Fréttablaðið - 30.07.2013, Page 1

Fréttablaðið - 30.07.2013, Page 1
FRÉTTIR BLÁBER FYRIR KROPPINNÁvextir eru líkamanum nauðsynlegir, þar sem þeir inni- halda mikið magn vítamína auk þess sem þeir eru lausir við fitu. Nú er gott framboð af bláberjum í verslunum og bráðum verður hægt að tína þau úti í náttúrunni. Bláber eru svokölluð ofurfæða og því mjög holl. M ikil fjöl BESTA HUGLEIÐSLANÁSTRÍÐUKOKKUR Matarbloggið GulurRauðurGrænn&salt fær 50.000 heimsóknir í mánuði. Nú er búið að hanna enska útgáfu bloggsins og höfundurinn undirbýr matreiðslubók. teg 12962 mjúkur og æðislegur í C,D,E skálum á kr. 5.800,- buxur kr. 1.995,- FRÁBÆR ! Laugavegi 178 - Sími: 551 3366Þú mætir - við mælum og aðstoðumwww.misty.isOpið frá 10-18 virka daga.10-14 laugardaga MARAÞONÞRIÐJUDAGUR 30. JÚLÍ 2013 Kynningarblað Mataræði, æfingar, met, þátttakendafjöldi og þrjátíu ára afmæli. Tók áskorun mömmu Stefán Þór Arnarsson hleypur sitt fyrsta maraþon í ár, en það verður einnig í fyrsta sinn á ævinni sem hann keppir í hlaupi. Hann sagði skilið við fitness-lífsstílinn árið 2008 og sn i é ð BÍLARReynsluakstur Chevrolet CaptivaJaguar Smíðar smábíla eingöngu úr áli Þýskar bílasölur mótm æla netsölu á BMW i3 ÞRIÐJUDAGUR 30. JÚLÍ 2013 MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI* *Samkvæmt prentmiðlakönnun Capacent Gallup janúar - mars 2012 Þriðjudagur 12 3 SÉRBLÖÐ Bílar | Maraþon | Fólk Sími: 512 5000 30. júlí 2013 177. tölublað 13. árgangur Saksóknari spyr dæmda Ríkissaksóknari hefur sent fyrir- spurnir til þeirra sem hlutu dóma í Guðmundar- og Geirfinnsmálum. Hann kannar afstöðu til endur- upptöku málanna. 6 Ólykt inni á herbergjum Lím- og málningarlykt tók á móti hótel- gestum í Borgarfirði. Nokkrir kvört- uðu undan ógleði og höfuðverk. 2 Funda með ráðherra Geislafræð- ingar funda með heilbrigðisráðherra í dag um kjaradeilu þeirra við Land- spítalann. Uppsagnir þeirra taka gildi eftir tvo daga. 4 MENNING Helga Guðmundsdóttir, bóndi á Erpsstöðum, tók á móti fimm- tán þúsund gestum í fyrra. 30 SPORT Lars Lagerbäck reyndi að hafa áhrif á ákvörðun Arons um að velja bandaríska landsliðið. 26 Nú er opio allan sólarhringinn í Engihjalla SKOÐUN Teitur Guðmundsson segir áfengissjúkdóm ekki mega vera feimnismál. 13 RAFTÆKJAVERSLUN • SÍÐUMÚLA 2 SÍMI 568 9090 • www.sm.is 24.990 PANASONIC DMCSZ7 VER ÁÐ ÐUR 34 99. 0 ALVÖRU MYNDAVÉL FYRIR KRÖFUHARÐA NÚ Á ÁÐUR ÓÞEKKTU VERÐI 14.1 milljónir punkta FJÁRMÁL „Félagið er fullfjár- magnað og nú er komið að því að framkvæma; að stofna nýjan banka,“ segir Ingólfur Ingólfs- son, fjármálaráðgjafi og einn aðstandenda Sparifélagsins, sem falast eftir 22,4 prósenta hlut Fjarðabyggðar í Sparisjóði Norð- fjarðar. Ingólfur segir Spari félagið hafa leitað leiða frá því fyrir hrun að stofna viðskiptabanka undir nafninu Sparibankinn. Einn möguleikinn sé að kaupa sig inn í sparisjóði. Aðspurður segir Ingólfur Spari- félagið ekki einblína á Sparisjóð Norðfjarðar. „Ríkið á stóran hluta í mörgum spari sjóðum. Þær eign- ir eru væntanlega til sölu á ein- hverjum tímapunkti. Við erum opin fyrir að kaupa einn sparisjóð, meirihluta í sparisjóði, þá alla eða eignarhlut ríkisins í þeim öllum,“ segir hann. Ingólfur segir bæði innlenda og erlenda einstaklinga og lög- aðila koma að fjármögnun félags- ins. „Á meðan hlutirnir eru ekki komnir mikið lengra en þetta get ég ekki sagt mikið meira,“ segir hann um það. „Markmiðið er að skapa sam- keppni á þessum markaði sem sárlega vantar. Þá viljum við líka kynna nýja hugmynd að við- skiptabanka. Það kemur vonandi skemmtilega á óvart,“ segir Ing- ólfur um áformin. Ríkið á 49,5 prósent í Spari- sjóði Norðfjarðar, Fjarðabyggð 22,4 prósent og einstaklingar og félög afganginn. Í ágúst 2011 ákvað stjórn sparisjóðsins