Fréttablaðið - 29.04.2013, Blaðsíða 42

Fréttablaðið - 29.04.2013, Blaðsíða 42
29. apríl 2013 MÁNUDAGUR| SPORT | 22 … og passar með öllu www.ms.is H V ÍT A H Ú S IÐ / S ÍA Fylkismenn hafa gengið í gegnum miklar breytingar á milli ára. Sex byrjunarliðsmenn frá því í fyrra eru horfnir en í staðinn hafa komnir sterkir leikmenn. Ásmundi Arnars- syni tókst að skila Fylki um miðja deild síðastliðið sumar en meiðsli plöguðu lykilmenn hjá liðinu allt sumarið. Með Tryggva Guðmunds og Viðar Örn í framlínunni ættu Fylkismenn að vera hættulegir fram á við en ekki líklegir til frekari afreka en miðjumoðs. Töluverð bjartsýni er í Lautinni fyrir sumarið en sjötta sæti væri fín niðurstaða fyrir appelsínugula Árbæinga. Fylkir hafnar í 6. sætiSPÁ FRÉTTA- BLAÐSINS 2013 ➜ STJARNAN Tryggvi Guðmundsson ➜ ÞJÁLFARINN ➜ NÝJU ANDLITIN ➜ HVAÐ ER LANGT SÍÐAN… … liðið vann titil – 11 ár … liðið var inn á topp þrjú – 4 ár … liðið spilaði í B-deild – 14 ár … iðið skoraði flest mörk í deildinni – 13 ár … liðið spilaði í Evrópukeppni – 3 ár … Fylkismaður fékk silfurskóinn – 11 ár Ásmundur Arnarsson er 41 árs gamall og á sínu öðru tímabili með liðið. Hann hefur líka þjálfað Fjölni í tvö tímabil í efstu deild. Á að baki þrjú tímabil sem þjálfari í efstu deild (66 leikir, 21 sigur, 39 prósent). Tryggvi Guðmundsson (ÍBV) Viðar Örn Kjartansson (Selfoss) Pablo Punyed (Fjölnir) Heiðar Geir Júlíusson (Svíþjóð) Kristján Hauksson (Fram) Sverrir Garðarsson (Haukar) Fylgstu með þessum: Pablo Punyed – Getur spilað sem bakvörður og á miðjunni. ➜ EINKUNNASPJALDIÐ VÖRNIN ★★★★★ SÓKNIN ★★★★★ ÞJÁLFARINN ★★★★★ BREIDDIN ★★★★★ íSLANDSMEISTARI: ALDREI BIKARMEISTARI: 2 (SÍÐAST 2002) Það gæti reynst Fylkis- mönnum happafengur að hafa í sínum röðum jafnreynslumikinn og drífandi leikmann og Tryggva. Léttir líka pressunni á Viðari Erni í fremstu víglínu. hefst eftir 6 daga SPORT ÚRSLIT DOMINO‘S-DEILD KARLA LOKAÚRSLIT, 5. LEIKUR GRINDAVÍK - STJARNAN 79-74 (41-33) Grindavík: Aaron Broussard 25/9 fráköst/5 stoðsendingar, Samuel Zeglinski 21/6 fráköst/5 stoðsendingar, Sigurður Gunnar Þorsteinsson 12/11 fráköst/7 varin skot, Þorleifur Ólafsson 9/6 fráköst, Davíð Ingi Bustion 5, Jóhann Árni Ólafs- son 4/4 fráköst, Ólafur Ólafsson 3. Stjarnan: Marvin Valdimarsson 17/9 fráköst, Justin Shouse 14/4 fráköst/7 stoðsendingar, Brian Mills 12/11 fráköst, Jovan Zdravevski 10/7 fráköst, Jarrid Frye 9, Fannar Freyr Helgason 8/7 fráköst, Sæmundur Valdimarsson 4. Grindavík vann einvígið, 3-2. N1-DEILD KVENNA LOKAÚRSLIT, 2. LEIKUR STJARNAN - FRAM 25-30 (12-15) Mörk Stjörnunnar (skot): Rakel Dögg Bragadóttir 8/2 (12/3), Hanna Guðrún Stefánsdóttir 7 (9/1), Esther Viktoría Ragnarsdóttir 5 (8), Jóna Margrét Ragnarsdóttir 2 (8/1), Þórhildur Gunnarsdóttir 1 (1), Kristín Clausen 1 (2), Sandra Sif Sigurjóns- dóttir 1 (3). Varin skot: Sunneva Einarsdóttir 7 (28/2, 25%), Hildur Guðmundsdóttir 5 (14/3, 36%). Hraðaupphlaup: 11 (Hanna G. 5, Esther 3, Rakel Dögg 1, Kristín 1, Sandra Sif 1) Utan vallar: 4 mínútur. Mörk Fram (skot): Stella Sigurðardóttir 7 (11), Elísabet Gunnarsdóttir 5/5 (5/5), Sunna Jóns- dóttir 4 (7), Sigurbjörg Jóhannsdóttir 4 (10), Marthe Sördal 3 (3), Ásta Birna Gunnarsdóttir 3 (5), Guðrún Þóra Hálfdánsdóttir 3 (5), Steinunn Björnsdóttir 1 (1). Varin skot: Guðrún Bjartmarz 14/2 (37/4, 38%). Hraðaupphlaup: 8 (Sigurbjörg 2, Marthe 2, Guð- rún Þóra 2, Stella 1, Steinunn 1) Utan vallar: 6 mínútur. Staðan í einvíginu er jöfn, 1-1. MEISTARAKEPPNI KARLA FH - KR 3-1 1-0 Atli Guðnason (32.), 2-0 Ólafur Páll Snorrason (41.), 3-0 Brynjar Ásgeir Guðmundsson (75.), 3-1 Emil Atlason (80.). LENGJUBIKARINN ÚRSLITALEIKUR KARLA BREIÐABLIK - VALUR 3-2 ÚRSLITALEIKUR KVENNA STJARNAN - VALUR 4-0 ÚRSLIT ENSKA ÚRVALSDEILDIN MANCHESTER CITY - WEST HAM 2-1 1-0 Sergio Agüero (28.), 2-0 Yaya Toure (83.), 2-1 Andy Carroll (94.). WIGAN - TOTTENHAM 2-2 0-1 Gareth Bale (9.), 1-1 Emmerson Boyce (11.), 2-1 C. McManaman (49.), 2-2 Boyce, sjálfsm. (89.). EVERTON - FULHAM 1-0 1-0 Steven Pienaar (16.) SOUTHAMPTON - WEST BROM 0-3 0-1 Marc-Antoione Fortune (6.), 0-2 Romelu Lukaku (67.), 0-3 Shane Long (77.). STOKE - NORWICH 1-0 1-0 Charlie Adam (46.) NEWCASTLE - LIVERPOOL 0-6 0-1 Daniel Agger (3.), 0-2 Jordan Henderson (17.), 0-3 Daniel Sturridge (54.), 0-4 Sturridge (60.), 0-5 Fabio Borini (74.), 0-6 Henderson (76.). CHELSEA - SWANSEA 2-0 1-0 Oscar (43.), 2-0 Frank Lampard, víti (45.). ARSENAL - MANCHESTER UNITED 1-1 1-0 Theo Walcott (2.), 1-1 Robin van Persie, víti (44.). READING - QPR 0-0 STAÐA EFSTU OG NEÐSTU LIÐA Man. United 34 27 3 4 78-35 84 Man. City 34 21 8 5 61-31 71 Arsenal 34 18 9 7 65-35 63 Chelsea 33 18 8 7 66-35 62 Tottenham 34 18 8 8 60-43 62 Everton 35 15 14 6 52-38 59 Liverpool 35 14 12 9 67-42 54 Norwich 35 8 14 13 33-54 38 Sunderland 34 9 10 15 38-45 37 Newcastle 35 10 7 18 43-66 37 Aston Villa 34 8 10 16 36-63 34 Wigan 34 8 8 18 39-62 32 QPR 34 4 12 18 29-56 24 Reading 34 5 9 20 37-65 24 MEISTARADEILD EVRÓPU FJÓRÐUNGSÚRSLIT, 2. LEIKUR BARCELONA - ATLETICO MADRID 32-24 Barcelona vann samanlagt, 52-49. VESZPREM - KIEL 29-28 Aron Pálmarsson skoraði þrjú mörk fyrir Kiel og Guðjón Valur Sigurðsson tvö. Kiel vann samanlagt, 61-59. KIELCE - METALURG 26-15 Þórir Ólafsson skoraði eitt mark fyrir Kielce. Kielce vann samanlagt, 