Fréttablaðið - 30.07.2013, Side 4
30. júlí 2013 ÞRIÐJUDAGUR| FRÉTTIR | 4
AUGLÝSINGADEILDIR FRÉTTABLAÐSINS– AUGLÝSINGASTJÓRI: Jón Laufdal jonl@frettabladid.is ALMENNAR SÍMI 512-5401: Guðmundur Steinsson gudmundurs@365.is, Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is, Hlynur Þór Steingrímsson hlynur@365.is, Laila Awad laila@365.is, Sigríður Dagný Sigurbjörnsdóttir sigridurdagny@365.is,
Örn Geirsson orn.geirsson@365.is FÓLK/LÍFIÐ/SÉRBLÖÐ SÍMI 512-5402: Atli Bergmann atli.bergmann@365.is, Bryndís Hauksdóttir bryndis@365.is, Ívar Örn Hansen ivarorn@365.is, Kolbeinn Kolbeinsson kolli@365.is, Sigurður Helgi Grímsson sigurdurhg@365.is, Sverrir Birgir Sverrisson sverrirbs@365.is
FÓLK OG SÉRBLÖÐ EFNI: Sólveig Gísladóttir solveig@365.is og Vera Einarsdóttir vera@365.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 512-5403: Hrannar Helgason hrannar@365.is, Viðar Ingi Pétursson vip@365.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 512-5407: Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@365.is, Sigrún Helga Guðmundsdóttir sigrunh@365.is
SVONA ERUM VIÐ
www.rekstrarland.isSkeifunni 11 | Sími 515 1100
R\R\\\\\\R\R\\\R\R\\\\\\\\\\\\\\\\\
A
R\R\\R\R\R
A
RRR
PA
R
PA
PI
PA
P
A
W
A
W
AA
A
AAA
W
A
W
AAA
W
A
W
A
W
A
W
A
W
AA
W
A
W
A
WWWWBWWBWBWWWBWBWWWBWWBWBWBWBWBBBBBBBBBBBBBBBBBBBBBBBBBBBBBBBBBBBBBTBBBBBBBBBTBTBBBBBBBBBTBBBBBBBTBTBTTTTTTTTTTTTTTTTTTTTTTTTTTTTTTTTTTTTTTTTTTTTTTTT
•••••
ÍASÍ
A
S
ÍA
S
ÍA
S
ÍAAAÍASÍ
AÍÍS
••••
1919211222
13
2
13
23313313333111 11
0000
GARÐ-
VEISLAN
Í Rekstrarlandi finnurðu
mikið úrval af veisluvörum
fyrir afmæli, grillpartý,
brúðkaup o.fl.
56,5 milljörðum króna nam aflaverðmæti íslenskra
skipa á fyrstu fjórum mánuðum
ársins 2013
samanborið við 58,6 milljarða á sama
tímabili 2012. Aflaverðmæti hefur því
dregist saman um 3,6%.
Aflaverðmæti botnfisks var tæplega
33,8 milljarðar og dróst saman um
7,6%. Heimild: Hagstofa Íslands
FÉLAGSMÁL Vestmannaeyjabær verður með barna verndar-
fólk á bakvöktum meðan Þjóðhátíð stendur yfir.Eins og
áður verða bakvaktirnar starfræktar frá fimmtudags-
kvöldi til mánudagskvölds.
Starfsmenn fjölskyldu- og fræðslusviðs munu sinna
bakvöktunum. Eins á að semja við aðila um greiðslur
fyrir að vera til taks til að veita börnum móttöku í bráða-
tilvikum ef þörf krefur.
„Fjölskyldu- og tómstundaráð beinir því til foreldra
og forráðamanna að börn undir átján ára aldri eru ólög-
ráða og á ábyrgð foreldra. Þetta gildir einnig um gest-
komandi börn, þau þurfa að vera á ábyrgð fullorðinna
einstaklinga,“ undirstrikar fjölskyldu- og tómstundaráð
Vestmannaeyja. - gar
Fjölskylduráð Vestmannaeyja undirstrikar að börn séu á ábyrgð foreldra:
Barnaverndarvaktir á Þjóðhátíð
ÞJÓÐHÁTÍÐ Bæði gestkomandi börn og heimabörn
undir átján ára eru á ábyrgð foreldra, ítrekar fjölskylduráð
Vestmannaeyja. MYND/ÓSKAR P. FRIÐRIKSSON
KJARAMÁL Meginkrafa geislafræð-
inga við Landspítalann er sú að
geta lifað af launum sínum fyrir
venjulega vinnuviku. Þetta segir
Katrín Sigurðardóttir, formaður
þeirra, í samtali
við Fréttablaðið.
Geislafræðing-
ar og stjórnendur
Landspítala hitta
Kristján Þór
Júlíusson heil-
brigðisráðherra
í dag til að ræða
kjaradeiluna við
Landspítalann.
