Fréttablaðið - 30.07.2013, Side 14

Fréttablaðið - 30.07.2013, Side 14
30. júlí 2013 ÞRIÐJUDAGUR| SKOÐUN | 14 Með nýju breytinga- ákvæði við stjórnar- skrána, sem samþykkt var á sumarþingi, munu gefast ný tækifæri til stjórnarskrárbreytinga. En hvernig á að nýta þau tækifæri? Ný nefnd um stjórnar- skrárbreytingar, með fulltrúum allra flokka, mun hefja störf fljótlega. Á vettvangi hennar mun þurfa að ná samstöðu um verklagið. Hér er mín tillaga: Aðrir tímar Við eigum að nýta okkur hið nýja breytingaákvæði og svigrúm- ið sem það veitir til að áfanga- skipta verkefninu. Verklag- ið við stjórnarskrárbreytingar hingað til hefur skilað litlu og það hefur stafað af því að allir vita að málum verður aðeins lokið við lok kjörtímabils. Nú eru komnir aðrir tímar og þess vegna hægt að vinna að stjórnar- skrárumbótum allt kjörtímabil- ið og skila niður stöðu í þremur áföngum: Þeim fyrsta sem verði lokið í vetur og verði lagður fyrir þjóðina samhliða sveitar- stjórnarkosningum að vori, öðrum sem verði lokið í tíma fyrir forseta- kosningar 2016 og þeim þriðja sem yrði lokið fyrir lok kjörtímabils. Góð samstaða Við alþingismenn verð- um að sýna þjóðinni að við getum náð víðtækri samstöðu um ákveðnar breytingar fyrir næsta vor. Þar tel ég augljóst að við byrjum á ákvæði um auðlindir í almannaeign og þjóðaratkvæða- greiðslur. Um það ætti að geta orðið góð samstaða – þetta eru atriðin sem forsætisráðherra nefndi sem áhersluatriði í vinnu við stjórnarskrána í stefnuræðu sinni nú snemmsumars og þessi atriði voru meðal þeirra atriða sem þjóðin lýsti miklum stuðn- ingi við í þjóðaratkvæðagreiðsl- unni síðasta haust. Það hefur mikið starf farið fram við þróun ákvæðis um almannaeign á auðlindum, allt frá árinu 2000, og allir flokkar hafa á einhverjum tíma lagt fram drög að slíku ákvæði. Ef við horf- um á þau atriði sem almenn sam- staða er um ætti okkur að vera vandalaust að setja saman skýrt almannaeignarákvæði. Með sama hætti er orðið afar brýnt að setja almennt ákvæði um rétt tiltekins hluta þjóðar- innar og minnihluta þingsins til að setja mál í þjóðaratkvæði. Málskotsréttur forseta er góður út af fyrir sig en hvorki þjóð- in né minnihluti þingsins getur sætt sig við að eiga aðgang að þjóðaratkvæði undir mati eins manns, sem ekki byggir á efnis- legum viðmiðum nema að litlu leyti. Við ákváðum að setja á fót á Íslandi lýðveldi en ekki mennt- að einveldi. Til þess að það virki þarf þjóðin og minnihluti þings að eiga sjálfstæðan málskotsrétt. Skýr umgjörð Við þurfum að hafa skýra umgjörð um rétt þjóðarinnar til að kalla fram þjóðaratkvæði. Fólk á rétt á því að um slíkt frum- kvæði almennings gildi skýr- ar reglur og skýr umgjörð, sem veitir fólki raunverulega vissu fyrir því að ef tilteknu marki undirskrifta er náð muni þjóðar- atkvæðagreiðsla fara fram. Þróun mála í stjórnskipun- inni undanfarin ár gerir það líka nauðsynlegt að þriðjung- ur þingmanna fái þann rétt að vísa málum til þjóðarinnar. Slíkt ákvæði er í dönsku stjórnar- skránni og það hefur virkað þar svo vel að því hefur aldrei verið beitt. Ástæðan er sú að ákvæð- ið hvetur stjórnvöld á hverjum tíma til að afla víðtækrar sam- stöðu um umdeild mál og það er nokkuð sem okkur hefur átak- anlega skort undanfarin ár. Það gæti þannig orðið forsenda nýrra og betri vinnubragða í íslensk- um stjórnmálum. Forseti Íslands hefur nú nýverið skilgreint mál- þóf sem einu leið minnihluta þings til að auka líkur á þjóðar- atkvæðagreiðslu, að óbreyttri stjórnskipan. Ef leikreglunum verður ekki breytt stefnir því allt í það að málþófið muni áfram ríkja eitt. Glæsilegt upphaf Þótt við næðum ekki meiru í höfn fyrir sveitarstjórnarkosn- ingarnar að vori en ákvæði um almannaeign á auðlindum og nýjum ákvæðum um rétt tiltek- ins fjölda landsmanna og minni- hluta þings til að vísa málum til þjóðaratkvæðis værum við að ná miklum árangri. Til viðbótar ættum við öll að sameinast um að leggja af Landsdóm og koma meðferð brota ráðamanna í sama farveg og brota annarra lands- manna. Það væri glæsilegt upp- haf á lengri vegferð stjórnskip- unarumbóta. ➜ Við alþingismenn verðum að sýna þjóðinni að við getum náð víðtækri samstöðu um ákveðnar breytingar fyrir næsta vor. Þar tel ég augljóst að við byrjum á ákvæði um auðlindir í almannaeign og þjóðaratkvæðagreiðslur. Hvernig eigum við að breyta? STJÓRNARSKRÁ Árni Páll Árnason formaður Samfylkingarinnar Á R N A S Y N IR GLÆSIBÆ KRINGLUNNI SMÁRALIND utilif. is tjaldaðu ekki til einnar nætur Frábært úrval af tjöldum í Tjaldalandi í glæsibæ. (við hliðina á tbr húsinu) Uppsett tjöld til sýnis alla virka daga frá Kl. 10-17. High Peak Como 32.990 / 42.990 KR. 4 og 6 manna Tvískipt innratjald með fortjaldi á milli. Vatnsvörn 2.000 mm. Yfirlímdir saumar. Hæð 190/200 cm. High Peak ancona 56.990 KR. 5 manna Rúmgott fjölskyldutjald. Vatnsvörn 3.000 mm. Yfirlímdir saumar. Dúkur í fortjaldi. 2 inngangar. Hæð 200 cm. High Peak cave 19.990 / 23.990 KR. 2 og 3 manna Göngutjald sem er auðvelt í upp- setningu og aðeins 2,9 kg. Vatns- vörn 2.000 mm. Yfirlímdir saumar. Fíbersúlur. Hæð 90 cm. The north face tadpole 59.990 KR. 2 manna Létt göngutjald - 2,4 kg. Vatnsvörn 1.500 mm taffeta. Botn 5.000 mm taffeta. Álsúlur. Hæð 100 cm.

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.