Fréttablaðið - 29.04.2013, Blaðsíða 46
29. apríl 2013 MÁNUDAGUR| MENNING | 26
INNKÖLLUN Á
TRAMPÓLÍNI
Kæru viðskiptavinir.
Komið hefur í ljós galli á suðu í undirstöðum á trampólínum sem BYKO
seldi árið 2011.
Vörunúmer BYKO: 88040048 TRAMPÓLÍN 4,30 M MEÐ ÖRYGGISNETI.
Hætta er á alvarlegum slysum þar sem suðusamsetningin, sem tengir
járnhringinn sem dúkurinn er festur í við lappirnar, getur gefi sig.
BYKO biður þá sem keyptu þetta trampólín um að skila því í næstu BYKO
verslun og fá því skipt út eða endurgreitt
Sæktu þér nýja appið og hlustaðu á
FM957 hvar og hvenær sem er!
Farðu á visir.is/utvapp eða skannaðu QR kóðann
og sæktu Útvappið fyrir iOS eða Android.
Fáðu FM95BLÖ
í símann þinn!
„Það er Losing You með Solange.
Rosalega ljúft og þægilegt lag.“
Alexandra Ósk Bergmann, nemi í grafískri
hönnun.
MÁNUDAGSLAGIÐ
„Það er auðvitað töluverður munur á því að spila á
tónleikum þarna eða um miðjar nætur á skemmti-
stöðum. Þetta eru svona tónleikar þar sem fólk
kemur með opin eyru til þess að hlusta og njóta og
er bara að einbeita sér að því,“ segir söngkonan
Sigríður Thorlacius sem spilar á tónleikum í Edrú-
höllinni, Efstaleiti 7, annað kvöld.
SÁÁ stendur fyrir tónleikunum en þeir eru hluti
af tónleikaröðinni Kaffi, kökur og rokk & ról, sem
er haldin þar síðasta þriðjudag hvers mánaðar. Á
morgun verða stórskotabyssurnar heldur betur
dregnar fram því Sigríður kemur þar fram ásamt
Hjaltalín-félaga sínum Högna Egilssyni og á eftir
þeim stígur Pétur Ben á svið. „Ég hef nú enga teng-
ingu við SÁÁ sjálf en Hjaltalín spilaði á þessari tón-
leikaröð fyrir ári síðan og það var mjög skemmti-
legt,“ segir Sigríður.
Tónleikarnir hefjast klukkan 20.30 og er miða-
verðið 500 krónur. - trs
Fólk mætir til að hlusta og njóta
Stórskotalið stígur á svið á Kaffi , kökur og rokk&ról í Edrúhöllinni á morgun
SKEMMTILEGT Sigríður spilaði á tónleikum í Edrúhöllinni í
fyrra og sagði það hafa verið mjög skemmtilegt.
FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
Styrktartónleikar verða haldnir í Gamla bíói
klukkan 20 í kvöld fyrir Steingrím Guðjóns-
son, fyrrverandi sviðsmann í Borgarleikhús-
inu og Þjóðleikhúsinu.
Fram koma KK, Egill Ólafsson, Snigla-
bandið, Orri Harðarson, leikararnir Hall-
grímur Ólafsson og Guðjón Davíð Karls-
son, Jóhanna Vigdís, Jóhann Sigurðarson og
fleiri.
„Steingrímur greindist með krabbamein
fyrir stuttu og við spurðum okkur hvað við
gætum gert til að hjálpa honum,“ segir Hall-
grímur. „Það sem kveikti hugmyndina var
umfjöllun í Kastljósi. Þar var hann í viðtali
að tala um þennan kostnað sem fólk í hans
sporum þarf að ganga í gegnum. Þegar
þú ert með lítil laun á milli hand-
anna er þetta erfitt,“ segir hann. „Við
ákváðum að blása til tónleika, enda
fullt af fólki sem getur sprellað og
gert eitthvað sem hefur unnið með
honum í gegnum tíðina.“
Allir sem koma að tónleikunum
gefa vinnuna sína og að sjálfsögðu
rennur allur ágóðinn til Steingríms.
