Fréttablaðið - 30.07.2013, Síða 18
FÓLK|HEILSA
FÓLK ER KYNNINGARBLAÐ sem býður aug-
lýsendum að kynna vörur og þjónustu í formi
viðtala og umfjallana ásamt hefðbundnum auglýs-
ingum. Blaðið fylgir Fréttablaðinu daglega.
Útgefandi: 365 miðlar | Ábyrgðarmaður: Jón Laufdal
Sölumenn: Bryndís Hauksdóttir, bryndis@365.is, s. 512 5434
Sverrir Birgir Sverrisson, sverrirbs@365.is, s. 512 5432 Kolbeinn
Kolbeinsson, kolli@365.is, s. 512-5447 | Hönnun: Silja Ástþórsdóttir
Niðurstöður nýrrar rannsóknar sýna að tveir veikindadagar las-ins starfsmanns draga verulega
úr líkum á því að vinnufélagar hans
smitist af pestinni, eða 40 prósent.
Rannsóknin var unnin af vísinda-
mönnum við Pittsburgh-háskóla og
úrtakið áttatíu starfsmenn sem deildu
sama vinnustað. Þátttakendur fengu á
hendur sínar lítinn dropa vatns í byrj-
un vinnudags en einn óafvitandi dropa
með veirum sem valda kvefi, flensu-
einkennum og magapest. Eftir aðeins
fjórar klukkustundir hafði helmingur
starfsmanna smitast af einhverri veir-
unni með því einu að snerta yfirborð
hluta á vinnustað og sjötíu prósent
fundu fyrir einkennum magakveisu.
„Með því að vera heima einn
veikinda dag frá vinnu minnka líkur á
smiti til samstarfsfólks um 25 prósent
og fjörutíu prósent ef veikinda dagarnir
eru tveir,“ segir farsóttarfræðingurinn
dr. Supriya Kumar sem vann að rann-
sókninni.
Kumar vonast til að niðurstöður
rannsóknarinnar hvetji launafólk til
að vera lasið heima í stað þess að fara
veikt til vinnu því um raunverulegan
ávinning sé að ræða; bæði fyrir þann
veika, vinnufélaga hans og fyrirtækið
sem sparar stórar fjárhæðir þegar á
allt er litið.
„Vinnandi fólk hikar stundum við
að nýta veikindadaga sína og óttast
að vera litið hornauga fyrir það eitt að
verða veikt. Við bætist samviskubit yfir
því að setja aukið álag á vinnu félagana.
Veikindadagar eru hins vegar skynsam-
legasti kosturinn og ef allir tækju þá
alvarlega yrðu færri starfsmenn veikir,
afköst heildarinnar ykjust til muna og
dregið væri úr heildarkostnaði fyrir-
tækisins.“
Niðurstöður eldri rannsóknar
Arizona-háskóla sýna að ekki þarf fleiri
en einn lasinn starfsmann til að helm-
ingur starfsfólks smitist við að snerta
yfirborð hluta á vinnustað. Niður-
stöður beggja rannsókna sýna einnig
fram á að handþvottur og hreinlæti
draga verulega úr líkum á smiti.
VERIÐ VEIK HEIMA
VEIKINDADAGAR Það getur vafist fyrir fólki að taka lögboðna veikindadaga
þegar umgangspestir banka upp á en með því gerir sá lasni það eina rétta.
VANLÍÐAN
Það er aldrei gott að
verða veikur en með því
að ná heilsu á ný heima
í rúmi í stað þess að
mæta veikur til vinnu,
má draga úr smiti á
vinnustað um allt að
fjörutíu prósent.
Vertu vinur okkar á Facebook
STÓRÚTSALA
Allar vörur í verslun á HÁLFVIRÐI!
-50
%
Skipholti 29b • S. 551 0770
Rýmingasala hafin
50-70% afsláttur
Ný sending af vetrarvörum!
Nefkvef, hnerri og
eru helstu einkenni frjókornaofnæmis
Nýjung Sinose 100% náttúrulegt efni
sem úðað er í nef og kemur af stað öflugum
hnerra sem hjálpar til við að hreinsa ofnæmis-
vaka úr nefi en í leiðinni róar það og ver með
áframhaldandi notkun.
Sinose er þrívirk blanda
sem hreinsar, róar og ver.
Hentar einnig þeim sem
þjást af stífluðu nefi og
nef- og kinnholubólgum.
Hentar öllum frá 12 mánaða aldri, á meðgöngu
og meðan á brjóstagjöf stendur.
Slævir ekki, engin kemísk íblöndunarefni.
Andaðu léttar og njóttu sumarsins með Sinose
Fæst í flestum apótekum og heilsubúðum
P
R
E
N
T
U
N
.IS
Frekari upplýsingar www.gengurvel.is
Náttúrulegi
nefúðinn sem
sló í gegn
sumarið
2012