Uppsagnir um tveggja af hverjum
þremur geislafræðingum við spítal-
ann taka gildi á fimmtudaginn.
„Við geislafræðingar höfum verið
á lægri launum
en aðrar stéttir
með sambæri-
lega menntun og
viljum fá leið-
réttingu á okkar
kjörum,“ segir
Katrín, en dag-
vinnulaun geisla-
fræðinga eru að
hennar sögn um
300 þúsund krónur. Geislafræði er
fjögurra ára háskólanám.
„Svo er þetta mjög sérhæft starf
og verðmætt sem ætti að okkar
mati að meta eftir því,“ segir hún.
Annað atriði sem Katrín nefnir er
vaktafyrirkomulag sem hún segir
afar krefjandi.
„Það felur í sér margar bak vaktir
og mikið álag sem þýðir að fólk er
alltaf að vinna. Við viljum bara 40
stunda vinnuviku eins og aðrir án
þess botninn detti úr launum okkar.“
Katrín segist vera bjartsýn um
að fundurinn í dag skili nokkrum
árangri, þrátt fyrir að málið
snúi fyrst og fremst að fjármála-
ráðuneytinu.
Ráðherra segir í samtali við
Fréttablaðið að hann hyggist hitta
geislafræðinga og fulltrúa Land-
spítalans í dag til að glöggva sig á
stöðu mála. Hann segist ekki vilja
gefa sér að allt fari á versta veg.
„Ég bind vonir við að aðilar
málsins nái saman. Ég held að það
sé öllum fyrir bestu,“ segir hann.
„Mín nálgun á þetta mál er að
hvetja aðila máls til að leggja sig
fram um að ná lendingu og ég er
tilbúinn til að leggja þeim lið við
það, en fyrst og fremst er þetta
útfærsla á stofnana samningi milli
starfsmanna og stjórnenda á Land-
spítalanum.“
Ekki hefur verið boðað til fleiri
funda í deilunni milli geisla-
fræðinga og Landspítalans. Tveir
fundir voru haldnir í síðustu viku
en lítið þokaðist í samkomulagsátt.
thorgils@frettabladid.is
Vilja geta lifað af 40
stunda vinnuviku
Uppsagnir meginþorra geislafræðinga við Landspítalann taka gildi eftir tvo daga
ef ekki næst saman um bætt kjör. Formaður Félags íslenskra geislafræðinga segir
stéttina hafa setið eftir í kjörum og vill að hægt verði að lifa af dagvinnulaunum.
LANDSPÍTALINN
Uppsagnir megin-
þorra geislafræð-
inga taka gildi
á fimmtudag ef
ekki næst saman
við stjórnendur
spítalans um
kjarabætur. FRÉTTA-
BLAÐIÐ/VILHELM
KRISTJÁN ÞÓR
JÚLÍUSSON
KATRÍN
SIGURÐARDÓTTIR
■ Katrín Sigurðardóttir, formaður Félags íslenskra geislafræðinga, segir að kröfur
geislafræðinga miði ekki við aðrar stéttir. Þó má nefna að Landspítalinn
hefur á síðustu mánuðum samið um nýja stofnanasamninga við hjúkrunar-
fræðinga og lífeindafræðinga. Þar fengu félagsmenn hækkun upp á einn til
tvo launaflokka sem jafngildir fimm til tíu prósenta launahækkun.
■ Í úttekt fjármálaráðuneytisins frá því fyrr á þessu ári kemur í ljós að meðaltal
dagvinnulauna geislafræðinga var um 350.000 í marsmánuði og meðaltal
heildarlauna með yfirvinnu og vaktaálagi var 550.000.
■ Á sama tíma var meðaltal dagvinnulauna hjá hjúkrunarfræðingum um
413.000 og meðaltal heildarlauna var um 586.000.
Sambærilegar stéttir hafa fengið 5-10%
BANDARÍKIN Herdómstóll í Banda-
ríkjunum komst í gær að niðurstöðu
í máli uppljóstrarans Bradley Mann-
ing. Dómurinn verður þó ekki birtur
fyrr en í dag. Manning hefur verið í
fangelsi í þrjú ár. Hann á yfir höfði
sér ævilangt fangelsi fyrir alvarleg-
asta ákæruatriðið, sem er að hafa
aðstoðað óvini Bandaríkjanna.
Hann á einnig yfir höfði sér refs-
ingu fyrir tuttugu önnur ákæruat-
riði, þar á meðal fyrir njósnir og
þjófnað.
Manning er 25 ára. Hann hefur
viðurkennt að hafa lekið hundr-
uðum þúsunda leynilegra skjala
meðan hann var hermaður í Írak.
