Fréttablaðið - 30.07.2013, Qupperneq 30
BÍLAR
FRÉTTABLAÐIÐ
Þriðjudagur 30. júlí 20134
Uppi er hugmyndir hjá breska
bílasmiðnum Jaguar að bjóða upp
á smærri bíla en fyrirtækið hefur
áður framleitt og að þeir verði með
yfi rbyggingu eingöngu úr áli. Um
yrði að ræða bíl á stærð við BMW 3
og Mercedes Benz C-Class, jeppling
á stærð við Range Rover Evoque
og langbak af minni gerðinni.
Þessir bílar yrðu líklega smíðaðir í
verksmiðjum Land Rover, en Jaguar
og Land Rover eru eitt og sama
fyrir tækið. Jaguar selur um helm ingi
færri bíla en Land Rover og hefur
Jaguar uppi áætlanir um að nálgast
Land Rover í sölu með þessum nýju
bílum. Jaguar Land Rover hefur gert
risasamning um kaup á áli við einn
af stærstu ál framleiðendum heims
í Sádi-Arabíu. Jaguar Land Rover
ætlar að verja 515 milljörðum króna
á ári á næstu órum árum við þróun
nýrra bíla og nýrra verksmiðja. Það
eru ekki litlir peningar, svo eðlilegt
má teljast að fyrirtækið sé nú að
huga að nýjum gerðum fyrir nýja
markhópa. Sala Jaguar Land Rover á
fyrsta helmingi ársins var 14% meiri
en í fyrra og má því segja að gengi
fyrirtækisins sé með besta móti,
sem alls ekki á við flesta bílafram-
leiðendur í Evrópu. Verulega góða
sala í Kína á mestan þátt í þessari
aukningu. Jaguar mun láta uppi
áætlanir sínar á bílasýningunni í
Frankfurt í september og vonandi
mun fyrirtækið sýna þar hugmyndir
að þessum þremur nýju bílum.
Það er ekki bara Tesla sem situr
undir ámæli fyrir áætlanir um að
selja bíla sína beint frá verksmiðjum
sínum gegnum netið og með því
sniðganga hefðbundnar bílasölur.
BMW hefur uppi sams konar áform
um sinn nýja rafmagnsbíl, BMW i3,
og bílasölur sem selja BMW-bíla í
Þýskalandi eru ekki sérlega hrifnar
af áformum BMW. Til heilmikilla
mótmæla þeirra hefur komið
og óttast bílasalarnir að þessi
hugmynd BMW sé aðeins undanfari
þess að öll sala fyrirtækisins muni
færast á netið. Forsvarsmaður
einnar bílasölunnar hefur gengið
svo langt að hóta því að hætta sölu
allra BMW-bíla í Þýskalandi ef þessi
áform fyrirtækisins ganga eftir.
Þýskar bílasölur mót-
mæla netsölu BMW á i3
Jaguar með nýja
smábíla aðeins úr áli
Nú er afstaðið sextán vikna undirbúnings-
ferli hjá bílumboðinu BL fyrir sölu og
þjónustu á rafbílnum Nissan Leaf með
ýtarlegri lokaúttekt á aðstöðu og þjálfun
starfsfólks. „Nissan gerir miklar kröfur
til sölu og þjónustuaðila Nissan Leaf og
undir búnings ferlið undanfarnar sextán
vikur hefur verið bæði strangt og lærdóms-
ríkt,“ segir Skúli Skúlason, framkvæmda-
stjóri hjá BL. „Undir búningur fyrir sölu
bílanna er á margan hátt frábrugðinn því
sem við eigum að venjast þegar um hefð-
bundna bíla er að ræða og því margt nýtt
sem við þurftum að tileinka okkur. Sérstök
áhersla hefur verið lögð á að undirbúa
þjónustu deildir. Við höfum þurft að ár-
festa umtalsvert í tækjabúnaði og aðstöðu
til viðgerða á rafbílum og starfsfólk okkar
hefur gengið í gengum námskeið og próf
fyrir það sem koma skal.“ Samkvæmt
opinberum mælingum keyra bíleigendur í
þéttbýli u.þ.b. 44 km á dag. Drægni Nissan
Leaf er a.m.k. 140 km á hleðslunni og
því ætti þessi nýjung að henta vel þeim
sem búa á Stór-Reykjavíkursvæðinu.
Með heima hleðslustöð er hægt að hlaða
rafgeyma bílsins á innan við óum tímum.
Þrátt fyrir að formleg kynning á Nissan
Leaf verði ekki fyrr en í ágúst var fyrsti
Leaf-rafbílinn afhentur áhugasömum
kaup anda í sömu viku og úttektinni lauk og
leyfi ð fékkst frá Nissan.
BL fær
gæðavottun
fyrir sölu
Nissan LEAF
BMW i3 gengur aðeins fyrir rafmagni.
Jaguar vill auka söluna með smábílum.
522 4600
www.krokur.net
Krókur hf. er fyrirtæki sem að hefur sérhæft sig í flutningum og björgun ökutækja.
Félagið rekur einnig þjónustumiðstöð fyrir tjónaökutæki þar sem veitt er ahliða þjónusta
í meðhöndlun tjónabifreiða og annarra bifreiða samkvæmt óskum viðskiptavina.
Krókur býður m.a. uppá:
• Starfsmenn sem eru þjálfaðir og reyndir í bíla- og tækjaflutningum
• 24 stunda þjónustu allt árið um kring
• björgunarþjónustu og aðstoð ef bílar bila eða flytja þarf þá á verkstæði
Taktu Krók á leiðarenda
Suðurhraun 3, 210 Garðabær
á þinni leið