Fréttablaðið - 30.07.2013, Blaðsíða 13
ÞRIÐJUDAGUR 30. júlí 2013 | SKOÐUN | 13
Þú ert í rólegheitunum, frí á morg-
un og engar áhyggjur af einu eða
neinu, búinn að setja steik á grillið
og ætlar að njóta kvöldsins í botn
með fjölskyldu og vinum. Þá er
ekki úr vegi að opna einn bjór eða
góða flösku af víni sem passar með
matnum til að kóróna góða máltíð.
Það er menningarlegt og meira að
segja hollt að fá sér rauðvínsglas
segja fræðingarnir og þér finnst þú
eiga það inni eftir erfiða vinnuviku
að slaka vel á.
Flestar þjóðir í hinum vestræna
heimi nota áfengi á þennan hátt og
hafa Íslendingar lagað sig hratt að
kúltúrnum ef svo mætti segja frá
árinu 1989 þegar banni við sölu á
áfengum bjór var aflétt. Neyslu-
mynstrið hefur breyst úr sterkara
áfengi yfir í léttvín og bjór en lítra-
fjöldi af hreinum vínanda hefur
engu að síður aukist jafnt og þétt á
þessu árabili. Greina má af tölum
Landlæknisembættisins að í kjölfar
hrunsins hafi dregið úr neyslu en
við stefnum hraðbyri aftur í sömu
magntölur og við sáum árið 2007.
Þá var skráð mesta sala áfengis síð-
astliðin 26 ár, eða 7,5 lítrar/einstak-
ling af hreinum vínanda að meðal-
tali. Kreppan er því á undanhaldi ef
þessi mælikvarði er notaður.
Vínmenning er mikil í kringum
okkur og er það í sjálfu sér af hinu
góða og ekkert við það að athuga að
fólk fái sér í tána af og til, hvaða
tilefni sem einstaklingurinn gefur
sér fyrir slíkri neyslu. Íslending-
ar eru enn talsvert langt frá þeim
neyslutölum sem næstu nágrannar
okkur liggja í en til samanburðar
má nefna að Danir og Bretar leggja
sér til munns um tíu lítra, Frakk-
ar og Þjóðverjar í kringum tólf
lítra, á meðan Ítalir nota rúma sex
lítra, sem er æði sérstakt og minna
en Norðmenn ef marka má tölur
Alþjóðaheilbrigðismálastofnunar
frá árinu 2010.
Togstreita
En þetta er bara önnur hliðin á
peningnum því neysla áfengis í
saman burði við nágrannaþjóð-
ir segir okkur ekkert endilega til
um það hversu margir glíma við
vanda vegna þess sem í daglegu
tali er kallað áfengissjúkdómur
eða alkóhólismi. Mjög margir nota
áfengi en ekki eru allir með vanda-
mál vegna þessa, þó geta mörkin
þarna á milli orðið ansi óskýr og á
einstaklingurinn sjálfur oft í mikl-
um vanda með að átta sig og getur
jafnvel skort innsýn eða hreinlega
verið í afneitun. Fjölskylda, vinir
og samstarfsmenn eru oft þeir sem
benda á vandann og getur skapast
talsverð togstreita þegar slíkt ber
á góma.
Vandamál sem þessi eiga þó
ekki að vera neitt feimnismál né
heldur eiga menn að þurfa að fara
í felur með sinn vanda sem er allt-
of algengt, en það helgast af þeirri
nálgun að þessi sjúkdómur sé öðru-
vísi en aðrir og viðkomandi eigi að
skammast sín glími þeir við hann.
Það er merkileg staðreynd að það
er ekki sama hvaða sjúkdóm maður
fær og að þeir sem tengjast hegðun
fá oft minni samúð meðal almenn-
ings en aðrir.
Margþættar orsakir
Orsakir fyrir áfengisvanda eru
margþættar og byggja á erfðum,
sálfélagslegum og samfélagslegum
þáttum og umhverfi viðkomandi.
Sjúkdómurinn þróast með tímanum
en það eru ákveðnir áhættuþættir
sem ýta sérstaklega undir vand-
ann. Þeir sem byrja ungir að neyta
áfengis eru líklegri til að þróa með
sér ávana, reglubundin eða stöðug
áfengisneysla, fjölskyldusaga um
áfengisvanda, kvíði, þunglyndi og
félagslegir þættir vega þungt. Ýmis
greiningarskilmerki eru notuð sem
hafa gagnast vel og eru víða notuð
við uppvinnslu þeirra sem leita
vegna áfengisvanda til heilbrigðis-
starfsmanna. Vert er þó að hafa í
huga að það að spyrja um áfengis-
neyslu á að vera jafn sjálfsagt og að
vita hvaða lyf og í hvaða skömmt-
um viðkomandi neytir þeirra. Allt-
of oft er skautað af léttúð yfir þess-
ar spurningar því grunnurinn að
vanda einstaklingsins getur legið í
neyslumynstri hans.