- gb
Dómur felldur yfir Manning:
Niðurstaðan
birt í dag
BRADLEY MANNING Hefur setið í
fangelsi í þrjú ár. NORDICPHOTOS/AFP
Ingibjörg Karlsdóttir
veðurfréttamaður
Veðurspá
Fimmtudagur
Fremur hægur vindur víðast hvar.
NORÐANÁTT verður ríkjandi næstu daga og því dregur heldur úr hlýindum á landinu,
sérstaklega norðan og austan til. Bjartast verður sunnan- og vestanlands og líkur á
síðdegisskúrum en væta á norðausturhorninu.
11°
7
m/s
13°
6
m/s
17°
6
m/s
13°
2
m/s
Á morgun
Strekkingur allra vestast og austast en
annars hægari vindur.
Gildistími korta er um hádegi
13°
11°
13°
8°
8°
Alicante
Aþena
Basel
31°
36°
29°
Berlín
Billund
Frankfurt
24°
22°
25°
Friedrichshafen
Gautaborg
Kaupmannahöfn
24°
23°
23°
Las Palmas
London
Mallorca
26°
21°
33°
New York
Orlando
Ósló
27°
31°
22°
París
San Francisco
Stokkhólmur
26°
18°
20°
16°
1
m/s
13°
4
m/s
11°
5
m/s
9°
6
m/s
10°
4
m/s
8°
6
m/s
9°
4
m/s
13°
9°
12°
10°
8°
LÖGREGLUMÁL Lögregla leitar enn
að Friðriki Kristjánssyni, sem tal-
inn er hafa horfið í Suður-Ameríku
fyrr á árinu. Ekkert hefur spurst
til Friðriks síðan í apríl.
Lögregla lýsti formlega eftir
ábendingum um
ferðir Friðriks
fyrir fjórum
vikum. Friðrik
Smári Björgvins-
son yfirlögreglu-
þjónn segir að
nokkrar ábend-
ingar hafi borist.
„Það hefur eitt-
hvað komið en
ekki leitt til neins,“ segir hann.
Fram hefur komið í fjölmiðlum
að lögreglu hefðu borist óstað-
festar upplýsingar um að Friðriki
hefði verið ráðinn bani á ferðalagi
sínu um Suður-Ameríku.
Upphaflega lét lögregla grennsl-
ast fyrir um Friðrik í Paragvæ.
Íslensk yfirvöld eru enn í sam-
starfi við erlenda lögreglu vegna
málsins, að sögn Friðriks Smára,
aðallega þá brasilísku. - sh
Enn týndur í Suður-Ameríku:
Ábendingar
hafa engu skilað
FRIÐRIK
KRISTJÁNSSON
TÚNIS, AP Forsætisráðherrann í
Túnis segist enga ástæðu sjá til
þess að segja af sér, þótt stjórnar-
andstæðingar krefjist þess af
honum.
Forsætisráðherrann Ari Laraj-
edh hélt þrumuræðu í gær þar
sem hann vísaði öllum slíkum
kröfum á bug. Hins vegar gaf
hann loforð um að ný stjórnar-
skrá verði tilbúin í ágúst og kosn-
ingar verði haldnar í desember.
Almenn reiði hefur verið í
Túnis eftir að stjórnmálamaður-
inn Múhamed Brahmi var myrt-
ur í síðustu viku. - gb
Forsætisráðherra Túnis:
Hafnar kröfum
um afsögn
ÍTALÍA, AP „Ef einhver er samkyn-
hneigður og leitar guðs og vill
vel, er ég þá þess umkominn að
fella dóma?“ sagði Frans páfi við
blaðamenn um borð í flugvél í gær-
morgun, þegar hann var á leiðinni
frá Brasilíu aftur til Rómar.
Hann sagðist líka vilja styrkja
stöðu kvenna innan kaþólsku kirkj-
unnar, en hafnar því að konur eigi
að fá að vera prestar.
Blaðamönnunum, sem ræddu við
hann í flugvélinni í rúmlega tutt-
ugu mínútur, þótti hann opinskár
og einlægur í svörum. - gb
Frans páfi svarar í flugvél:
Fordæmir ekki
samkynhneigð
SÝRLAND, AP Paulo Pinheiro, for-
maður rannsóknarnefndar um
mannréttindabrot í Sýrlandi,
segir að alþjóðasamfélagið
verði nú að grípa inn í og stöðva
ofbeldið í Sýrlandi.
„Heimsbyggðin verður að
heyra hróp fólksins – stöðvið
ofbeldið, stöðvið blóðbaðið,
komið í veg fyrir eyðileggingu
Sýrlands,“ segir hann.
Hann segir almenna borgara
helstu fórnarlömb ofbeldisins.
- gb
Varnaðarorð frá SÞ:
Stöðva verður
eyðilegginguna