Fréttablaðið - 05.07.2013, Blaðsíða 15

Fréttablaðið - 05.07.2013, Blaðsíða 15
FÖSTUDAGUR 5. júlí 2013 | SKOÐUN | 15 AF NETINU Blaut úldin tuska Ríkisstjórnin veit að 70 prósent landsmanna hafa í skoðana- könnun lýst andstöðu við þá fyrirætlun hennar að lækka og síðan fella niður veiðigjöld á sægreifana. Ríkisstjórnin veit líka að 35.000 manns hafa sett nafn sitt við undirskriftasöfnun þar sem þessu er mótmælt. Ríkisstjórnin veit að sérfræð- ingar í hagfræði hafa lagst gegn þessu, bæði okkar mætustu menn og líka „skammstafanir í útlöndum“. Eigi að síður ætlar ríkisstjórnin að keyra málið í gegn. Og ekki nóg með það! Nú ætlar hún á síðustu metrum sumarþingsins að þruma í gegn- um þingið 460 milljóna aukagjöf til sægreifanna. Sægreifanna sem hafa líka styrkt svo ríkulega þá stjórnmálaflokka sem mynda þessa ríkisstjórn. […] Fyrirgefið… en mér blöskrar. blog.pressan.is/illugi Illugi Jökulsson Þórólfur á þingi Ætli Þórólfur Gíslason hafi ekki meiri áhrif innan Framsóknar- flokksins en hann sjálfur vill vera láta. Og það má alveg ítreka spurninguna úr fréttum Stöðvar 2: Hver eru tengsl Þórólfs Gíslasonar við núverandi forystu Framsóknarflokksins? Hin meinta endurnýjun þar á bæ kann nefnilega að vera eingöngu á yfirborðinu. ingimarkarl.is Ingimar Karl Helgason Öfug-Hrói Fyrir seinustu kosningar leit út fyrir að tveir flokkar myndu standa uppi með mest fylgi og, að öllum líkindum, mynda saman ríkisstjórn. Annar flokkurinn vildi gefa fullt af fólki pening, þeim mesta pen- inginn sem byggju í stærsta húsnæðinu og skulduðu mest í því. Hinn flokkurinn vildi það síður. Á endanum vann seinni flokkurinn kosningarnar en báðir flokkarnir fengu 19 þing- menn, þökk sé kosningakerfinu. Gjafmildi flokkurinn fékk svo stjórnarmyndunarumboðið. Óvissufaktorinn á Bessastöðum sá til þess. Flokkarnir tveir skrifuðu undir stjórnarsáttmála þar sem sagði meðal annars: „ Ríkisstjórnin mun með mark- vissum aðgerðum taka á skulda- vanda íslenskra heimila sem er til kominn vegna hinnar ófyrir- sjáanlegu höfuðstólshækkunar verðtryggðra lána sem leiddi af hruni fjármálakerfisins. Grunnviðmiðið er að ná fram leiðréttingu vegna verðbólgu- skots áranna 2007–2010 en í því augnamiði má beita bæði beinni niðurfærslu höfuðstóls og skattalegum aðgerðum.“ Gaman að því. Sem sagt: Sjálfstæðisflokk- urinn ætlar sér með markviss- um og almennum aðgerðum að færa til gríðarlega fjármuni frá þeim sem eiga sparifé og skuldabréf og til þeirra sem skulda mikið. Stjórnarskráin bannar að þetta sé gert kinn- roðalaust og því þarf að finna leiðir til að gera það óbeint, til dæmis með því að prenta pen- inga eða með því að búa til ein- hverja sjóði, mauka með þá og láta skattgreiðendur borga. En þótt sjóðirnir verði margir og framlögum í þá dreift yfir mörg ár þá verður þetta á endanum samt bara eignatilfærsla. Varnaðarorð hunsuð Nú vill svo til að bæði Efna- hags- og framfarastofnunin (OECD) og Alþjóðagjaldeyris- sjóðurinn vara mjög við þeirri leið að fara í flata niðurfærslu lána. Það gerir