Fréttablaðið - 30.07.2013, Page 24

Fréttablaðið - 30.07.2013, Page 24
KYNNING − AUGLÝSINGMaraþon ÞRIÐJUDAGUR 30. JÚLÍ 20134 Gerður Þóra Björnsdóttir, upplýsingafulltrúi Reykja-víkurmaraþons, segir að í tilefni afmælisins sé lógó hlaups- ins með afmælisbrag. „Nokkrar nýjungar verða síðan tengdar áheitasöfnuninni okkar sem fram fer á hlaupastyrkur.is. Góðgerða- hlauparar geta nú „taggað“ sig saman í hlaupahópa og hafa marg- ir nýtt sér það. Síðan fer svo í loftið á ensku nú á næstu dögum og munu þá erlendir þátttakendur í fyrsta sinn geta hlaupið til góðs fyrir ís- lensk góðgerðafélög,“ segir Gerður. „F y r i r uta n Reyk jav í k u r- maraþon Íslandsbanka stöndum við að Laugavegshlaupinu og Mið- næturhlaupi Suzuki. Reykjavíkur- maraþon Íslandsbanka og Mið- næturhlaup Suzuki eru síðan hluti af Powerade-sumarhlaupunum sem við stöndum að í samstarfi við frjálsíþróttadeildirnar innan ÍBR. Powerade sumarhlaupin eru því Víðavangshlaup ÍR, Fjölnishlaupið, Miðnæturhlaup Suzuki, Ármanns- hlaupið og Reykjavíkurmaraþon Ís- landsbanka,“ segir Gerður og bætir við að það sé mikið framboð fyrir hlaupara. „Innan Powerade Sumar- hlaupanna fer fram stigakeppni en verðlaun verða veitt sigurvegur- um stigakeppninnar í Lækjargötu þegar Reykjavíkurmaraþonið fer fram,“ bætir hún við. „Heildarf jöldi sk ráðra ein- staklinga í Reykjavíkurmaraþon Íslands banka 2013 þann 26. júlí var 6.727. Á sama tíma í fyrra voru skráðir einstaklingar 5.020. Það má þó ekki lesa of mikið í þessa aukn- ingu á milli ára þar sem reynsla síðustu ára segir að fólk er alltaf að skrá sig fyrr og fyrr. Því er ólíklegt að þessi mikla fjölgun skráðra ein- staklinga verði raunin á hlaupdag þó svo að við séum búin undir að slá þátttökumetið frá því í fyrra,“ segir Gerður enn fremur. Maraþonið hefur vaxið mikið frá því það var haldið fyrst. „Fyrsta Reykjavíkurmaraþonið var haldið 1984 en þá voru skráðir 214 þátt- takendur í þremur vega lengdum. Árið 2012 voru þeir 13.410 í sex vegalengdum. Elsti skráði þátt- takandinn í ár er 87 ára gam- all maraþonhlaupari. Yngstu skráðu þátttakendurnir eru skráð- ir í Latabæjar hlaupið og eru fæddir fyrr á þessu ári. Aldursbilið er því 87 ár á milli elsta og yngsta þátttak- anda, enda Reykjavíkurmaraþonið viðburður fyrir alla aldurshópa þar sem allir ættu að geta fundið eitt- hvað við sitt hæfi. Í dag eru konur 57% skráðra þátttakenda og karlar 43%.“ Aukist hefur að útlendingar komi hingað til að hlaupa mara- þonið. „Árið 2012 var metþátttaka erlendra keppenda en þeir voru þá 1.685. Nú eru 1.737 erlendir þátttakendur skráðir til leiks og það er því ljóst að metfjöldi er- lendra þátttakenda mun hlaupa um götur Reykjavíkur í ár,“ segir Gerður. Skráningarhátíð fer fram föstu- daginn 23. ágúst í Laugardalshöll frá 10-19 en þar er hægt að nýskrá sig og þangað sækja hlauparar gögn fyrir hlaupið auk þess sem þeir geta gætt sér á pasta frá klukkan 16-19. Maraþon í þrítugasta skiptið Reykjavíkurmaraþon fer fram í þrítugasta skiptið 24. ágúst, sama dag og Menningarnótt verður í borginni. Í tilefni afmælisins greiða 12-17 ára lægra gjald í 10 kílómetra hlaupi. Þátttakendum fjölgar ár frá ári. Í fyrsta maraþoninu hlupu 56 en 806 í fyrra. Gerður Þóra Björnsdóttir er upplýsingafulltrúi Reykjavíkurmaraþons. MYND/GVA ÞÁTTTAKENDUR 1984 Maraþon 56 Hálfmaraþon 68 7 km skemmtiskokk 90 VEGALENGD 2012 10 km 5.177 3 km 1.928 Hálfmaraþon 2.004 Latabæjarhlaup 3.379 Maraþon 806 Boðhlaup 116, - 30 sveitir POWERADE ® ER SAMSTARFSAÐILI REYKJAVÍKURMARAÞONS KRAFTÍ ÞIGDR EKKTU P ow er ad e is a r eg is te re d tr ad em ar kk o f T he C oc a- C ol a C om pa ny . © 2 01 3 Th e C oc a- C ol a C om pa ny . POWERADE® íþróttadrykkir henta vel hlaupafólki til að endurnýja vökva, sölt, steinefni og orku sem tapast við áreynslu.

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.