókn og kjósendur gegn sjálfskipuðu menningar- vitunum. Framsókn seldi okkur draum- inn á ný. Það er draumurinn um Ísland. Það er draumurinn um hinar hagstæðu raðgreiðslur milli ólíkra tilverustiga. Það er draumurinn um líf í húsi á mörg- um hæðum, garði með blómum, hundi og bílastóði úti á hlaði, ótal gjaldmiðla eftir hentugleik- um og hlutabréf í sólarlaginu. Samfylkingarblús Í DAG Guðmundur Andri Thorsson rithöfundur Frumskylda for- manns Sjálfstæðis- flokksins er talin vera sú að halda þeim sundurleita söfnuði saman. Sú hugsun blasir ekki beinlínis við hjá Samfó.

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.