Ekki má gleyma því að áfengis-
neysla hefur áhrif á næstum öll líf-
færi okkar á einn eða annan hátt.
Alþekkt er að skoða slíka neyslu í
tengslum við slys enda sennilega
þekktasta virkni áfengis að slæva
einstaklinginn og skerða dóm-
greind hans. Lifrarsjúkdómar eins
og fitu- og skorpulifur eru algengir
við mikla neyslu. Síður þekkt er að
áfengi hækki blóðþrýsting og auki
þannig líkur á hjarta- og æðasjúk-
dómum, skemmi slímhúð melting-
arvegarins og auki líkur á krabba-
meinum, ýti undir beinþynningu,
dragi úr virkni ónæmiskerfisins og
auki veikindatíðni, eyðileggi tauga-
kerfið, valdi fósturskaða og síðast
en ekki síst geti gert konur og karla
getulaus.
Það er því afar mikilvægt að
horfa á áfengisvanda sem sjúkdóm
með margar birtingarmyndir, það
þarf að opna umræðuna enn frek-
ar og afmá skömmina sem hefur
verið fylgifiskur sjúkdóma eins og
alkóhólisma. Þannig munum við ná
betur tökum á vanda þeirra sem
þjást, bæta meðferðina og auka lífs-
líkur sjúklinga.
HEILSA
Teitur
Guðmundsson
læknir
Ekki má gleyma því
að áfengisneysla hefur áhrif á
næstum öll líffæri okkar á
einn eða annan hátt.
Bara einn í viðbót …
Skógarhlí› 18 • Sími 595 1000 • Fax 595 1001 Akureyri sími: 461 1099 • www.heimsferdir.is
B
irt
m
eð
fy
rir
va
ra
u
m
p
re
nt
vi
llu
r.
H
ei
m
sf
er
ð
ir
ás
ki
lja
s
ér
r
ét
t
til
le
ið
ré
tt
in
g
a
á
sl
ík
u.
A
th
. a
ð
v
er
ð
g
et
ur
b
re
ys
t
án
fy
rir
va
ra
.
E
N
N
E
M
M
/
S
IA
•
N
M
57
64
9
frá kr. 179.900*
Sikiley
á mann í tvíbýli
3.-10. október
Fararstjórar: Ólafur Gíslason og
Gréta Valdimarsdóttir
Heimsferðir bjóða beint leiguflug til Sikileyjar í byrjun október á yndislegum tíma. Hitastigið er notalegt og hentar bæði til sólbaða og fyrir þá sem vilja
verja tímanum til að skoða þessa stórbrotnu eyju. Flogið
er til Palermo og dvalið skammt frá strandbænum Cefalu
í 3 nætur, þá er haldið til austurstrandarinnar og dvalið á
ferðamannastaðnum Giardino Naxos í 4 nætur. Flogið til
Íslands frá Catania flugvelli á austurströndinni. Áhugaverðar
kynnisferðir eru í boði með íslenskum fararstjórum.
Samfelld 2700 ára menningarsaga, einstök náttúrufegurð,
ótrúlegar fornminjar, fallegar byggingar og söfn, ásamt
áhugaverðri matarmenningu og blómlegu mannlífi – allt
þetta og miklu meira finnur þú á Sikiley.
Spennandi kynnisferðir
• Hálfsdagsferð til Cefalu
• Dagsferð til Palermo og Monreale
• Dagsferð að eldfjallinu Etnu og Taormina
bænum
• Dagsferð til Siracusa og Noto
• Dagsferð / sigling til eyjanna Lipari og
Vulcano
* Innifalið: Flug – skattar – gisting í 3 nætur á Campoelica di Rocella
ströndinni og síðan Giardino Naxos í 4 nætur á 3* hóteli með hálfu fæði
og drykkjum með mat. Akstur til og frá flugvelli og á milli áfangastaða.
Íslensk fararstjórn. Einnig er í boði gisting á 4* hótelum gegn aukagjaldi.
Volkswagen up! kostar aðeins
2.050.000 kr.
www.volkswagen.is
Volkswagen up!
Lítill að utan
og stór að innan
Volkswagen up! setur ný viðmið í hönnun smá-
bíla með því að sameina nett ytra rými og rúm-
gott innra rými. Hvergi er gefið eftir í kröfum
um aksturseiginleika, gæðum né öryggi og því
til sönnunar eru einróma hrós bílablaðamanna
um allan heim og 5 stjörnu einkunn í árekstrar-
prófunum EuroNcap. Niðurstaðan er einföld:
Volkswagen up! er alvöru smábíll.
Breska bílatímaritið WHAT
CAR? valdi Volkswagen up!
sem bíl ársins 2012.