53-40. HAMBURG - FLENSBURG 25-23 Arnór Atlason skoraði eitt mark fyrir Flensburg en Ólafur Gústafsson spilaði ekki. Hamburg vann samanlagt, 55-51. KÖRFUBOLTI Grindavík varð í gær Íslandsmeistari í körfubolta eftir magnaðan sigur, 79-74, á Stjörn- unni í hreinum úrslitaleik um titilinn. Grindvíkingar voru sterk- ari lungann af leiknum en Stjörnu- menn komu sterkir til baka í loka- leikhlutanum. Það reyndist ekki vera nóg og heimamenn fögnuðu sem óðir. Þetta var í fyrsta skipti sem Grindavík tryggir sér Íslands- meistaratitilinn í Röstinni. Liðið náði því að verja titilinn frá því í fyrra sem er mikið afrek. Aaron Broussard var atkvæða- mestur í liði Grindavíkur og skor- aði 25 stig en hann var einnig valinn mikilvægasti leikmaður einvígisins. Jarrid Frye, leikmaður Stjörn- unnar, meiddist í fyrri hálfleik og kom ekki meira við sögu. Engu að síður náðu gestirnir að vinna sig til baka í fjórða leikhluta og opna leikinn upp á gátt. „Þetta er bara ótrúlegt,“ sagði Sigurður Gunnar Þorsteinsson, leikmaður Grindavíkur, eftir leikinn. „Við vorum komnir með þennan leik en hleyptum þeim allt of mikið inn í hann undir lok- inn. Þetta varð bara allt of spenn- andi. Þeir ná að jafna en við héld- um þeim aðeins frá okkur og við erum Íslandsmeistarar. Við feng- um frábæran stuðning og ekki hægt að tapa fyrir framan þessa áhorfendur.“ „Þetta er búið að vera draumur minn síðan ég var pínulítill,“ sagði Ólafur Ólafsson, leikmaður Grindavíkur, eftir sigurinn í gær. „Ég er búinn að alast upp við það að horfa á gömul myndbönd af goðsögnum í Grindavík og hef alltaf ætlað mér sjálfur að ná þessum árangri, þetta er bara ólýsanleg tilfinning. Ég náði ekki að taka almennilega þátt í þessu í fyrra eftir að ég meiddist. Sat bara á bekknum í gifsi. Þetta er svo gaman að það er ekki hægt að lýsa þessu. Það var lítill munur á þessum liðum í einvíginu og hefði alveg getað dottið þeirra megin. Við vorum bara sterkari andlega undir lokin.“ Þorleifur Ólafsson lyfti bik- arnum á loft og var kampakátur í leikslok. „Ég vissi strax í fyrra að það yrði erfitt að vinna titilinn aftur strax. Við þurftum líka að ganga í gegnum ýmsa erfiðleika á tíma- bilinu og því er sigurinn nú sætari en í fyrra.“ - sáp Sigurinn sætari í ár Grindavík varð Íslandsmeistari í körfubolta eft ir magnaðan oddaleik í gær. Stjarn- an missti lykilmann af velli í fyrri hálfl eik en náði að hleypa mikilli spennu í lokamínúturnar. Grindavík varð meistari annað árið í röð og í þriðja skiptið alls. ÓSVIKIN SIGURGLEÐI Þorleifur Ólafsson, fyrirliði Grindavíkur, lyfti bikarnum á loft í Röstinni í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.