Fréttablaðið - 30.07.2013, Qupperneq 21
MARAÞON
ÞRIÐJUDAGUR 30. JÚLÍ 2013
Kynningarblað
Mataræði, æfingar, met,
þátttakendafjöldi og þrjátíu
ára afmæli.
Ég keppti seinast í fitness árið 2008 og byrjaði í crossfit upp úr því,“ segir Stefán Þór Arnars-
son sem tekur þátt í Reykjavíkur-
maraþoninu í fyrsta sinn í ár og ætlar
að hlaupa heilt maraþon.
Áskorun frá mömmu
Ástæðan fyrir þátttöku Stefáns
í maraþoninu er fyrst og fremst
áskorun frá mömmu hans, Margréti
Stefáns dóttur. „Ég er enginn hlaup-
ari,“ segir hann og hlær. „Mamma
er hins vegar rosa mikill hlaup-
ari og hefur hlaupið í mörg ár, en
aldrei farið maraþon. Ég var hrein-
lega orðinn svo leiður á að hlusta á
hana tala um hvað hana langaði að
hlaupa maraþon, en gera aldrei neitt
í því.“ Stefán hét því á mömmu sína
í desem ber að hann skyldi hlaupa
með henni maraþon þegar hún loks-
ins léti verða af því.
„Og hún tók mig á orðinu. Einn
daginn fékk ég áframsendan tölvu-
póst sem innihélt skráningarkvittun
hennar í maraþonið. Svo skilaboðin
voru skýr: Nú er komið að þér,“ segir
Stefán og bætir hlæjandi við: „Þá var
eiginlega ómögulegt að bakka út úr
þessu.“
Fyrstu tíu kílómetrarnir í janúar
Þetta var reyndar dálítið stórt stökk
fyrir Stefán, því þegar hann sam-
þykkti þetta var hann nokkurn veg-
inn reynslulaus í langhlaupum.
Fyrstu tíu kílómetrana hljóp hann
raunar í janúar á þessu ári. „Fyrir það
hafði ég bara hlaupið þrisvar sinn-
um fimm kílómetra og styttri vega-
lengdir,“ segir Stefán en bætir því
við að hann hafi þó verið í ágætis-
formi þegar hann byrjaði að hlaupa.
„Ég hljóp tíu kílómetrana á innan við
fimmtíu mínútum.“
Eins og gefur að skilja tóku við
stífar æfingar hjá Stefáni. „Aðal-
verkefnið var náttúrulega að byggja
upp þol í lengri hlaupum. Ég hafði
einhverja reynslu í styttri vega-
lengdum, en lengri vegalengdir krefj-
ast undirbúnings.“ Hann segist hafa
öðlast gott þol bæði í crossfit og með
æfingahópnum Grjótskokki sem
samanstendur af fólki með crossfit-
bakgrunn.
„Ég hef náttúrulega þjálfað líkam-
ann mjög lengi, með ólíkum hætti.
Ég setti því sjálfur upp áætlun og
fékk svo blessun frá reynsluboltun-
um,“ útskýrir Stefán. „Þetta eru þrjú
til fjögur hlaup í viku; eitt langt, tvö
stutt og ein sprettæfing. Svo lengist
langa hlaupið eftir því sem nær dreg-
ur. Ég toppa í kringum verslunar-
mannahelgina í þrjátíu kílómetrum.
Það er síðasta langa undirbúnings-
hlaupið, en svo tek ég styttri hlaup
fram að maraþoninu.“
Aldrei aftur
Stefán segist eingöngu vera að prófa
sér til gamans og keppa við sjálf-
an sig. „Mig langar bara að prófa
að hlaupa maraþon. Ég hef aldrei
hlaupið hálfmaraþon og aldrei keppt
í neinu hlaupi.“ Hann hefur þó sett
sér það markmið að hlaupa á innan
við fjórum tímum. „Það er algjört
lágmark,“ segir hann og hlær. „Ég
held þetta sé svona „one-time-thing“,
ég væri aldrei að gera þetta nema af
því að mamma tók mig á orðinu.“
Úr fitness í crossfit
Stefán var lengi keppnismaður í fit-
ness. Hann tók þátt í síðasta fitness-
mótinu árið 2008 en sneri sér svo að
crossfit. „Það er algjör stigs munur
á þessu. Crossfit gengur meira út
á tækni og ólympískar lyftingar og
þolið eykst til muna. Það er lykillinn
að því að geta fara svo skyndilega af
stað í hlaupin.“ - hþó
Stefán var orðinn leiður á að hlusta á mömmu sína, Margréti Stefánsdóttur, tala um maraþon en gera aldrei neitt í því, svo hann hét því að fara með henni ef hún léti verða af því. Hún tók hann á orðinu. MYND/ARNÞÓR BIRKISSON
POWERAD
E® ER SAMS
TARFSAÐIL
I
REYKJAVÍK
URMARAÞO
NS
Tók
áskorun
mömmu
Stefán Þór Arnarsson hleypur sitt
fyrsta maraþon í ár, en það verður
einnig í fyrsta sinn á ævinni sem
hann keppir í hlaupi. Hann sagði
skilið við fitness-lífsstílinn árið 2008
og sneri sér að crossfit, sem hann
segir grundvöll þátttöku sinnar í
maraþoninu.