Fréttablaðið


Fréttablaðið - 30.07.2013, Qupperneq 13

Fréttablaðið - 30.07.2013, Qupperneq 13
ÞRIÐJUDAGUR 30. júlí 2013 | SKOÐUN | 13 Þú ert í rólegheitunum, frí á morg- un og engar áhyggjur af einu eða neinu, búinn að setja steik á grillið og ætlar að njóta kvöldsins í botn með fjölskyldu og vinum. Þá er ekki úr vegi að opna einn bjór eða góða flösku af víni sem passar með matnum til að kóróna góða máltíð. Það er menningarlegt og meira að segja hollt að fá sér rauðvínsglas segja fræðingarnir og þér finnst þú eiga það inni eftir erfiða vinnuviku að slaka vel á. Flestar þjóðir í hinum vestræna heimi nota áfengi á þennan hátt og hafa Íslendingar lagað sig hratt að kúltúrnum ef svo mætti segja frá árinu 1989 þegar banni við sölu á áfengum bjór var aflétt. Neyslu- mynstrið hefur breyst úr sterkara áfengi yfir í léttvín og bjór en lítra- fjöldi af hreinum vínanda hefur engu að síður aukist jafnt og þétt á þessu árabili. Greina má af tölum Landlæknisembættisins að í kjölfar hrunsins hafi dregið úr neyslu en við stefnum hraðbyri aftur í sömu magntölur og við sáum árið 2007. Þá var skráð mesta sala áfengis síð- astliðin 26 ár, eða 7,5 lítrar/einstak- ling af hreinum vínanda að meðal- tali. Kreppan er því á undanhaldi ef þessi mælikvarði er notaður. Vínmenning er mikil í kringum okkur og er það í sjálfu sér af hinu góða og ekkert við það að athuga að fólk fái sér í tána af og til, hvaða tilefni sem einstaklingurinn gefur sér fyrir slíkri neyslu. Íslending- ar eru enn talsvert langt frá þeim neyslutölum sem næstu nágrannar okkur liggja í en til samanburðar má nefna að Danir og Bretar leggja sér til munns um tíu lítra, Frakk- ar og Þjóðverjar í kringum tólf lítra, á meðan Ítalir nota rúma sex lítra, sem er æði sérstakt og minna en Norðmenn ef marka má tölur Alþjóðaheilbrigðismálastofnunar frá árinu 2010. Togstreita En þetta er bara önnur hliðin á peningnum því neysla áfengis í saman burði við nágrannaþjóð- ir segir okkur ekkert endilega til um það hversu margir glíma við vanda vegna þess sem í daglegu tali er kallað áfengissjúkdómur eða alkóhólismi. Mjög margir nota áfengi en ekki eru allir með vanda- mál vegna þessa, þó geta mörkin þarna á milli orðið ansi óskýr og á einstaklingurinn sjálfur oft í mikl- um vanda með að átta sig og getur jafnvel skort innsýn eða hreinlega verið í afneitun. Fjölskylda, vinir og samstarfsmenn eru oft þeir sem benda á vandann og getur skapast talsverð togstreita þegar slíkt ber á góma. Vandamál sem þessi eiga þó ekki að vera neitt feimnismál né heldur eiga menn að þurfa að fara í felur með sinn vanda sem er allt- of algengt, en það helgast af þeirri nálgun að þessi sjúkdómur sé öðru- vísi en aðrir og viðkomandi eigi að skammast sín glími þeir við hann. Það er merkileg staðreynd að það er ekki sama hvaða sjúkdóm maður fær og að þeir sem tengjast hegðun fá oft minni samúð meðal almenn- ings en aðrir. Margþættar orsakir Orsakir fyrir áfengisvanda eru margþættar og byggja á erfðum, sálfélagslegum og samfélagslegum þáttum og umhverfi viðkomandi. Sjúkdómurinn þróast með tímanum en það eru ákveðnir áhættuþættir sem ýta sérstaklega undir vand- ann. Þeir sem byrja ungir að neyta áfengis eru líklegri til að þróa með sér ávana, reglubundin eða stöðug áfengisneysla, fjölskyldusaga um áfengisvanda, kvíði, þunglyndi og félagslegir þættir vega þungt. Ýmis greiningarskilmerki eru notuð sem hafa gagnast vel og eru víða notuð við uppvinnslu þeirra sem leita vegna áfengisvanda til heilbrigðis- starfsmanna. Vert er þó að hafa í huga að það að spyrja um áfengis- neyslu á að vera jafn