Fréttablaðið - 30.07.2013, Síða 20

Fréttablaðið - 30.07.2013, Síða 20
CHEVROLET CAPTIVA Finnur Thorlacius reynsluekur M ikið úrval er nú í boði á jepplingum, enda seljast þeir einna best allra bíla og henta að auki einkar vel við íslenskar að- stæður. Sumir þeirra eru mjög vandaðir bílar og svo til öll dýr- ari merkin bjóða upp á jepplinga. Fyrir þá þarf hins vegar að borga skildinginn og því skiljan- legt að kaupendur horfi einnig mikið til þeirra sem kosta aðeins minna en bjóða samt upp á mik- inn búnað og talsvert afl. Einn þeirra er Chevrolet Captiva sem í boði hefur verið í nokkur ár hjá Bílabúð Benna, en býðst nú ný- lega uppfærður. Captiva hefur frá upphafi verið nokkuð ríku- lega búinn bíll sem fengist hefur á góða verði. Hann er nú einung- is í boði hérlendis með öfluga 184 hestafla dísilvél, þó bæði afl- minni dísilvél og bensínvélar séu einnig framleiddar í bílinn. Þessi bíll er boðinn á innan við 6,5 milljónir króna og er því álit- legur kostur í framboði á jepp- lingum. Mikið afl en lítil eyðsla Chevrolet Captiva var reyndur af bílablaði Fréttablaðsins um daginn og var honum ekið ríf- lega, bæði innanbæjar sem og í langri ferð norður í land, samtals yfir 500 kílómetra. Hann sýndi á sér sínar bestu hliðar við akstur- inn, og sérlega ánægjulegt var að sjá að eftir að komið var norð- ur á Akureyri og 500 km akst- ur að baki var eldsneytistank- ur bílsins aðeins hálfur. Þó hafði bílnum ekki verið hlíft og öll hestöfl hans oft kölluð til. Bíllinn er gefinn upp með 7,9 lítra eyðslu en hann fór niður fyrir það, enda megnið af kílómetrunum í lang- keyrslu. Ekki veitti af góðu rými með bílinn vel fullan af farþeg- um og farangri og kom 769 lítra flutningsrými hans í góðar þarf- ir. Captiva telst nefnilega með stærri gerð jepplinga og vel getur farið um allt að fimm farþega, en tvö aukasæti er einnig að finna aftur í farangursrýminu, en þau eru helst hentug fyrir börn, nema kannski á styttri leiðum. Aðeins tekur fáeinar sekúndur að reisa þau upp og þau falla flöt ef þau eru ekki í notkun. Einn- ig kom ágætt hljóðkerfi bílsins í góðar þarfir og kælihólf fyrir svaladrykki í hanskahólfi. Það er kannski ágætt dæmi um hve ágætlega bíllinn er búinn staðal- búnaði, en sú gerð sem eingöngu er til sölu hérlendis er mun betur búin en ódýrasta gerð bílsins sem framleidd er. Svo má gera bílinn enn flottari með LTZ-gerð hans og þá er hann með leðursætum, 18 tommu álfelgum, rafdrifið bíl- stjórasæti, lyklalaust aðgengi, sóllúgu og miklu fleira góðgæti. Þannig búinn kostar Captiva 7,2 milljónir. Stífari  öðrun en samt mjúk Akstur Captiva er lipur í borgar- umferðinni þó finna megi betri akstursbíla í flokki jepplinga, flesta þó mun dýrari. Hann er næstum jafn lipur í snúningi inn- anbæjar og fólksbílar og gott út- sýni úr bílnum hjálpar enn til. Í akstri utanbæjar er bíllinn fer- lega ljúfur og gott afl hans hend- ir honum upp brattar brekkurn- ar án þess að hann þurfi að skipta niður og aflið kemur sér einnig vel við röskan framúrakstur. Sjálfskiptingin mætti vera fljót- ari í skiptingum, en það hjálpar henni hversu öflug vélin er og því ber minna á þessum ókosti. Fjöðrunin hefur stífnað frá síð- ustu árgerð bílsins og er það vel og fyrir vikið hallar hann sér ekki mikið í beygjum. Stýring er létt, jafnvel of létt og tilfinning fyrir vegi er meiri í sumum af keppinautum hans. Á móti kemur að tiltölulega mjúk fjöðrunin fer vel með farþega og stilling fjöðrunar er ávallt málamiðlun og Chevrolet menn hafa greini- leg ákveðið að hafa hana enn þá í mýkri kantinum á kostnað akst- urshæfninnar. Mörgum mun líka það mjög vel. Besta aðferðin við að prófa sæti bíla er ávallt í lengri akstri og stóðst Captiva það próf með sóma og átti það líka við aftursætisfarþega. Inn- rétting bílsins er bara nokkuð lagleg en efnisnotkun víða af ódýrari gerðinni og plast áber- andi. Upplýsingaskjárinn á miðju mælaborðinu er góður og setur laglegan svip á það. Vel búinn bíll Chevrolet Captiva hefur fengið fimm stjörnur í árekstarprófun- um, upp um eina frá síðustu gerð. Meðal öryggisbúnaðar eru loft- púðar að framan, til hliðar og í burðarbitum, stöðugleikastýring, spólvörn, brekkuaðstoð, ISOFIX- festingar í aftursætum og fleira. Captiva er með fimm ára ábyrgð og hjálpar það vel í endursölu- verði bílsins. Sérstaklega verður að hrósa Captiva fyrir mörg og vel staðsett hólf fyrir drykki. Þá hjálpar aðdráttar- og veltistýri bílstjóra að finna bestu aksturs- stellingu. Snotur smáatriði í stað- albúnaði eins og hiti í speglum og rúðuþurrku, hólf fyrir sólgler- augu, aðfellanlegir og rafdrifnir hliðarspeglar, áttaviti, tölvu- stýrð tveggja svæða loftkæling/ hitun, Bluetooth-búnaður fyrir síma, Homelink-öryggislýsing, regnskynjari og opnanleg rúða í aftur hlera, svo eitthvað sé nefnt, kemur skemmtilega á óvart og gerir Captiva að eigulegum bíl. Þeir sem eru í kauphugleiðingum á jepplingi gera rétt í því að skoða þann álitlega kost sem Captiva er. RÍKULEGA BÚINN STÓR JEPPLINGUR Eftir 500 kílómetra akstur var eldsneytistankur bílsins enn hálffullur. Hefur batnað við uppfærslu og er enn á góðu verði. Kraftalegur framendi sem sver sig í ætt við aðrar bílgerðir Chevrolet. BÍLAR Þriðjudagur 30. júlí 2013 FRÉTTABLAÐIÐ 2 www.visir.is/bilar BÍLAR Umsjón blaðsins Finnur Thorlacius finnurth@365.is Útgáfufélag 365 miðlar ehf. Skaftahlíð 24, 105 Reykjavík, sími 512 5000 Auglýsingar Sverrir Birgir Sverrisson sverrirbirgir@365.is Sími 5125432 Hönnun Silja Ástþórsdóttir siljaa@frettabladid.is Opið virka daga NOTAÐIR BÍLAR Nýskráður 6.2011, ekinn 16 þús. km. VERK SMIÐJU ÁBYRGÐ Nýskráður 6.2006, ekinn 100 þús. km. VERK SMIÐJU ÁBYRGÐ Nýskráður 6.2004 ekinn 92 þús. km. VERK SMIÐJU ÁBYRGÐ Nýskráður 7.2007 ekinn 73 þús. km. VERK SMIÐJU ÁBYRGÐ

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.