Fréttablaðið - 30.07.2013, Page 26
KYNNING − AUGLÝSINGMaraþon ÞRIÐJUDAGUR 30. JÚLÍ 20136
Mataræði er mikilvægt við undirbún-ing fyrir hlaup. Máli skiptir að borða góðan morgunverð, hádegisverð og
kvöldverð og eiga þessar máltíðir að saman-
standa af kolvetnum, fitu og próteinum. Enn
fremur er mikilvægt að drekka nóg og passa
að millimáltíðir séu hollar frekar en eitthvað
sem gefur eingöngu innantóma orku. Einn-
ig er mikilvægt að fá trefjar sem og vítamín
og steinefni og þýðingarmikið er að fá kalk.
Hleðsla er íþróttadrykkur sem er ríkur af
bæði kolvetnum og próteinum og hentar því
hlaupurum og öðru íþróttafólki vel. Hleðsla
er enn fremur fitusnauð ásamt því að vera
kalkrík. Hleðsla hentar sérstaklega vel eftir
æfingar en er einnig góð sem millimáltíð.
Margar bragðtegundir í boði
Hleðsla er fáanleg í mörgum bragð tegundum,
bæði í dósum og fernum en einnig er á mark-
aði Hleðsluskyr. Hleðsluskyrið er til með
bláberja bragði og einnig hreint sem inni-
heldur heil 26 grömm af próteinum og ber
norræna hollustumerkið „Skráar gatið“ en
nokkrar aðrar mjólkurvörur frá MS bera
nú þetta hollustu merki. Að sögn Guð nýjar
Steinsdóttur, markaðsstjóra MS, komu
hugmyndir um þróun vörunnar fram fyrir
nokkrum árum. „Neytendur hafa nú þegar
úr töluverðu að velja á íslenska markaðnum
þegar skyr er annars vegar,“ segir Guðný.
„Við þróun vörunnar var vandað mjög til
eigingerðar og áferðar. Hleðsluskyrið hefur
enn fremur sérlega milt bragð. Aðgreining á
Hleðsluskyri miðað við aðrar skyrtegundir
er helst sú að það inniheldur hærra hlutfall
af mysupróteinum en annað skyr og áferðin
er sérstaklega mjúk. Hlutfall mysupróteina í
skyrinu er ríflega 40% en mysuprótein henta
einstaklega vel við uppbyggingu vöðva og eru
jafnframt talin auðmeltanlegri en önnur pró-
tein.“
Hlaðin vítamínum og steinefnum
Hleðsla í fernu með súkkulaðibragði kom á
markað í fyrra og hefur fengið mjög góðar
viðtökur meðal neytenda. Í Hleðslu í fernu
er búið að kljúfa 80% af mjólkursykrinum
og hún hentar því mörgum þeim sem hafa
laktósaóþol (mjólkursykursóþol). „Bæði
Hleðsla og Hleðsluskyr eru jafnframt hlað-
in vítamínum og steinefnum, eins og mjólk
er reyndar líka. Hleðsla inniheldur einn-
ig kolvetni en kolvetni eru mikilvægasti
orkugjafi líkamans og skipta miklu máli
við undirbúning fyrir hlaup,“ segir Guðný
að lokum.
Hleðsla góð eftir hlaup
Við undirbúning fyrir hlaup skiptir mataræði miklu máli. Hleðsla og Hleðsluskyr frá MS eru hollar og góðar vörur sem henta bæði
hlaupurum og öðru íþróttafólki mjög vel. Hleðsla fæst í mörgum bragðtegundum og Hleðsluskyr ýmist hreint eða með bláberjabragði.
Íþróttadrykkurinn Hleðsla og Hleðsluskyr henta mjög vel við undirbúning hlaupa. MYND/ÚR EINKASAFNI „Bæði Hleðsla og Hleðsluskyr eru jafnframt hlaðin vítamínum og steinefnum,“ segir Guðný Steinsdóttir,
markaðsstjóri MS. MYND/ERNIR
NÆRING SKIPTIR MÁLI
Maraþonhlauparar þurfa að huga vel að
mataræði og næringu síðustu dagana fyrir hlaup,
einkum þeir sem stefna á góðan tíma að sögn
Steinars B. Aðalbjörnssonar næringarfræðings.
Hann hvetur alla sem hlaupa svo langa vegalengd að huga vel að
þessum þáttum. „Auðvitað skiptir máli hvort hlauparar stefna á að hlaupa
heilt maraþon á 2,5 klukkustundum eða yfir 4,5 klukkustundum en hollt
og gott mataræði dugar þeim sem fara hægar yfir.“ Síðustu vikuna fyrir
hlaupið eiga hlauparar að borða jafnt og þétt yfir daginn. Ekki skiptir
öllum máli hvað er borðað svo framarlega sem það er fjölbreytt og hollt
fæði. „Daginn fyrir hlaup skiptir miklu máli að borða ekki of þunga máltíð,
þá er pasta heppilegri kostur.“ Þegar tveir til þrír dagar eru í hlaupið
skiptir miklu máli að drekka nóg af vatni og segir Steinar marga drekka
kolvetnadrykki sem innihalda sölt. Það minnkar krampamyndum og
hjálpar til við eðlilega svitamyndum þegar í
hlaupið er komið.
Maraþonhlaupið hefst snemma dags og
því er mikilvægt að vakna snemma, borða
og koma líkamanum í gang. „Margir flaska á
þessu en best er að borða létta máltíð tíman-
lega, til dæmis 2-3 brauðsneiðar með sultu, osti
eða smjöri. Gott er að drekka vatn eða hreinan
ávaxtasafa með en sleppa mjólk því prótein
og fita geta þvælst lengur fyrir í meltingar-
veginum heldur en kolvetnarík matvæli. Hér
er þó mikilvægt að prófa ekki nýja hluti heldur
borða mat sem hlauparinn er vanur.“
Að hlaupi loknu skiptir miklu máli að borða
eitthvað eins fljótt og hægt er, til dæmis
banana eða drekka íþróttadrykk. „Það er sér-
staklega mikilvægt fyrir þá sem vilja ná sér
fljótt og leggja grunn að næsta hlaupi.“ Nánari
upplýsingar um næringu hlaupara má meðal
annars finna á facebook.is/naeringhlaupara.
Tímapantanir í síma 55 77 100
Engjavegur 6 - 104 Reykjavík - Sími 55 77 100
Ætlar þú
að byrja að hlaupa eða ganga í sumar...
komdu og við hjálpum þér að velja skó sem
henta þínu fótlagi og niðurstigi.
Ert þú
með verki í skrokknum...
komdu í göngugreiningu og við jafnvægisstillum
þig með innleggjum og réttum skóbúnaði.
www.gongugreining.is
Getum við ekki örugglega gert eitthvað fyrir þig...