sjálfsagt og að vita hvaða lyf og í hvaða skömmt- um viðkomandi neytir þeirra. Allt- of oft er skautað af léttúð yfir þess- ar spurningar því grunnurinn að vanda einstaklingsins getur legið í neyslumynstri hans. Ekki má gleyma því að áfengis- neysla hefur áhrif á næstum öll líf- færi okkar á einn eða annan hátt. Alþekkt er að skoða slíka neyslu í tengslum við slys enda sennilega þekktasta virkni áfengis að slæva einstaklinginn og skerða dóm- greind hans. Lifrarsjúkdómar eins og fitu- og skorpulifur eru algengir við mikla neyslu. Síður þekkt er að áfengi hækki blóðþrýsting og auki þannig líkur á hjarta- og æðasjúk- dómum, skemmi slímhúð melting- arvegarins og auki líkur á krabba- meinum, ýti undir beinþynningu, dragi úr virkni ónæmiskerfisins og auki veikindatíðni, eyðileggi tauga- kerfið, valdi fósturskaða og síðast en ekki síst geti gert konur og karla getulaus. Það er því afar mikilvægt að horfa á áfengisvanda sem sjúkdóm með margar birtingarmyndir, það þarf að opna umræðuna enn frek- ar og afmá skömmina sem hefur verið fylgifiskur sjúkdóma eins og alkóhólisma. Þannig munum við ná betur tökum á vanda þeirra sem þjást, bæta meðferðina og auka lífs- líkur sjúklinga. HEILSA Teitur Guðmundsson læknir Ekki má gleyma því að áfengisneysla hefur áhrif á næstum öll líffæri okkar á einn eða annan hátt. Bara einn í viðbót … Skógarhlí› 18 • Sími 595 1000 • Fax 595 1001 Akureyri sími: 461 1099 • www.heimsferdir.is B irt m eð fy rir va ra u m p re nt vi llu r. H ei m sf er ð ir ás ki lja s ér r ét t til le ið ré tt in g a á sl ík u. A th . a ð v er ð g et ur b re ys t án fy rir va ra . E N N E M M / S IA • N M 57 64 9 frá kr. 179.900* Sikiley á mann í tvíbýli 3.-10. október Fararstjórar: Ólafur Gíslason og Gréta Valdimarsdóttir Heimsferðir bjóða beint leiguflug til Sikileyjar í byrjun október á yndislegum tíma. Hitastigið er notalegt og hentar bæði til sólbaða og fyrir þá sem vilja verja tímanum til að skoða þessa stórbrotnu eyju. Flogið er til Palermo og dvalið skammt frá strandbænum Cefalu í 3 nætur, þá er haldið til austurstrandarinnar og dvalið á ferðamannastaðnum Giardino Naxos í 4 nætur. Flogið til Íslands frá Catania flugvelli á austurströndinni. Áhugaverðar kynnisferðir eru í boði með íslenskum fararstjórum. Samfelld 2700 ára menningarsaga, einstök náttúrufegurð, ótrúlegar fornminjar, fallegar byggingar og söfn, ásamt áhugaverðri matarmenningu og blómlegu mannlífi – allt þetta og miklu meira finnur þú á Sikiley. Spennandi kynnisferðir • Hálfsdagsferð til Cefalu • Dagsferð til Palermo og Monreale • Dagsferð að eldfjallinu Etnu og Taormina bænum • Dagsferð til Siracusa og Noto • Dagsferð / sigling til eyjanna Lipari og Vulcano * Innifalið: Flug – skattar – gisting í 3 nætur á Campoelica di Rocella ströndinni og síðan Giardino Naxos í 4 nætur á 3* hóteli með hálfu fæði og drykkjum með mat. Akstur til og frá flugvelli og á milli áfangastaða. Íslensk fararstjórn. Einnig er í boði gisting á 4* hótelum gegn aukagjaldi. Volkswagen up! kostar aðeins 2.050.000 kr. www.volkswagen.is Volkswagen up! Lítill að utan og stór að innan Volkswagen up! setur ný viðmið í hönnun smá- bíla með því að sameina nett ytra rými og rúm- gott innra rými. Hvergi er gefið eftir í kröfum um aksturseiginleika, gæðum né öryggi og því til sönnunar eru einróma hrós bílablaðamanna um allan heim og 5 stjörnu einkunn í árekstrar- prófunum EuroNcap. Niðurstaðan er einföld: Volkswagen up! er alvöru smábíll. Breska bílatímaritið WHAT CAR? valdi Volkswagen up! sem bíl ársins 2012.

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.