Fréttablaðið - 30.07.2013, Qupperneq 8
30. júlí 2013 ÞRIÐJUDAGUR| FRÉTTIR | 8
MYNDARLEGUR
www.landrover.is
NÝR LAND ROVER DISCOVERY 4
VERÐ FRÁ 10.990.000 KR.
Land Rover Discovery 4 er einn glæsilegasti jeppi sem til er. 211 hestafla dísilvél sem eyðir aðeins
8,3 l/100 km í blönduðum akstri*, ný 8 þrepa sjálfskipting með takkaskiptingu í stýrinu og loftpúðafjöðrun
á öllum hjólum sem tengd er Terrain Response stillanlega fjöðrunarkerfinu.
Þú færð allar nánari upplýsingar um verð og búnað á www.landrover.is
BL ehf
Sævarhöfða 2 / 110 Reykjavík
525 8000 / www.bl.is
Bílahúsið
Reykjanesbæ
www.bilahusid.is
421 8808
Bílasalan Bílás
Akranesi
www.bilas.is
431 2622
Bílasala Akureyrar
Akureyri
www.bilak.is
461 2533
Bílaverkstæði Austurlands
Egilsstöðum
www.bva.is
470 5070
E
N
N
E
M
M
/
S
ÍA
/
N
M
5
7
9
9
0
*M
ið
að
v
ið
u
pp
ge
fn
ar
v
ið
m
ið
un
ar
tö
lu
r
fr
am
le
ið
an
da
u
m
e
ld
sn
ey
tis
no
tk
un
í
bl
ön
du
ðu
m
a
ks
tr
i.
AÞENA Borgarstjóri Aþenu, Georg
Kaminis, gaf ekki leyfi fyrir
matar úthlutun sem nýnasistaflokk-
urinn Gyllt dögun ætlaði að standa
fyrir. Matarúthlutunin, sem átti að
vera svipuð og Fjölskylduhjálpin
hér á Íslandi, var einungis ætluð
Grikkjum en flokkur inn er harð-
lega á móti innflytjendum frá Afr-
íku og Asíu. Borgarstjórinn gekk
lengra og bannaði alla útifundi
og mótmæli á vegum flokksins.
Flokksmenn hafa sagt að úthlut-
unin fari fram síðar og þá á skrif-
stofum flokksins í Aþenu.
Til mikilla átaka kom á síð-
asta ári þegar Gyllt dögun hóf
álíka úthlutun án allra leyfa á
Stjórnarskrár torginu í Aþenu.
Eftir að borgarstjórinn lagði bann
við henni var einn þingmaður
flokksins handtekinn á skrifstofu
borgarstjórans vopnaður hnífi.
Þingmenn flokksins hafa valdið
miklum usla í þjóðfélaginu en þeir
standa til dæmis fyrir eftirlits-
ferðum þar sem útlendingar með
sölubása á mörkuðum borgarinnar
eru beðnir um að sýna dvalar- og
atvinnuleyfi. Hafi þeir ekki slíka
pappíra tiltæka koma þeir bás-
unum sem og öllu varningi fyrir
kattar nef. Eins hefur Ilias Kassidi-
aris, þingmaður flokksins, farið
fyrir dómstóla en hann löðrungaði
viðmælanda sinn í sjónvarpssal
og hellti vatni yfir annan. Allt var
Nýnasistar kynda undir
útlendingahatrinu í Aþenu
Borgarstjóri Aþenu bannaði matarúthlutun stjórnmálaflokksins Gylltrar dögunar sem átti einungis að vera
fyrir Grikki. Flokkurinn er með nítján þingmenn sem láta til sín taka með ofbeldi og útlendingahatri.
ÞINGMAÐUR LÆTUR HNEFA TALA
Ilias Kasidiaris, þingmanni Gylltrar
dögunar, hljóp kapp í kinn þegar málin
voru rædd í beinni útsendingu og lamdi
Liana Kanelli, þingmann vinstriflokksins
KKE.
HJÁLP EN
AÐEINS FYRIR
HELLENA
Félagar úr Gylltri
dögun útdeildu
mat í fyrra án
þess að hafa leyfi
upp á vasann.
Aðstoðin býðst
einungis Grikkj-
um enda hefur
Gyllt dögun
megna andúð á
nýbúum.
FRÉTTABLAÐIÐ/AFP/
NORDICPHOTOS
ILIAS KASIDIARIS Þingmaður Gylltrar
dögunar talar við fjölmiðla eftir að hafa
verið sýknaður af því að hafa lamið
annan þingmann. Atvikið átti sér stað
í sjónvarpssal í beinni útsendingu svo
ekki vantaði sannanir.
KÓPAVOGUR Íbúar hússins Digra-
nesvegar 34-36 í Kópavogi mót-
mæla harðlega áætlunum um
að sett verði upp biðstöð fyrir
Strætó við húsið. „Með því að
setja upp strætóstöð á þennan
stað er verið að taka af okkur
bílastæði, eyðileggja mögu-
leikann á að setja bílastæði inni á
lóðinni og auka mikið umferðar-
hættu,“ segja íbúarnir í bréfi til
bæjaryfirvalda þar sem þess er
krafist að hætt verði við áformin.
Bæjaryfirvöld eru að fara yfir
málið. - gar
Kröfugerð til bæjaráðs:
Andvíg biðstöð
á Digranesvegi
STRÆTÓ Íbúar á Digranesvegi 34-36
vilja ekki strætisvagnabiðstöð.
DANMÖRK Fjöldi erlendra fanga
í fangelsum og í gæsluvarðhaldi
í Danmörku hefur aldrei verið
meiri. Á hverjum degi sitja að
meðal tali 387 austur-evrópskir
fangar á bak við lás og slá og er
það 18 prósenta aukning frá 2011.
Erlendu fangarnir eru nær tíundi
hluti allra þeirra sem sitja inni,
að því er kemur fram á fréttavef
Politiken. - ibs
Fangar í Danmörku:
A-Evrópumenn
nær 10 prósent
þetta í beinni útsendingu en þó var
hann sýknaður.
Í maí síðastliðnum barst svo
félagi múslíma í Aþenu hótun þar
sem þeir eru hvattir til að yfirgefa
landið fyrir næstu mánaðamót því
í júlí verði þeir múslímar sem eftir
verði í borginni „sendir til andskot-
ans“. jse@frettabladid.is