Fréttablaðið - 29.04.2013, Page 38
29. apríl 2013 MÁNUDAGUR| MENNING | 18
BAKÞANKAR
Sögu
Garðarsdóttur
1
6 7 8
10
13
119
12
15
16
18
21
20
17
14
19
2 3 4 5
KROSSGÁTA
PONDUS Eftir Frode Øverli
GELGJAN Eftir Jerry Scott & Jim Borgman
HANDAN VIÐ HORNIÐ Eftir Tony Lopes
BARNALÁN Eftir Jerry Scott & Rick Kirkman
MYNDASÖGUR
HÖNNUN
3mm að framan og 9mm
að aftan. Aðeins 1.3 kg.
HRAÐI
Kveikir á sér á 2 sekúndum.
Intel i7 örgjörvi. 128GB Solid State.
FEGURÐ
Hringburstuð stálumgjörð.
Framúrskarandi verðlaunahönnun.
ZENBOOK™
LÁRÉTT
2. snap, 6. umhverfis, 8. orlof, 9. gras,
11. frá, 12. langt op, 14. kk nafn, 16.
vörumerki, 17. fæða, 18. hylli, 20.
gangflötur, 21. skrifa.
LÓÐRÉTT
1. ló, 3. hvort, 4. hindrun, 5. tilvist, 7.
sætuefni, 10. námsgrein, 13. kvk nafn,
15. svall, 16. aum, 19. tveir eins.
LAUSN
LÁRÉTT: 2. betl, 6. um, 8. frí, 9. sef,
11. af, 12. klauf, 14. agnar, 16. ss, 17.
ala, 18. ást, 20. il, 21. rita.
LÓÐRÉTT: 1. kusk, 3. ef, 4. trafali, 5.
líf, 7. melassi, 10. fag, 13. una, 15. rall,
16. sár, 19. tt.
Jæja, Jói!
Hvað viltu
gera í dag?
Dansa við
Kylie Minoque
og borða
djúpsteiktan
kjúkling!
Hárlengingar
elskan!Eru
mögu-
leikar?
Je minn
eini!
Pff! Unglingspiltar eru bara með
einn hlut á heilanum!
Karate-
skóli
Ása
Inn Út
Gjörið þið svo
vel! Umhverfis-
vænt nesti!
Allt er umhverfisvænt,
endurvinnanlegt eða ætt!
Húrra
fyrir því.
Mér finnst fullorðnir vera
sætir þegar þeir reyna
að legg ja sig fram.
Jebb!
Látum
það
flakka!
Snapp,
snapp!
Já, það er
svo sem
möguleiki....
Jæja, myndum við
ekki öll vilja það!
Kamilla nefndi eitt-
hvað um taglið, eigum
við að láta það fjúka?
Þegar þessi pistill er skrifaður eiga kosn-ingar til Alþingis 2013 eftir að fara
fram. Þegar þú hins vegar lest þessi orð
eru þær afstaðnar og ný ríkistjórn yfir-
vofandi. Mig grunar sterklega, byggt bæði
á skoðanakönnunum og reynslu minni af
kosningum, að það sé ekki sú ríkistjórn
sem ég kaus mér eða óska helst.Sem mér
finnst vægast sagt hvimleitt.
ÞETTA er ekki í fyrsta skipti sem ég upp-
lifi að vera á öndverðum meiði við þorra
þjóðarinnar. Ég valdi ekki forsetann okkar,
ég botna ekkert í áhangendum Framsókn-
ar- eða Sjálfstæðisflokksins og mér
finnst lagið „Ég á líf“ í skásta falli
kvalafullt.
EF ég hins vegar ber skoðanir
mínar saman við yfirlýsingar vina
minna á internetinu, umræður við
fjölskylduborðið og í vinnunni sé ég
að ég er hreint ekki ein, sem er ágætis
hughreysting. Þannig er ég sam-
dauna nærumhverfi mínu og
það mér. En veruleiki minn
og minna er ekki allra og
skoðanir minna nánustu
endurspegla á engan hátt
skoðanir eða vilja meirihluta
þjóðarinnar. Mitt Ísland vill
hverfa frá þeirri hugmynda-
fræði sem gilti fyrir hrun í
orði og á borði, þráir jöfnuð og
réttlátt sam félag, setur nátt-
úruna alltaf ofar tímabundnum
efnahags legum ávinningum og
finnst Sigmundur Davíð frekar mikill lúði.
Hitt Ísland kýs annað.
ÞESSI gjá veldur því stundum að mér
finnst ég ekki eiga neitt sameiginlegt með
stórum hluta samlanda minna því snerti-
fletir okkar virðast ekki breiðari en svo að
líklega förum við öll að minnsta kosti einu
sinni í Kringluna fyrir jólin. Það er þó ekki
þar með sagt að ég geti skráð mig úr sam-
félaginu, dæmt það og fyrirlitið eða kallað
eflaust ágætis menn lúða. Þannig batnar
ekkert og okkur mun aldrei takast að senda
gott lag í Eurovision.
ÞESS í stað ætla ég að fagna því að búa í
samfélagi þar sem öndverðar skoðanir fá
að þrífast og vona að ákvarðanir á nýju
Alþingi muni felast í að komast að bestu
mögulegu niðurstöðu. Því samfélag er sam-
tal en ekki keppni í að þröngva sínu fram
og stundum verður maður að gefa eftir
til að geta verið saman. Þannig breikkar
mitt Ísland og hitt Ísland og okkar Ísland
stækkar.
ÉG hef samt enga trú á því að Framsókn
geti efnt loforð sín stórslysalaust og ég mun
aldrei sætta mig við stóriðjustefnu hennar.
En ég er ekki búin að gefa samtalið upp á
bátinn. Ég geri meira gagn með afstöðu
en sem óvirkur fýlupoki. Einmitt þess
vegna ætla ég að horfa á Söngvakeppni
evrópsku sjónvarpsstöðvanna, því þó fram-
lag okkar í ár sé kraftglatað og þó ég viti
að við munum tapa þá er Eurovision samt
fabjúlöss.
Mitt Ísland og hitt Ísland