Fréttablaðið - 30.07.2013, Page 20
CHEVROLET CAPTIVA
Finnur Thorlacius reynsluekur
M
ikið úrval er nú í
boði á jepplingum,
enda seljast þeir
einna best allra
bíla og henta að
auki einkar vel
við íslenskar að-
stæður. Sumir þeirra eru mjög
vandaðir bílar og svo til öll dýr-
ari merkin bjóða upp á jepplinga.
Fyrir þá þarf hins vegar að
borga skildinginn og því skiljan-
legt að kaupendur horfi einnig
mikið til þeirra sem kosta aðeins
minna en bjóða samt upp á mik-
inn búnað og talsvert afl. Einn
þeirra er Chevrolet Captiva sem
í boði hefur verið í nokkur ár hjá
Bílabúð Benna, en býðst nú ný-
lega uppfærður. Captiva hefur
frá upphafi verið nokkuð ríku-
lega búinn bíll sem fengist hefur
á góða verði. Hann er nú einung-
is í boði hérlendis með öfluga
184 hestafla dísilvél, þó bæði afl-
minni dísilvél og bensínvélar
séu einnig framleiddar í bílinn.
Þessi bíll er boðinn á innan við
6,5 milljónir króna og er því álit-
legur kostur í framboði á jepp-
lingum.
Mikið afl en lítil eyðsla
Chevrolet Captiva var reyndur
af bílablaði Fréttablaðsins um
daginn og var honum ekið ríf-
lega, bæði innanbæjar sem og í
langri ferð norður í land, samtals
yfir 500 kílómetra. Hann sýndi á
sér sínar bestu hliðar við akstur-
inn, og sérlega ánægjulegt var
að sjá að eftir að komið var norð-
ur á Akureyri og 500 km akst-
ur að baki var eldsneytistank-
ur bílsins aðeins hálfur. Þó hafði
bílnum ekki verið hlíft og öll
hestöfl hans oft kölluð til. Bíllinn
er gefinn upp með 7,9 lítra eyðslu
en hann fór niður fyrir það, enda
megnið af kílómetrunum í lang-
keyrslu. Ekki veitti af góðu rými
með bílinn vel fullan af farþeg-
um og farangri og kom 769 lítra
flutningsrými hans í góðar þarf-
ir. Captiva telst nefnilega með
stærri gerð jepplinga og vel getur
farið um allt að fimm farþega, en
tvö aukasæti er einnig að finna
aftur í farangursrýminu, en
þau eru helst hentug fyrir börn,
nema kannski á styttri leiðum.
Aðeins tekur fáeinar sekúndur
að reisa þau upp og þau falla flöt
ef þau eru ekki í notkun. Einn-
ig kom ágætt hljóðkerfi bílsins
í góðar þarfir og kælihólf fyrir
svaladrykki í hanskahólfi. Það
er kannski ágætt dæmi um hve
ágætlega bíllinn er búinn staðal-
búnaði, en sú gerð sem eingöngu
er til sölu hérlendis er mun betur
búin en ódýrasta gerð bílsins sem
framleidd er. Svo má gera bílinn
enn flottari með LTZ-gerð hans
og þá er hann með leðursætum,
18 tommu álfelgum, rafdrifið bíl-
stjórasæti, lyklalaust aðgengi,
sóllúgu og miklu fleira góðgæti.
Þannig búinn kostar Captiva 7,2
milljónir.
Stífari öðrun en samt mjúk
Akstur Captiva er lipur í borgar-
umferðinni þó finna megi betri
akstursbíla í flokki jepplinga,
flesta þó mun dýrari. Hann er
næstum jafn lipur í snúningi inn-
anbæjar og fólksbílar og gott út-
sýni úr bílnum hjálpar enn til. Í
akstri utanbæjar er bíllinn fer-
lega ljúfur og gott afl hans hend-
ir honum upp brattar brekkurn-
ar án þess að hann þurfi að skipta
niður og aflið kemur sér einnig
vel við röskan framúrakstur.