Seðlabanki Íslands einnig. Í umsögn Seðla- bankans um þingsályktunartil- lögu um aðgerðir vegna skulda- vanda heimilanna er vísað í fræðigrein eftir Þorvarð Tjörva Ólafsson og Karen Áslaugu Vignisdóttur þar sem kemur fram að flöt afskrift skulda um 20% myndi nýtast illa. Þannig myndi 25% af niðurfærslunni fara til heimila í greiðsluvanda en 30% til heimila sem hafa verulegan afgang af heimilis- rekstrinum, þ.e.a.s yfir 200 þús. kr. á mánuði. Almenn niðurfærsla mun því færa gríðarlegar fjárhæðir til ríks fólks sem þarf ekkert á peningum að halda. Mér líst reyndar vel á þá byrjun á lausn á skuldamálum heimilanna að samþykkja að setja á fót nefnd. Vonandi að starf þeirrar nefndar verði langt og farsælt (en þá sér- staklega langt). Vonandi nógu langt til að markaðurinn nái að leiðrétta alla „forsendu- bresti“ sjálfur. Það gengur raunar ágætlega hjá honum. Kaupmáttur launa er nú sá sami og hann var í júní 2006. Og þá er spurning: Á þá að „leiðrétta“ verðtryggð lán, til að afborg- anir þeirra verði 20% lægri en þær voru þegar fólk ákvað að taka þau? Það er ekki „leið- rétting“, það er peningagjöf. Þetta er auðvitað ekki í fyrsta skipti á þessari öld sem aðgerðir í húsnæðismálum kalla á harða gangrýni skamm- stafaðra stofnana, innlendra sem erlendra. Sama var uppi á teningnum þegar byrjað var að veita 90% með tilheyrandi þenslu á fasteignamarkaði og gríðarlegum óförum Íbúðalána- sjóðs í kjölfarið. AGS, OECD og SÍ höfðu þá uppi sömu varnar- orðin. Ekki var hlustað þá. Í skjóli enn verri hugmynda Sú ábending Sjálfstæðisflokks- ins að stjórnarandandstaðan hafi á sínum tíma viljað ganga enn lengra í 90% lánunum er vissulega merkilegur vitnis- burður um stemninguna í þjóð- félaginu á árunum 2003-2004. En hún er varla sterk málsvörn í sjálfu sér. Stjórnarandstaðan heldur oft fram einhverri dellu. Í umræðum um fjárlög vill hún oftast hækka flest útgjöld. Varla ætlar ríkisstjórn sem keyrir ríkissjóð í kaf með stöð- ugum hallarekstri að afsaka sig með því að þingmenn stjórnar- andstöðunnar hafi stundum viljað eyða enn þá meira. Þeir ráða sem ráða. Þeir þingmenn sem kosnir voru til að gæta aðhalds í ríkis- rekstri eiga ekki að gefa sig. Flöt niðurfærsla lána er ekki skynsöm. Hún er dýr og nýtist bágstöddum heimilum illa. Auðvitað er stemning fyrir henni innan þings sem utan. En ábyrgðin er þeirra sem eru í stjórn. Ef menn nú keyra ríkis- sjóð í kaf þá geta þeir varla, tíu árum síðar, notað þá málsvörn að einhverjir ábyrgðarlausir rugludallar hafi viljað ganga enn lengra. Í DAG Pawel Bartoszek stærðfræðingur Kaupmáttur launa er nú sá sami og hann var í júní 2006. Og þá er spurning: Á þá að „leiðrétta“ verðtryggð lán, til að afborganir þeirra verði 20% lægri en þær voru þegar fólk ákvað að taka þau? Það er ekki „leiðrétting“, það er peningagjöf. MERK JAVAR A Á G ÓÐU V ERÐI SPORTÍS LAGE RHRE INSUN ! ÓTRÚLEG VERÐ - EKKI MISSA AF ÞESSU! SPOR TÍS 30 - 70% AFSLÁTTUR! MÖRKIN 6 108 REYKJAVÍK S:520-1000 SPORTIS.IS

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.