- fb
Styðja við bakið á Steingrími
Frægir leikarar og tónlistarmenn halda tónleika fyrir Steingrím Guðjónsson.
„Ég er búinn að læra svo mikið af
nýjum hlutum á stuttum tíma og
hef verið ótrúlega heppinn,“ segir
förðunarfræðingurinn Ísak Freyr
Helgason.
Ísak Freyr flutti til London í júlí
síðastliðnum og býr nú og starfar
þar. „Mér hafði gengið mjög vel
heima en þegar ég flutti út opnað-
ist algjörlega nýr heimur. Ég áttaði
mig á því að það eru skrilljón lista-
menn að reyna að gera það sama og
ég svo það er ekkert annað í boði
en að vera alltaf með sitt á hreinu,“
segir Ísak sem hefur verið að vinna
mikið fyrir umboðsskrifstofuna
In Parlour í London. Í gegnum þá
skrifstofu hefur hann farðað mörg
þekkt andlit og fólk, sem er mikils
metið í samfélaginu. „Ég hef alltaf
reynt að vera ég sjálfur og komast
áfram með vinnu og á hæfileikun-
um. Ég trúi ekki á það að fara auð-
veldu leiðina heldur ganga hlutirnir
betur ef maður er glaður og sam-
kvæmur sjálfum sér,“ segir hann.
Auk þess að vinna fyrir In
Parlour og gera sína eigin hluti þar
úti hefur Ísak tekið að sér kennslu
í Noregi. „Sóley Ástudóttir kenndi
mér þegar ég var 17 ára og hún
hefur verið að kenna í förðunar-
skóla í Noregi. Hún benti eigendun-
um á mig svo ég fór að kenna þarna
í viku í fyrra og svo aftur núna. Það
er alveg rosa gaman og gefandi,“
segir hann. „Ég reyni að kenna
nemendunum hvað förðun er miklu
meira en bara bananaskyggingin
til dæmis. Ég fer líka yfir tjáningu
og kenni fólki að nýta tilfinningar
sínar. Ég reyni að taka nemendurna
á taugum og ýta þeim út á ystu nöf.“
Ísak Freyr er nýfarinn aftur til
London eftir nokkurra daga heim-
sókn hér heima. Fram undan er
svo ekki minna spennandi verk-
efni því nú í maí liggur leið Ísaks
til Cannes í tíu daga til að vinna
á kvikmyndahátíðinni þar. Stuttu
seinna heldur hann svo til Nice
og St. Tropez að ferðast og farða
og meðal annars vinna fyrir Alex-
öndru Tolstoy. tinnaros@frettabladid.is
Kennir í Noregi
og farðar í Cannes
Förðunarfræðingurinn Ísak Freyr Helgason gerir það gott í London.
SAMKVÆMUR SJÁLFUM SÉR Ísak Freyr segist ekki trúa á að fara auðveldu leiðina í
gegnum lífið en hann reyni umfram allt að vera glaður og samkvæmur sjálfum sér í
öllu sem hann gerir.
➜ Steingrímur Guðjónsson starfaði lengi
hjá Leikfélagi Akraness.
KOMA FRAM Í KVÖLD
Hallgrímur Ólafsson og
Jóhanna Vigdís styðja við
bakið á Steingrími í kvöld.
Meðal frægra einstaklinga sem Ísak
Freyr hefur farðað er pakistanski
Óskarsverðlaunahafinn Shar-
meen Obaid-Chinoy. Hún
er fyrsti kvikmyndagerðar-
maðurinn frá Pakistan sem
hlýtur Óskarinn – hann fékk
hún fyrir myndina Saving
Face árið 2012.
Á lista Ísaks er einnig að
finna bresku fyrirsæt-
una Suki Waterhouse,
nýjustu kærustu
leikarans Bradley
Cooper, sem hann
farðaði áður en
hún sótti GQ Men
of The Year Awards
í september.
Hefur farðað frægar konur