Sjálfskiptingin mætti vera fljót-
ari í skiptingum, en það hjálpar
henni hversu öflug vélin er og
því ber minna á þessum ókosti.
Fjöðrunin hefur stífnað frá síð-
ustu árgerð bílsins og er það vel
og fyrir vikið hallar hann sér
ekki mikið í beygjum. Stýring er
létt, jafnvel of létt og tilfinning
fyrir vegi er meiri í sumum af
keppinautum hans. Á móti kemur
að tiltölulega mjúk fjöðrunin
fer vel með farþega og stilling
fjöðrunar er ávallt málamiðlun
og Chevrolet menn hafa greini-
leg ákveðið að hafa hana enn þá í
mýkri kantinum á kostnað akst-
urshæfninnar. Mörgum mun
líka það mjög vel. Besta aðferðin
við að prófa sæti bíla er ávallt í
lengri akstri og stóðst Captiva
það próf með sóma og átti það
líka við aftursætisfarþega. Inn-
rétting bílsins er bara nokkuð
lagleg en efnisnotkun víða af
ódýrari gerðinni og plast áber-
andi. Upplýsingaskjárinn á miðju
mælaborðinu er góður og setur
laglegan svip á það.
Vel búinn bíll
Chevrolet Captiva hefur fengið
fimm stjörnur í árekstarprófun-
um, upp um eina frá síðustu gerð.
Meðal öryggisbúnaðar eru loft-
púðar að framan, til hliðar og í
burðarbitum, stöðugleikastýring,
spólvörn, brekkuaðstoð, ISOFIX-
festingar í aftursætum og fleira.
Captiva er með fimm ára ábyrgð
og hjálpar það vel í endursölu-
verði bílsins. Sérstaklega verður
að hrósa Captiva fyrir mörg og
vel staðsett hólf fyrir drykki. Þá
hjálpar aðdráttar- og veltistýri
bílstjóra að finna bestu aksturs-
stellingu. Snotur smáatriði í stað-
albúnaði eins og hiti í speglum og
rúðuþurrku, hólf fyrir sólgler-
augu, aðfellanlegir og rafdrifnir
hliðarspeglar, áttaviti, tölvu-
stýrð tveggja svæða loftkæling/
hitun, Bluetooth-búnaður fyrir
síma, Homelink-öryggislýsing,
regnskynjari og opnanleg rúða í
aftur hlera, svo eitthvað sé nefnt,
kemur skemmtilega á óvart og
gerir Captiva að eigulegum bíl.
Þeir sem eru í kauphugleiðingum
á jepplingi gera rétt í því að skoða
þann álitlega kost sem Captiva er.
RÍKULEGA BÚINN
STÓR JEPPLINGUR
Eftir 500 kílómetra akstur var eldsneytistankur bílsins enn
hálffullur. Hefur batnað við uppfærslu og er enn á góðu verði.
Kraftalegur framendi sem sver sig í ætt við aðrar bílgerðir Chevrolet.
BÍLAR Þriðjudagur 30. júlí 2013
FRÉTTABLAÐIÐ
2
www.visir.is/bilar
BÍLAR Umsjón blaðsins Finnur Thorlacius
finnurth@365.is
Útgáfufélag
365 miðlar ehf.
Skaftahlíð 24,
105 Reykjavík,
sími 512 5000
Auglýsingar
Sverrir Birgir Sverrisson
sverrirbirgir@365.is
Sími 5125432
Hönnun
Silja Ástþórsdóttir
siljaa@frettabladid.is Opið virka daga
NOTAÐIR BÍLAR
Nýskráður 6.2011, ekinn 16 þús. km.
VERK
SMIÐJU
ÁBYRGÐ
Nýskráður 6.2006, ekinn 100 þús. km.
VERK
SMIÐJU
ÁBYRGÐ
Nýskráður 6.2004 ekinn 92 þús. km.
VERK
SMIÐJU
ÁBYRGÐ
Nýskráður 7.2007 ekinn 73 þús. km.
VERK
SMIÐJU
ÁBYRGÐ