Fréttablaðið - 30.07.2013, Blaðsíða 12

Fréttablaðið - 30.07.2013, Blaðsíða 12
30. júlí 2013 ÞRIÐJUDAGURSKOÐUN HALLDÓR FRÉTTABLAÐIÐ Skaftahlíð 24, 105 Reykjavík Sími: 512 5000, ritstjorn@frettabladid.is FRÉTTASTJÓRI: Andri Ólafsson andri@frettabladid.is HELGAREFNI: Kjartan Guðmundsson kjartan@frettabladid.is VÍSIR: Kristján Hjálmarsson, kristjan@visir.is LJÓSMYNDIR: Pjetur Sigurðsson pjetur@frettabladid.is FRAMLEIÐSLUSTJÓRI: Sæmundur Freyr Árnason sfa@frettabladid.is ÚTLITSHÖNNUN: Silja Ástþórsdóttir siljaa@frettabladid.is ÚTGÁFUFÉLAG: 365 miðlar ehf. STJÓRNARFORMAÐUR: Ingibjörg S. Pálmadóttir FORSTJÓRI OG ÚTGÁFUSTJÓRI: Ari Edwald RITSTJÓRAR: Ólafur Þ. Stephensen olafur@frettabladid.is, Mikael Torfason mikael@frettabladid.is Fréttablaðið kemur út í 90.000 eintökum og er dreift ókeypis á heimili á höfuðborgarsvæðinu og Akureyri. Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslunum á landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. ISSN 1670-3871 FRÁ DEGI TIL DAGS „Mamma … förum við ekki örugglega aftur á Þjóðhátíð á næsta ári?“ spurði tíu ára sonur minn í fyrra þegar enn logaði glatt á blysunum í Herjólfsdal að loknum brekkusöngnum. Þetta var loforð sem mamman átti auðvelt með að gefa: „Auð- vitað förum við á Þjóðhátíð á næsta ári.“ Og nú er að koma að því og tilhlökkunin er mikil hjá fjölskyldunni allri. Það er einmitt þetta sem gerir Þjóð- hátíðina svo einstaka – kynslóðirnar skemmta sér saman. Hátíðleg setningar- athöfn, svignandi hlaðborð í hvítum tjöldum heimamanna, söngvakeppni barnanna, brekkusöngur, blys, flugeldar og tjútt á pallinum. Gestrisni Eyjamanna eru engin takmörk sett, vináttan einlæg og sönn, vandamál eru ekki til – einungis viðfangsefni til úrlausnar. Og allt virð- ist þetta Eyjamönnum svo áreynslulaust þrátt fyrir það að vera risavaxið verk- efni. Því fleiri gestir því betra – og við- kvæðið er alltaf það sama: Ekkert mál – við reddum því. Ég fór á mína fyrstu Þjóðhátíð það herrans ár 2007, flaug fram og til baka á Bakka til að mæta í brekkusönginn á sunnudagskvöldinu. Ég hélt að ég væri að mæta á klassíska útihátíð eins og þær sem ég sótti á mínum yngri árum og því væri nóg að stoppa stutt rétt til að ná stemningunni. En Þjóðhátíð er svo allt annað og meira en klassísk útihátíð. Hún er fjölskylduhátíð, ættarmót, menningar- veisla, ball… og hún er fyrir allar kyn- slóðir. Það er þess vegna sem ég er hætt að stoppa stutt á Þjóðhátíð – ég mæti fyrst og fer síðust, tek fjölskylduna alla með mér og sameinast með vinum mínum á eyjunni fögru í gleði og söng. Lífið er yndislegt – ég hlakka til að sjá ykkur í dalnum. Þjóðhátíð kynslóðanna SAMFÉLAG Ragnheiður Elín Árnadóttir iðnaðar- og viðskiptaráðherra ➜ Ég hélt að ég væri að mæta á klassíska útihátíð eins og þær sem ég sótti á mínum yngri árum og því væri nóg að stoppa stutt rétt til að ná stemmningunni. En Þjóðhátíð er svo allt annað og meira en klassísk útihátíð. Hún er fjölskylduhátíð, ættarmót, menningarveisla, ball... og hún er fyrir allar kynslóðir. Einstakar brúðargjafir Brúðargjafatilboð www.lindesign.is D ruslugangan á laugardag var gleðilegt framtak og gott innlegg í umræðuna um það að varpa ábyrgðinni á nauðgunum þangað sem hún á heima; til nauðgar- anna. Tilgangur göngunnar var að undirstrika það að klæðnaður kvenna getur aldrei afsakað það að þeim sé nauðgað, að konum sé frjálst að klæðast hverju sem þær lystir án þess að vera stimplaðar druslur sem séu „að bjóða upp á það“. Góður punktur sem seint verður undirstrikaður um of. Fórnarlömb nauðgana eru þó ekki einu konurnar sem dæmdar eru fyrir klæðnað sinn. Stór hluti af umfjöllun fjölmiðla um konur snýst nefnilega um klæðnað þeirra, útlit og líkamlegt form. Fyrir- sagnir á borð við „Í hverju er manneskjan eiginlega?