Fréttablaðið - 30.07.2013, Blaðsíða 17
BLÁBER FYRIR KROPPINN
Ávextir eru líkamanum nauðsynlegir, þar sem þeir inni-
halda mikið magn vítamína auk þess sem þeir eru lausir
við fitu. Nú er gott framboð af bláberjum í verslunum
og bráðum verður hægt að tína þau úti í náttúrunni.
Bláber eru svokölluð ofurfæða og því mjög holl.
Mikil fjölgun hefur orðið á vin-sælum matarbloggum undan-farin tvö ár. Eitt þeirra ber
það skemmtilega nafn GulurRauður-
Grænn&salt (gulurraudurgraennog-
salt.com) og á hjúkrunarfræðingurinn
Berglind Guðmundsdóttir heiðurinn
af því. Upphaf þess segir hún að rekja
megi til ferðalags til Barcelona síðasta
sumar þar sem hún bragðaði á óvenju
fjölbreyttum og góðum mat.
„Þar smakkaði ég meðal annars
spænskan, indverskan, ítalskan, mexí-
kóskan og líbanskan mat. Ég dáðist
að fjölbreytninni og því hversu gott
hráefnið var. Eftir að heim var komið
þurrkaði ég rykið af matreiðslubók-
unum og fór að elda eitthvað alveg nýtt
og hef verið óstöðvandi síðan þá.“
Þótt matarbloggið sé nýlegt hefur
Berglind lengi haft mikinn áhuga á mat-
reiðslu.
„Á unglingsárunum fór ég að prófa
mig áfram af einhverri alvöru í elda-
mennskunni. Þegar ég var tvítug
eignaðist ég bókina 100 góðir réttir frá
Miðjarðarhafslöndum eftir Diane Seed,
sem var algjör hugljómun. Bókin heill-
aði mig gjörsamlega og stendur enn
fyrir sínu.“
Hún segir það hafa tekið tíma að ná
tökum á eldamennskunni en eftir því
sem árunum fjölgaði hafi hún náð betri
árangri. „Fyrir mér er það að skera
niður hráefni og útbúa mat eins og
besta hugleiðsla. Ég legg mikla áherslu
á fjölbreytni og reyni að festast ekki í
einni stefnu. Megináherslan er þó alltaf
á ferskt hráefni og bragðgóðan mat.
Vinsælustu uppskriftirnar eru fljótlegir
kjúklinga- og fiskréttir og svo eru hrá-
fæðiskökurnar í mikilli sókn.“
Spennandi tímar eru fram undan
að sögn Berglindar. „Ég er að vinna að
gerð matreiðslubókar auk þess sem
ég hef sett upp matarbloggið á ensku
undir slóðinni www.colormefood.com.
Þannig að þessa dagana geri ég lítið
annað en að elda góðan mat og borða.“
■ starri@365.is
BESTA HUGLEIÐSLAN
ÁSTRÍÐUKOKKUR Matarbloggið GulurRauðurGrænn&salt fær 50.000
heimsóknir í mánuði. Nú er búið að hanna enska útgáfu bloggsins og
höfundurinn undirbýr matreiðslubók.
MATARBLOGGARINN
„Ég legg mikla áherslu
á fjölbreytni og reyni
að festast ekki í einni
stefnu,“ segir Berglind
Guðmundsdóttir.
MYND/VALLI
VINSÆLL RÉTTUR
Púðursykurslaxinn sem
allir dásama!
MYND/BERGLIND
St ðu ningsstöngin e r hjálpar- o g ör gy gistæki sem auðveldar fólki að vera iv rkt og a thafnasamt við d aglegt l íf á n þess a ð þurfa að r eiða s ig
á ða ra. Margir I ðj þu jálfarar, js úkraþjálfarar og l kæ nar hafa m læ t með ts ðu in ngsstöngunum f yrir sína ks jólstæðinga.
• Auðveld í uppsetningu.
• Engar ks úr fur ðe a boltar.
• Tj ka ka ts milli l fo ts og óg lfs.
• Hægt að nota við hallandi loft, 0–45°
timbur/gifsloft.
Stuðningsstangirnar hafa fengið verðlaun fyrir notagildi, öryggi og hönnun á alþjóðlegum hjálpartækjasýningum.
• Margir a ukahlutir í boði.
• Falleg og ún tíma ln eg h önnun.
• Passar all ts ða ar og tekur lítið lp áss.
• Stillanleg frá 225–307 cm lofthæð,
togátak allt a ð 205 kg.
Yfir 800
0 ánæg
ðir
notend
ur á Ísl
andi
Stuðnin
gs-
stöngin
teg 12962
mjúkur og
æðislegur
í
C,D,E skálum
á
kr. 5.800,-
buxur
kr. 1.995,-
FRÁBÆR !
Laugavegi 178 - Sími: 551
3366
Þú mætir - við mælum og aðstoðum
www.misty.is
Opið frá 10-18 virka daga.
10-14 laugardaga