að selja sjóðinn. Viðunandi tilboð bárust ekki og hætt var við söl- una. Jón Einar Marteinsson segir sjóðinn standa traustum fótum. Hagnaður ársins 2012 var 19,2 milljónir króna og eigið fé í árs- lok 598 milljónir. Engar áætlanir hafa verið uppi hjá Fjarðabyggð að undanförnu um að selja hlutinn í sparisjóðnum. Bæjarráðið fól Páli Björgvin Guð- mundssyni bæjarstjóra að ræða við Sparifélagið. Páll vill ekkert segja um málið að svo stöddu. - gar Sparifélagið tilbúið í rekstur banka og býður í sparisjóði Sparifélagið býður í hlut Fjarðabyggðar í Sparisjóði Norðfjarðar. Ingólfur Ingólfsson sparnaðarráðgjafi segir félagið reiðubúið að kaupa alla hluti ríkisins í sparisjóðum. Félagið sé full fjármagnað og tilbúið í samkeppni. Þá viljum við líka kynna nýja hug- mynd að viðskipta- banka. Það kemur vonandi skemmti- lega á óvart. Ingólfur Ingólfsson fjármálaráðgjafi. Bolungarvík 11° NA 7 Akureyri 10° NNA 4 Egilsstaðir 11° NV 5 Kirkjubæjarkl. 16° N 1 Reykjavík 17° NNA 6 Bjart eða bjart með köflum sunnan- og vestanlands en rigning norðaustan til. Strekkingur með A-ströndinni en annars fremur hægur vindur. Hiti 8 til 20 stig. 4 „Það er mikil spenna í gangi og ég er alveg haugstressaður,“ segir leikstjórinn Baltasar Kor- mákur, sem staddur er í New York við frumsýningu nýjustu kvikmyndar sinnar, 2 Guns. Það eru stórleikararnir Denzel Washington og Mark Wahlberg sem fara með aðalhlutverkin í myndinni. Baltasar segir sam- starfið hafa gengið vel en að það hafi stundum verið ansi krefj- andi. „Denzel er ekkert lamb að leika sér við en á móti kemur að hann er alveg frábær leikari. Mark þekki ég orðið vel og við erum orðnir góðir vinir svo það er aðeins auðveldara og þægilegra, bara eins og þegar ég vinn með íslenskum vinum mínum.“ Balt- asar bauð allri fjölskyldunni með til New York og var tilhlökkunin ansi mikil að sögn leikstjórans. - ka / sjá síðu 30 Baltasar frumsýnir 2 Guns: Spenntur en haugstressaður SLYS Banaslys varð á Langjökli um hádegisbilið í gær þegar sextugur maður missti stjórn á vélsleða sem hann var á. Maðurinn, sem var frá Taívan, var úrskurðaður látinn í þyrlunni sem flutti hann áleiðis til Reykjavíkur. Eiginkona mannsins, sem einnig var á sleðanum, hlaut minniháttar meiðsl á fæti. Lögreglan á Selfossi sendi menn frá rannsóknardeildinni á slysstað og tók einnig sleðann í sína vörslu til frekari rannsóknar. Að sögn Herberts Hauks sonar frá fyrirtækinu Fjallamönnum átti slysið sér stað á sleða frá þeim en maðurinn ók á honum í óleyfi. Hann var ekki með ökuréttindi og enga reynslu af neinum öku- tækjum. Kvittaði hann undir plagg þar sem undirritaður staðfestir að hann hafi slík réttindi og laumaðist síðan undir stýri og ók af stað með fyrrgreindum afleiðingum. Her- bert segir jafnframt að þakka megi fyrir að enginn úr ferðahópnum hafi orðið fyrir sleðanum meðan honum var ekið af svo óreyndum ökumanni. Tuttugu og níu manns voru í hópnum og voru starfsmenn Fjalla- manna að greiða úr því að þeir fengju áfallahjálp fram eftir kvöldi í gær. - jse Sextugur maður frá Taívan lést í vélsleðaslysi uppi á Langjökli í gær: Vélsleðaslysið til rannsóknar FRÁ LANGJÖKLI Tuttugu og níu manns voru í vélsleðahópnum þegar slysið varð. Hinn látni hafði ekki réttindi til að aka vélsleða að sögn Fjalla- manna. FRÉTTABLAÐIÐ/VILEHLM Í FÖGRUM SKÓGI Halda mætti að þessi mynd væri tekin í sænskum skógi á sumardegi en sú er ekki raunin. Þessi ungi hjólreiðamaður er bara að bregða sér úr borg í bæ á Íslandi og fer eftir nýjum hjólareiðastíg í Fossvoginum sem var rudd leið í gegnum þennan stæðilega skóg. Við hlið hjólreiðastígsins er göngustígur sem rómantísk pör ættu að hafa í huga í blíðviðri næstu daga. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.