Fréttablaðið - 30.07.2013, Qupperneq 19
BÍLAR
SUBARU 60 ÁRA
Fuji Heavy Industries hefur nú smíðað Subaru-bíla í sex
áratugi. Forvitnilegt er að skoða þá fimm bíla Subaru
sem öðrum fremur hafa markað stefnu fyrirtækisins við
smíði bíla sinna.
Þessi bíll var smíðaður með sömu grunn-
hugsun og Volkswagen Bjallan og Ford
Model T. Hann átti að höfða til fjöldans og
vera ódýr, enda þjóðin í sárum eftir stríðið.
Hann er því frekar lítill bíll. Vélin í honum er
hvorki stór né öflug, með sprengirými upp á
360cc og þaðan kemur nafn bílsins. Vélin er
tveggja strokka, loftkæld og er aftur í bílnum.
Í fyrstu gerð bílsins var hann 16 hestafla en
öflugasta gerð hans, sem framleidd var á síð-
ustu árum hans, var 36 hestöfl. Bíllinn vóg
aðeins 410 kíló. Framleidd voru 392.000 ein-
tök af honum á 13 árum. Hann var svo leyst-
ur af hólmi með Subaru R-2 bílnum.
Subaru BRZ 2013
Impreza WRX
1992
Subaru Brat
1978-1993
Subaru SVX
1991-1997
Subaru 360
1958-1971
Þessi nýi bíll sem Subaru smíðaði með Toyota og heitir Toyota GT-86 hjá
þeim er margverðlaunaður bíll á sinni stuttu ævi og var kosinn bíll ársins
víða. Hann er eins og allir bílar Subaru frekar ódýr þrátt fyrir að hafa frá-
bæra akstursgetu. Aflið er ekki eins mikið og í mörgum öðrum sportbílum,
en þeim mun betur liggur hann. Vélin er 2,0 lítra Boxer, 200 hestöfl og liggur
mjög neðarlega í bílnum og þyngdarpunktur hans því sérstaklega lágur. Bíll-
inn er afturhjóladrifinn eins og flestir hreinræktaðir sportbílar og því auð-
velt að „drifta“ honum. BRZ er með 6-gíra beinskiptingu
og það allra besta við bílinn er að hann kostar aðeins
25.000 dollara í Bandaríkjunum og telst því með
allra ódýrustu sportbílum, enda annar Subaru
ekki eftirspurninni eftir honum.
Þessi tveggja dyra netti pallbíll er fjór-
hjóladrifinn og sýndi hvers var að
vænta frá Subaru í framtíðinni. Margt
var óvenjulegt við þennan bíl, ekki síst
sætin sem voru á pallinum og sneru
aftur. Ekki verður sagt að fyllsta örygg-
is hafi verið gætt fyrir þá farþega sem
þar sátu, en höfuð þeirra náði upp fyrir
þak bílsins og engin var veltigrindin þar
fyrir ofan. Nafnið BRAT merkti ekki
„óþekkur krakki“ heldur Bi-Drive
Recreational All-Terrain Trans-
porter. Þessi bíll er enn þá eins og
úr framtíðinni og bar Subaru gott
vitni um framúrstefnulega hönnun.
Þrátt fyrir að þessi sportbíll Subaru hafi
alls ekki selst vel er hann af mörgum talinn
einn athyglisverðasti sportbíll sem fram-
leiddur hefur verið. Hann þykir búa yfir ein-
stökum aksturseiginleikum og er býsna öfl-
ugur. Vélin er 6 strokka Boxer sem skilar
230 hestöflum og hann var aðeins 7,3 sek-
úndur í hundraðið og hámarkshraðann 248
km/klst. Hann er einn fárra sportbíla sem er
fjórhjóladrifinn og sem minnkaði ekki veg-
grip hans. Hönnun bílsins er nokkuð óvenju-
leg fyrir Subaru. Ítalinn Giorgetto Giugiaro
teiknaði hann. Aðeins hluta hliðar rúðanna
var hægt að skrúfa niður og kannski
hamlaði það sölu þessa bíls hversu framúr-
stefnulegur hann
var.
WRX var framleiddur upp úr hefð-
bundinni Imprezu og var í raun rall-
akstursútgáfa bílsins með öfluga vél.
Honum var betur fylgt eftir seinna
með enn öflugri WRX STI-útgáfu
hans. Þrátt fyrir að þetta sé hrein-
ræktaður sportbíll er hann fernra
dyra og vel fer um aftursætis-
farþega í honum. Hann er að sjálf-
sögðu fjórhjóladrifinn. Þessi bíll var
afar sigursæll í rallaksturskeppn-
um á árum áður og er enn mikið not-
aður í slíkum keppnum. Þessi öfl-
ugi sportbíll er einn fárra slíkra
sem ávallt hefur verið á viðráðan-
legu verði og hefur verið vinsæll hjá
yngri ökumönnum sem ekki hafa
efni á Porsche eða öðrum dýrum
sportbílum.
Reynsluakstur Chevrolet Captiva
Jaguar Smíðar smábíla eingöngu úr áli
Þýskar bílasölur mótmæla netsölu á BMW i3
ÞRIÐJUDAGUR 30. JÚLÍ 2013