“, „Svakalega hefur hún grennst“, „Komin í fantaform eftir barnsburð“ og aðrar álíka tröllríða slúðurfréttum netmiðla, bæði hérlendra og erlendra, á hverjum einasta degi. Nú síðast var það Katrín hertogaynja af Cambridge sem setti Twitter og aðra netmiðla á annan endann með því að reyna ekki að fela á sér magann á myndunum sem voru teknar daginn eftir fæðingu sonarins. Svo nærri netverjum gengu þessi ósköp að tímaritið OK! birti forsíðuviðtal við einkaþjálfara hennar, sem fullvissaði heimsbyggðina um að Katrín væri í fantaformi og maginn yrði horfinn innan nokkurra vikna. Og heimsbyggðin andaði sjálfsagt léttar. Aðrir fjölmiðlar og kommentarar á netinu hrósuðu hertoga- ynjunni fyrir þann kjark að reyna ekki að fela á sér magann og miklar bollaleggingar um hvort það hefði verið með vilja gert eður ei áttu sér stað. Flestir hölluðust að því að svo hefði verið og gengu jafnvel svo langt að segja að Katrín hefði „brotið blað“ í fjölmiðla- framkomu fræga fólksins. Að hún væri „algjör hetja“. Það var og. Það er reyndar að bera í bakkafullan lækinn að gera umfjöllun fjölmiðla um frægar konur að umtalsefni eina ferðina enn, en að það þyki hetjuskapur hjá konu að leyfa heiminum að sjá að magi hennar sé ekki skroppinn saman daginn eftir fæðingu er svo veruleikafirrt að það vekur ótta. Hvernig í ósköpunum eiga dætur okkar að fara að því að öðlast eðlilegt viðhorf til líkama síns á meðan slík viðhorf eru ríkjandi? Ekki er nóg með að þær heyri það úr öllum áttum að þær verði að vera í kjörþyngd, í fullkomnu formi og óaðfinnanlega klæddar og snyrtar, heldur er það nú ámælis- vert að gangast við því að líkami kvenna lúti eðlilegum náttúru- lögmálum. Hvert er samfélag sem sendir helmingi mannkyns slík skilaboð eiginlega komið? Umræðan um útlitsdýrkun og óraunhæfar kröfur í því sam- bandi hefur grasserað árum saman en árangurinn virðist furðu lítill. Jafnvel fjölmiðlar sem þykjast aðhyllast feminískar hug- sjónir víla ekki fyrir sér að birta slúðurfréttir um útlit og klæðnað frægra kvenna, enda slíkt ávallt meðal mest lesnu fréttanna, svo dapurlega sem það nú hljómar. Burtséð frá afrekum kvennanna er það fyrst og síðast útlit þeirra sem áhugann vekur og ekki síst ef það skyldi nú vera hægt að fetta fingur út í það og gera lítið úr viðkomandi konu í leiðinni. Feminískar áherslur fjölmiðlanna rista nú ekki dýpra en svo. Konur eru alltaf dæmdar eftir útliti og klæðnaði. Í hverju er mann- eskjan eiginlega? Friðrika Benónýsdóttir fridrikab@frettabladid.is Hin svokölluðu hrunmál Brynjar Níelsson heldur áfram að gagnrýna ríkisstofnanir á bloggi sínu. Fyrst var það Jafnréttisstofa, næst beindi hann öllum sínum kröftum að Ríkisútvarpinu og nú er það sérstakur saksóknari sem fær að kenna á vendi þingmannsins. Hvert skyldi hann snúa sér næst? Í grein sinni um sérstakan saksóknara smíðar Brynjar glænýja skil- greiningu á svokölluðum hrunmálum, sakamálum sem eru beintengd bankahruninu: þau verði að varða stóru bankana þrjá og hafa átt sér stað fyrir hrunið. Þannig kemst Brynjar að því að Exeter-málið, þar sem stjórnendur sparisjóðs- ins Byrs plottuðu um það á sjálfum degi neyðarlaganna að hygla sjálfum sér á kostnað stofnfjár- eigenda, væri ekki hrunmál. Það er óskiljanlegt. Biti frá Birni Einn sem er ósammála gagnrýni Brynjars er samflokksmaður hans og bróðir í lögfræðinni, Björn Bjarnason, fyrrverandi dómsmálaráðherra. Í samtali við Eyjuna segir hann að það sé ekki hlutverk stjórnmála- manna að skipta sér af ákvörðunum ákæruvaldsins, segja saksóknurum fyrir verkum eða letja þá til að sinna starfi sínu. Brynjar skuli flytja frumvarp um það á þingi vilji hann þrengja að heimildum sérstaks saksóknara eða leggja til niðurskurð við afgreiðslu fjárlaga. Brynjar lætur þessu varla ósvarað. Óboðlegt? Elsa Lára Arnardóttir, nýr þingmaður Framsóknarflokksins, var í opinskáu viðtali um fjárhagserfiðleika sína á mbl. is í gær. Hún viðurkennir að hún hafi brotnað saman þegar henni var tilkynnt að borgaði hún ekki 5,8 milljónir fyrir 1. ágúst mundi hún missa húsið sitt. Rétt er að hrósa Elsu Láru fyrir að pukrast ekki með erfiðleika sína. Það var hins vegar ekki nema von að Páll Vilhjálmsson bloggaði um málið og segði óboðlegt að svo grandalaus kona setti landinu lög. stigur@frettabladid.is

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.